Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2005, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2005, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 Menning DV Félags- fundur Hag- þenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, haldinn í ReykjavíkurAkademíunni þann 15. mars 2005 fagnar þeirri breyt- ingu sem gerð hefiir verið á Menningarverðiaunum DV í þá vem að veita sérstök verðlaun fyrirfræöiriL Með þessari breytingu á verð- laununum er þáttur fræðirita í ís- lenskri menningu viðurkenndur til jafris við listgreinar og hönnun. Vönduð fræðirit em ein af meginstoðum menningarinnar en Ma oft í skuggann af skáld- verkum í umræðu um bók- menntir og menningu. Þess vegna er það sérstakt fagnaðar- efrd að DV skuli nú meta fræðirit og höfunda þeirra til jafiis við aðrar bókmenntagreinar. Bryndís Brandsdóttir tók við fyrstu fraeðaverð- laununum fyrir hönd Tjörnesverkefnisins. Á morgun er opið hús í Klink og bank þegar fagnað verður ársafmæli starfsem- innar í gömlu verksmiðjuhúsunum sem Landsbankinn lánaði ungum listamönn- um undir hverskyns vinnustofur og samkomusali. Hefur aðstaðan reynst lista- lífi landsins alls sterk lyftistöng. I eins eps e mopyun Það verður allt opið upp á gátt á morgun í Klink og Bank, Brautarholti 1, frá 14-18. Um þessar mund- ir er ár liðið frá því samningar tókust milli Lands- bankans og hóps ungra listamanna um að verk- smiðjuhúsin sem bankinn hafði nýlega eignast myndu um óákveðinn tíma hýsa vinnustofur af ýmsu tagi, verksali og sýningarsali ungra listmanna. Á laugardag munu listamenn Klink og Bank opna vinnustofur sínar fyrir gestum og gangandi og sýna vinnu sína í því formi sem við á; tónlist, myndlist, hönnun, kvikmyndagerð, ljósmyndun og fleira. Til stóð að rífa húsin sem eru fjölmörg en sam- tengd og eru f raun merkilegar minjar um liðna tíð í íslenskum iðnaðarrekstri. Eigendur húsanna ákváðu aö bíða með framkvæmdir á því stóra svæði sem húsin taka á lóðum milli Brautarholts og Laugavegs, en þegar munu vera til teikningar af nýbyggingum sem munu rísa á svæðinu í fyllingu tímans. Er sú uppbygging hluti af stórum breytingmn sem nú eiga sér stað á þessum hluta Holtahverfisins sem er að breytast úr verslunar- og iðnaðarhverfi í íbúabyggð. Hafa húsin við Brautarholt 2 þegar tekið stakkaskiptum. Á meðan sætt er verður Klink og bank áfram með margskonar starfsemi í húsunum, var búseta þeirra framlengd í haust en ekki er fullráðið hvenær ráðist verður í framkvæmdir. f tilefni dagsins veröur litið um öxl í í Græna sal og sýnt brot af öllum þeim fjölda atburöa og vinnu sem átt hefur sér stað í Klink og Bank síðasta áriö. Á opna deginum verður eitthvað fyrir alla, meðal ann- ars verður boðið upp á bíó fyrir börn og fullorðna, barið verður á parabólur, gjörningar kvikna út um allt hús og börn mega mála á veggi. Léttar veitingar eru í boði og allir eru velkomnir. Á hátíðinni verður meðal annars sýnt úr heimild- armynd sem Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerð- armaður vinnur nú að um fyrsta árið í sögu Klinks- ins, en hann hefur filmað þar frá uþphafi. í samtali við DV sagði Þorfinnur að stefnt væri að því að koma myndinni á koppinn síðla árs og vonandi yrði hún frumsýnd í upphafi árs 2006. Hvort Klink og bank verður þá liðin tíð, stuttur og spennandi kafli í sögu samtímalistar á íslandi, leiðir tíminn einn í ljós. pbtx&dv.is menning Jmsjón: Pall Baldvin Baldwnsson pbb@dv.is Hagþenkir fagnar verðlaunum BORGARLEIKHUSIÐ Loikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavik STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20, Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20 SJðvstu sýningar HIBYLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögum Böðvars Cuðmundssonar R 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20, R 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20 LINA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 2/4 kl 14 - Aukasýning Su 3/4 kl 14 - Aukasýning Lokasýningar HOUDINI SNYR AFTUR Fjölskyldusýning um páskana. Mi 23/3 kl 20, R 24/3 kl 15, R 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20 í forsal - veitingasalan opin um leikhúsið á verki kvöldsins •Idsins FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ I TlMA NÝJA SVIÐ/UTLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN SEGÐU MER ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur Lau 19/3 Id 20, Su 20/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20 AUSA eftir Lee Hall Isamstarfi við LA. Su 20/3 kl 20, Su 3/4 kl 20 - Ath: MMaverð kr. ÍJSOO AMERICAN DIPLOMACY eftir Þorleif örn Arnarsson. í samstarfi við Hið lifandi leikhús. í kvöld kl 20, R 31/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20 Sfðustu sýningor ALVEG BRILLJANT SKILNADUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. í kvöld kl 20 - UPPSELT, Lau 19/3 kl 20 UPPSEtT, Su 20/3 kl 21 BREYTTUR SÝNINGARTfMll Mi 23/3 kl 20. Fi 24/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 2/4 kl 20 UPPSELT, R 14/4 kl 20, Fö 15/4 kl 20 - UPPSEU Ieftir Harold Pinter Samstarf: A SENUNNI,SÖCN ehf. og LA Lau 19/3 kl 20, Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20 Siðustu sýnmgar 15:15 TONLEIKAR - SÓLÓ Tinna Þorsteinsdóttir Lau 19/3 kl 15.15 Börn 12 ára og yngri fá frftt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusinii 568 8000 * midasalaiá'borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.bofgarlcikhus.is Miðasalan i Uorgarleikhúsinu ui opin; 10-18 máuudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-. fimmtu og föstudnga 12-20 laugardaga og sunmidaga Verðlaun kennd við Astrid Lindgren valda deilum Gefið aurana í barnahjálp Verðlaun sem kennd eru við hina ástsælu sænsku skáldkonu Astrid Lindgren verða í vor veitt japanska myndlistarmanninum Ryoji Arai og breska rithöfundinum Phílip Pull- mann sem þekktur er hér á landi fyrir þríleikhin sem oftast er við hann kenndur, Lúmska hnífinn og fleiri. Verðlaunin sem nema 5 millj- ónum sænskra króna verða þá veitt í þriðja sinn. í sænska dagblaðinu Dagens nyheter birtist í vikunni grein eftir fomvinkonu skáldkonunnar, Margerethe Strömstedt, þar sem hún andæfir því að vellauðugum og velþekktum listamönnum séu veitt þessi verðlaun og segir það ekki í anda skáldkonunnar: „Ég held ekki að Astrid Lindgren hefði kosið þekkt og vellauðugt fólk - jafnvel ekki barnabókahöfunda - fram yfir börn,“ sagði í greininni. Hún telur að skáldkonunni hefði verið þóknanlegra að peningamir yrðu nýttir til bókakaupa á söfnum fyrir böm eða þeir væm notaðir til að hjálpa þeim flóttabörnum sem nú eiga á hættu að verða vísað frá Svíþjóð. „Þeir sem hafa ekki fjár- magn til að veita þeim börnum skjól ættu ekki að ausa peningum út í nafni Astrid Lindgren.“ -Lindgren-verðlaunin voru stofnuð 2002 og eru stærstu peningaverðlaun til barnabóka- höfunda í heimi. Það er sænskir Astrid Lind gren 1985 embættismenn sem velja verð- launahafana ár hvert. Strömsted var vinkona Lindgren í þrjá áratugi og gaf út minningabók um hana 2002. Fyrir tveimur árum kom út rit í Svíþjóð þar sem því var haldið fram að siðaboðskapur Lindgren í skrifum hennar væri kristinn í anda og fór það ekki vel ofan í Svía - ekki alla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.