Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2005, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005
Fréttir DV
Mildaðir dóm-
ar Skjábræðra
Dómur í Landssímamál-
inu féll í Hæstarétti í gær.
Kristján Ragnar Kristjáns-
son hlaut 18 mánaða fang-
elsisdóm, Árni Þór Vigfús-
son fékk 15 mánuði og
Ragnar Orri Benediktsson
þrjá mánuði. Voru dómar
Hæstaréttar mildaðir nokk-
uð frá héraðsdómi þar sem
Kristján Ragnar og Árni Þór
voru dæmdir í tveggja ára
fangelsi og Ragnar Orri í
átta mánuði. f dómsorði
segir að sakborningarnir
hafi tekið við tæpum 164
miUjónum króna frá Svein-
birni Kristjánssyni, þáver-
andi aðalgjaldkera Símans,
sem þeim hefði mátt vera
fullkunnugt um að væri illa
fengið fé.
Þjófsnaut-
arnir þegja
Kristján Ragnar fær
þyngri dóm en Árni Þór
þar sem hann hafði
meira með fjármál fyrir-
tækjanna að gera. Sak-
borningar svöruðu ekki
þegar leitað var við-
bragða. Gestur Jónsson,
lögmaður Árna Þórs,
segist ekki ætla að tjá sig
við fjölmiðla. Og séra
Vigfús Þór Árnason, faðir
Árna Þórs, segir það hafa
verið ákveðið að fjöl-
skyldan tjáði sig ekki um
dóminn við íjölmiðla.
Enginn sakborninga var
staddur í réttarsai þegar
dómur féll.
Framhús
brennur
Mikill eldur kom upp í
íþróttahúsi Fram í Safamýri
í Reykjavík rétt rúmlega eitt
í gærdag. Að sögn slökkvi-
liðsins mátti litlu muna að
illa færi. Eldur hafði kvikn-
að út frá tjörupappa sem
verið var að bræða undir
þaki. Eldurinn var kominn
inn í húsið og stutt í stór-
bruna. Slökkviliðið hafði •
hins vegar betur og rúm-
lega klukkutíma eftir til-
kynninguna var búið að
ráða niðurlögum eldsins.
Álftamýrarskóli stendur ná-
lægt íþróttahúsinu en var
ekki í hættu. Skólastjóri
lauk þó skólastarfi fyrr af
öryggisástæðum.
Kjartan Ólafsson fer ekki í fangelsi þótt Hæstiréttur hafi dæmt hann í þriggja
mánaða fangelsi fyrir að hafa lamið eiginkonu sína. Ef Kjartan heldur skilorð
næstu þrjú árin fellur refsingin niður. Jón Steinar Gunnlaugsson vildi sleppa
Kjartani algjörlega vegna neikvæðrar hölmiðlaumQöllunar um hans mál.
„Eg er bara sáttur við dóminn," segir Kjartan Ólafsson sem
sleppt var við refsingu í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að berja
eiginkonu sína. Hæstiréttur dæmdi Kjartan í gær í þriggja mán-
aða fangelsi en eins og í héraðsdómi sleppur Kjartan yið refsingu
haldi hann skilorð næstu þrjú árin. Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari vildi meta
Kjartani í hag.
Kjartan Ólafsson er 47 ára verka-
maður. Dómurinn yfir honum í hér-
aðsdómi vakti mikla athygli þar sem
Guðmundur L. Jóhannesson, dóm-
arinn sem dæmdi málið, sagði að
Kjartan hefði haldið að konan væri
að halda framhjá sér. Með því hefði
konan sjálf átt noklcra sök á ofbeld-
inu.
Umdeildur dómur
Þetta fellst Hæstiréttur ekki á
heldur segir að þegar gögn málsins
séu virt ,,[sé] hvorki í ljós leitt að
konan hafi gefið ákærða tilefni til
árásarinnar né að til átaka hafi kom-
ið milli þeirra“.
Þá segir að ákærði „sem er vel að
manni" hafi ráðist „á varnarlausa
konuna á heimili þeirra, þar sem
aðrir voru henni ekki til bjargar, og
[tekið] hana meðal annars hálstaki
með áðumefndum afleiðingum. Var
neikvæða fjölmiðlaumfjöllun
þessi árás hans því alvarleg og á
ákærði sér ekki málsbætur."
Áður framið brot
Kjartan var ákærður fyrir að hafa
ráðist á eiginkonu sína, tekið hana
hálstaki og hrint henni til og frá að
morgni 1. október 2003. Konan flúði
heimili sitt á nærfötunum einum
klæða og leitaði skjóls í Kvennaat-
hvarfinu. Sjálfur játaði Kjartan
verlcnaðinn og sagðist hafa „tuskað
hana til“.
Kjartan hefur áður verið dæmdur
fyrir líkamsárás en þrátt fyrir saka-
feril hans og alvarleika brotsins er
refsing hans skilorðsbundin.
Sératkvæði Jóns Steinars
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari skilaði sérat-
kvæði í málinu. Hann vildi fresta al-
gjörlega fullnustu refsingar yfir
Kjartani vegna fjölmiðlaumfjöllunar
um mál hans.
„Fallast má á með ákærða (Kjart-
ani) að opinber umfjöll-
un um brot hans, þar
sem meðal annars var
birt mynd af honum
undir nafni, hafi ver-
ið einhliða og ósann-
gjörn og tdl þess fallin
að valda honum þján-
ingum og skaða á þann
hátt, sem hann hef-
ur lýst,“ segir
Jón Stein-
ar í sér-
at-
kvæði
sínu.
Neikvæð umfjöllun
Með þessu viU Jón Steinar skapa
þá línu að „neikvæð" umfjöllun fjöl-
miðla geti orðið sakamönnum til
refsilækkunar. Ekki eru allir sam-
mála Jóni Steinari í þeim efnum.
Jónatan Þórmundsson, prófessor í
Háskólanum, sagði í bók sinni
Viðurlög við afbrotum að var-
hugavert væri að verða við slíkum
kröfum. Það gæti orðið til þess að
verjendur reyndu vísvitandi að fá
fram neikvætt umtal um
skjólstæðinga sína
sem leiði til
„óheppilegra og
jafnvel hættu-
legra víxlverk-
ana milli refsi-
ákvörðunar
og fjölmiði-
unar".
simon@d.vis
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari Vildifella
niður alla refsingu vegna umfjöll-
unar fjölmiðla um Kjartan.
Skjár einn loks til Grundarfjarðar í óvæntu formi
í beitningu og billiard á Kvíabryggju
„Nei, við erum ekki með Skjá
einn hér í Grundarfirði," segir Vil-
hjálmur Pétursson, forstjóri fangels-
isins á Kvíabryggju, en nú virðist
ætla að verða breyting á þó í öðru
formi en við var búist. Eftir dóm
Hæstaréttar yfir þeim Skjábræðrum,
Kristjáni Ra. Kristjánssyni og Árna
Þór Sigfússyni, má fastlega gera ráð
fyrir að Vilhjálmur fangelsisstjóri fái
þá félaga í sína umsjá áður en langt
um líður.
„Jú, hér vinna menn og fá fyrir
Hvað liggur á?
það kaup," segir Yilhjálmur. „Mest
er þetta ákvæðisvinna þannig að
launin fara eftir því hversu duglegir
menn eru. Hér vinna menn við
beitningu, gera við fiskikör og slá úr
netum fyrir útgerðarmenn á Grund-
arfirði. Þá er aðstaða til tómstunda-
iðkana ágæt. Hér er billiard og níu
holu golfvöllur þannig að nóg er við
að vera."
Fangar á Kvíabryggju búa í sér-
herbergjum en verða þó að deila
sturtu. Þegar Árni Johnsen dvaldi á
Kvíabryggju nýtti hann tímann vel
„Ég er bara Iprófum uppi á Bifröst,"segir Helga Kristín Auðunsdóttir, formað-
ur félags um bætta vínmenningu.„Ég er þar að læra lögfræði. Svo ætli það liggi
ekki á að klára prófin og ná góðum einkunnum. Og halda svo áfram barátt-
unni fyrir bættri vínmenningu."
og kom upp einhverri stærstu
myndlistarsýningu sem um getur á
síðari tímum. Sótti hann grjót í fjör-
una við fangelsið og skóp úr skúlpt-
úra sem löngu eru landsfrægir. Ekki
er að efa að þeir Kristján Ra. og Árni
Þór eigi eftir að láta til sín taka í
fangelsinu og nýta tímann vel til
þeirra verka sem þeim eru hugstæð-
ust enda hugmyndaríkir og atorku-
samir með afbrigðum.
Ríkisstjórn
gagnrynd
Samtökin Landvernd gagn-
rýna ríkisstjórnina fýrir að
standa ekki við eigin stefnu-
mörkun í draga úr losun gróður-
húsalofttegunda. í tilkynningu
samtakanna segir að ríkisstjóm-
in hafi stefnt að auknum inn-
flutningi spameytnari bíla með
breytingum á vömgjaldi. Þó njóti
pallbflar enn sérstaks afsláttar af
vörugjaldi. Fólk geti sparað frá
350 til 1300 þúsund krónur með
því að kaupa pallbfl. Landvernd
segir slíka neyslustýringu tæp-
lega geta þjónað samfélagslegum
tflgangi.