Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Síða 13
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ2005 13
/
Forsetaframbjóðandinn fyrrverandi
Ástþór Magnússon sprautaði tómatsósu
um húsakynni Héraðsdóms Reykjavík
ur í gær. Skrifstofustjóri héraðsdóms-
ins segir að tekið verði á málinu.
„Við þurfum að taka á þessu
tómatsósumáli," segir Barbara
Björnsdóttir, skrifstofustjóri Hér-
aðsdóms Reykjavíkur en
Ástþór Magnússon veitt-
ist að ljósmyndara DV í
gær og sprautaði úr
tómatsósuflösku í átt
til hans.
Ástþór Magnús-
son kom fyrir Hér-
aðsdóm Reykjavíkur
í gær þegar tekið var
til aðalmeðferðar mál
sem Lögreglustjórinn í
Reykjavík höfðaði gegn
honum. Ástþóri er geflð
að sök að hafa þrifið
stafræna myndavél í eigu Flug-
blaðs Iceland Express og mölbrot-
ið hana inni á skemmtistaðnum
Glaumbar. Ljósmyndari DV var í
héraðsdómi og þegar hann hugðist
mynda Ástþór á leið inn í dómssal
rann á Ástþór æði. Hann veittist að
ljósmyndaranum vopnaður
Hunt’s-tómatsósubrúsa og hóf að
sprauta í átt til ljósmyndarans.
Starfsfólk dómsins segir að gólf og
veggir hafi verið „löðrandi" í
tómatsósu svo langan tíma tók að
þrífa upp eftir forsetaframbjóð-
andann fyrrverandi.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
framkoma Ástþórs í dómssölum
vekur athygli. Ekki heldur fyrsta
skiptið sem tómatsósa
kemur við sögu. Hann
mætti eitt sinn útbí-
aður í tómatsósu
þegar hann þurfti
að svara fyrir
tölvupóst þar
sem hann varaði
við mögulegum
árásum hryðju-
verkamanna á ís-
land. Eitt sinn mætti
Ástþór í héraðsdóm
klædddur í jóla-
sveinabúning en at-
hygli vakti að í það
skiptið hafði hann samband við
blaðaljósmyndara og lét vita af fyr-
irhuguðu uppátæki sfnu í von um
að það yrði fest á mynd.
Afstaða Ástþórs til ljósmynda-
töku í húsakynnum héraðsdóms
hefur nú breyst því í síðustu tvö
skipti sem hann hefur mætt í
þangað hefur hann veist að ljós-
myndurum. f fyrra skiptið við
þingfestingu málsins sem getið var
um áður og síðar við aðalmeðferð
sem fór fram í gær eins og fram
hefur komið. andri@dv.is
Snæfríður Ingadóttir Bar
vitnii' aðatmeðferðinni I gær.
Grasrótin telur að sér vegið
Garðyrkjubóndi kærir
aðalfund
„Stjómarfundur Bændasamtak-
anna telur þetta óvenjulega og
óheppilega aðferð við formanns-
kosningu sem orkar mjög tvímælis,"
segir Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna.
Bændasamtökunum barst í byrjun
síðustu viku kæra frá Sighvati Haf-
steinssyni kartöflubónda vegna
kjörs aðalfundar Sambands garð-
yrkjubænda sem haldinn var fyrir
rúmum tveimur vikum. Þar mættu
nokkrir aðilar með umboð ffá fjar-
stöddum bændum, en reglur sam-
bandsins gera ekki ráð fyrir slílcu.
Stjórn Bændasamtakanna ákvað
á fundi að gera ekkert í máhnu þar
sem sýnt þætti að umboðin hefðu
ekki skipt sköpum í formannskjör-
inu. Sigurgeir bendir líka á að ekki sé
Sigurgeir Þorgeirsson ítök Bændasam-
takanna I aðildarfélögunum takmörkuð.
sjálfgefið að Bændasamtökin hafi
lögsögu yfir aðildarfélögum sínum.
Hins vegar segir Sigurgeir for-
mannskjörið á gráu svæði lagalega
séð, það Uggi ljóst fyrir að um frávik
frá reglunni einn maður eitt atkvæði
sé að ræða. Þetta sé þó flókið mál
þar sem sambandið sé blanda af
einstaklingum og hlutafélögum, þar
sem einn geti farið með umboð fyrir
atkvæðum hlutafélagsins.
Samkeppnisstofnun rannsakar umsvif í ferðaþjónustunni
Flugleiðum var hótað dagsektum
Mercedes-Benz
TF-FIX
B 8 B B 3
Reykjavik _«
Excursions (Xj*
Farþegar Flugleiða Smærri sam-
keppnisaðiiar innanlands tortryggja
umsvifFlugleiða í lofti og á landi.
Samkeppnisstofnun hótaði Flug-
leiðum hf. dagsektum vegna dráttar á
afhendingu gagna um eignarhluti fé-
lagsins í öðrum fyrirtækjum tengd-
um ferðaþjónustunni á íslandi. Fyrir-
tækið var krafið um upplýsingarnar
18. febrúar sl. og hafði frest til 4.
mars. Það dróst hins vegar um tvo
mánuði að veita upplýsingamar. 9.
mars sagðist lögfræðingur Flugleiða
hafa verið erlendis og að gögnin yrðu
tilbúin „eftir helgina". 22. mars sagð-
ist lögfræðingurinn hafa „átt von á
sendingu". Síðar urðu tækniörðug-
leikar til að tefja málið og loks var
ástæðan sú að starfsmenn Flugleiða
höfðu ekki útvegað gögnin þrátt fyrir
ítrekanir.
Gögnin bárust Samkeppnisstofii-
un loks eftir að hún gaf fimm daga
frest með þeim viðurlögum að
dagsektarúrræðum yrði beitt.
Guðmundur Sigurðsson,
sviðsstjóri samkeppnissviðs
stofnunarinnar, segir það í
rannsókn hvort upplýs-
ingamar séu fullnægj-
andi. „Við eigum eftir
að leggja mat á hvort
upplýsingamar í bréf-
inu séu fullnægjandi
og hvort staðan upp
fylh okkar skilyrði,"
segir hann.
Árið 1997 vom
Flugleiðum sett þau
skilyrði að fyrirtækið
ætti að tilkynna öh
kaup á hlutum í öðrum fyrirtækj-
um í ferðaþjónustu á fslandi.
Flugleiðir eiga meðal ann-
ars yfirgnæfandi hlut í Kynn-
isferðum og Ferðaskrifstofu
fslands og stóran eða aUan
lut í nokkrum rútufyrirtækj-
um. Undan þessu hafa sam-
keppnisaðUar kvartað,
en ekki formlega,
tíl Samkeppnis-
stofriunar.
jontrausti@dv.is
Guðmundur Sigurðsson
Forstöðumaður samkeppn-
issviðs segir að svör Flug-
leiða séu f rannsókn.
155/80R13 áður 5.990 nú 3.960
175/65R14 áður 7.590 nú 5.312
185/65R15 áður 8.990 nú 6.460
195/70R15 8pr. sendib. áður 13.700 nú 9.435
Ef þú kemur með bílinn í smur hjá Bílkó færðu ofvin
Sækjum og sendum
báðar leiðir. Verð frá kr. 850
IBU-'AP-V.O.T.TURI
’s/úfói
Léttgreiðslur
DEKK
BON OG ÞVOTTUR
BREMSUKLOSSASKIPTI
SMURÞJONUSTA
PERUSKIPTI
RUÐUÞURKUBLOÐ
SÆKJUM OG SENDUM
Betri verd!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is j Sími 557-9110