Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2005, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2005, Síða 25
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2005 25 Agústa Þórey Brynjólfsdóttir lést skyndilega á heimili sínu í Tampa Florída, aðeins 33 ára gömul, 26. febrúar síðastliðinn. Ágústa fór stuttu áður í einfaldar fegrunaraðgerðir sem á óútskýranlegan hátt leiddu til dauða hennar. Krufningarskýrslur leiddu í ljós að ekkert fór úrskeiðis við meðferðina sjálfa. Hún veiktist skömmu eftir aðgerðirnar og dó í svefni nokkrum dögum síðar. Agústa Þórey átti tvö ung börn, Apríl Rún níu ára og Micheal Anthony þriggja ára. Börnin eru ekki samfeðra. Þau bjuggu með móður sinni hjá sambýlismanni hennar í Flórída. SambandÁgústu við föður eldra barnsins, Dante Lynn Kubischta, var slæmt eftir skilnað þeirra. Eftir hann vann hún forræðisdeilu um dótt- urina fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Á hinn bóginn var samband Ágústu við föður yngra barnsins alltaf gott og fóru þau með sameiginlegt forræði yfir litla syninum. Eftir dauða Ágústu lá því beinast við að sonurinn færi til föður síns. Fjöl- skyldu Ágústu fannst hins vegar æskilegt að stúlkan kæmi með þeim til fslands, fylgdi móður sinni til grafar og fengi sálfræðimeðferð eftir móðurmissinn. - ■ ■ L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.