Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2005, Blaðsíða 29
DV Hér&nú MIÐVIKUDAGUR 4. MAl2005 29 :ékk kökusneið írá Kalla prins Jamelia segist hafa fengið óvenjulega gjöffrá Karli Bretaprins. Prinsinn sendi söngkonunni sneið af brúðkaupstertu sinni og eiginkonunnar Camillu. Kökusneiðina fékkJamelia senda sem þakkarvott fyrir vinnu sina sem sendiherra fyrir góðgerðarsamtök prinsins.„Ég var snortin, þetta var það siðasta sem ég bjóst við að fá i póstkassann," sagði Jamelia. Salma Hayek með flottustu brjóstin Seldi fjölskyldu sinni dóp TímaritiðJjJJJy gerði nýlega könnun á því hvaða stjörnur ættu eftirsóknarverðustu líkams- hlutana. Vart þarf að koma á óvart aö rnFIþykir vera með flottustu varirnar, en á eftir henni komu Jessica Alba og Beyoncé. Leikkonan [2J]JJ5J2J2þykir hafa fallegustu augun en skammt undan voru CharlizeTheron og Catherine Zeta-Jones. JQJUJjJjJJJJJJjJer með flottasta hárið, Slenna Miller með flottasta nefið og fl°ttustu brjóstin. DV birtir nú i fyrsta sinn orðrétta þýðingu á því sem sagt var í Oprah Winfrey-þættin- um umdeilda sem Svanhildur Hólm og Þórunn Lárusdóttir komu fram í á mánudaginn í síðustu viku. Þátturinn hefur vakið hörð viðbrögð og þá sér í lagi fyrir hvað Þórunn sagði um drykkjumenningu íslendinga og Svanhildur um kynhegðun ungra stúlkna á íslandi. Hér er allt sem þær stöllur sögðu til að kynna landið sitt. Dæmi hver sem vill. í myndveri >pruh Winfrey Oprah Winfrey: Frábært.Takk fyrir, Þór- unn. Þetta er heillandi. Svanhildur er fréttakona hjá (slenska Otvarpsfélaginu Stöð 2 í „Rokk-a-vitsj". Svanhildur Hólm: Það er borið fram „Reykjavlk". OprahWinfrey:„Reykjavitsj".„Reykja- vitsj". Svanhildur Hólm:„Reykjavfk". Oprah Winfrey:„Reykjavik". Já. Svanhildur Hólm: Nokkuð nálægt. Nógu gott. O.W.: Nei,„ReykjavIk". S.H.:Já. O.W.: ...sem er heimili Opruh-þáttarins á Islandi. Það sem mér fannst athyglis- vert við þetta. Hvað fannst ykkur [áhorfendurj athyglisverðast við þetta? Fyrir mig var það að það er alls engin skömm að þvl að vera einstæð móðir. S.H.:Nei. O.W.: Alls engin? S.H.: nei nei O.W: Það er bara lifað með þvi. S.H.:Já. O.W: Engir fordómar af neinu tagi? S.V.:Neibb, engir. O.W.: Það er ekki eins og þú sért minni manneskja en gift fólk... S.H.: Nei. O.W: Nei? S.H.:Þú þarft ekki eiginmann til þess að hafa góða stöðu í þjóðfélaginu. O.W.:Hvern heldur þú að þú sért að tala við, stúlka? Eg held að ég sé Islend- ingur f aðra ættina. Ég vissi þetta ekki fyrren núna. Kynlífið á fslandi O.W.:Allt í lagi. Er það satt að það að stunda kynlíf með einhverjum þegar þú ert þara búinn að hitta hann einu sinni sé„normið“? Myndirðu segja að það sé„normið" á Islandi? S.H.:Það kemurfyrir.Já. O.W.:Allt f lagi. S.H.:Ég hugsa að kynlíf sé ekkert mikið mál á Islandi, af því að, þú veist, það gera það allir þannig að það er ekki eitthvað sem þú þarft að tala um og skammast þín fyrir. O.W.: Af því að allir stunda það. Það stunda það allir hérna Ifka. S.H.: Hvers vegna ætli það sé svona mikið mál þá? O.W.: Af hverju er það ekki neitt stór- mál á Islandi? S.H.:Ég býst við að við séum dáldið frjálslynd af því að það er ekki stór þröskuldurá nýjum samþöndum.Þú þarft heldur ekki að fara á eitt, tvö, þrjú stefnumót áður en þú býður honum inn. Það eru engar svoleiðis reglur. O.W.:Þið hafið engar svoleiðis reglur? S.HuNei. O.W.: Ég er forvitin að vita hvað ykkur finnst um okkur. Þegar þú ert úti á bar, að drekka og þú ert þúin að fá þér nokkra. Hvað segirðu um þandarískar konur? S.H.:Oh, þið eigið þessa frábæru þætti. Næstum hver einasta kona á fsiandi horfir á„Sex and the City". O.W.: Er það? S.H^Jáms. O.W.: Fáið þið raunveruleikasjónvarp? S.H.: Já, fulltViS erum frekar„Amerfku- vædd". O.W.: Eruð þið hrifin af fræga fólkinu okkar? Eins og, ok, fílarðu Tom Cruise? S.HuSystir mín dýrkar hann... O.W.: Dýrkar. Ok. Gott. S.W^.. .en nýjasta æðið er„Desparate Housewives". O.W.: Líka hjá okkur. S.Hj Það er þáttur sem allir geta sam- svarað sér við. O.W.: Allt í lagi. Þetta er það sem ég vil vita: Þegar þið talið um bandrískar kon- ur, segiði að við séum allar feitar? Ég sé að þú roðnar þannig að þú hlýtur að hafa sagt það einhvern tímann. S.H.: Ég ætlaði að segja að þegar ég horfði á Opruh-þáttinn hélt ég að þið hefðuð fengið förðunarmeistara til þess að fara yfir allan áhorfendahópinn af því það litu allir alltaf svo vel út. O.W.:Já,finnst þér það ekki? S.HuJú. O.W.: Þið segið að við séum feitar, er það ekki? S.HjJaa.Það kemur mikið af fréttum frá Bandaríkjunum til Islands. O.W.:Já. S.Hu.. .og við sjáum oft myndir af spik- feitu fólki úti á götu. Fólk sem er það feitt að þú gætir ekki fundið eina einustu manneskju sem er jafn feit á (slandi. O.W.:Já. S.H.:Ég hef horft mikið á bandarfskt sjónvarp síðustu daga og mér sýnist þið vera með of margar auglýsingar sem neyða fólk til þess að léttast. Af því að ég held aö það sé fólk sem segi „Guð minn góður ég þarf að missa eitt kfló hérna"... O.W.: Þér finnst vera lögð of mikil áhersla á þyngd? S.H.:Já. Hrútspungar og brennivín O.W: Jæja.ég heyrði að þú hefðir kom- ið með íslenskt Ijúfmeti með þér. S.H.: Já. Málið er að við erum alltaf að reyna að vera kúl og hip og nútíma- leg... O.W:Já. S-H.:...og við erum með góða veitinga staði og allt það en ég kom er hefð- bundinn matur á Islandi.Tveir þjóðar- réttir. O.W.:Hverjir eru þeir? S.H.: Það er hákarlakjöt. O.W.:Og hákarlinn er kæstur.Er það satt? S.H.:Já. O.W.:Þess vegna lyktar hann svo... S.Hj Það er reyndar leið til þess að geyma matinn. Þú setur hann ofan í jörðina í nokkra mánuði og svo... O.W.: Þú grefur hann (jörðina? S.Hu Já. O.W.:í nokkra mánuði? S.H»Já. O.W.:Af hverju myndi maður nokkurn tfma vilja gera það? S.H.: Þetta er aðferö við að verka há- karlinn. O.W.:Ó, allt í lagi. S.H.:Hann er... O.W.:Geturðu fundið lyktina af honum þar sem þú situr? S.H.:Ég segi bara spenntu sætisbeltin, vegna þess að þetta er hákarl.Og þetta eru hrútspungar.Án gríns.Við borðuð- um næstum allt af kindinni eða forfeð- ur okkar gerðu það að minnsta kosti. En í dag er þetta bara borðað við sér- stök tækifæri. Þú ættir að smakka þá af því þeir eru mjög góðir. I alvöru. Þeir eru dáldið eins og soja-kjöt. Dagsatt. Vill einhver bragða? O.W.: Nei. Ég skal segja þér svolftið. Ég veit að þú ert Ifka í sjónavarpi. En ég er ekki ein af þeim manneskjum sem þú sérð f sjónvarpsþáttum sem bragðar svona og segir svo„Oj, nei takk!" Svar mitt er að ég ber virðingu fyrir þér og þínu landi og þfnu fólki en undirengum kringumstæðum ætla ég að borða eistu af kind. Ég neita að gera það. En hvað er þetta? Þetta er eitthvað sem ég get hjálpað þér með. S.H.: Þetta er hefðbundið fslenskt brennivín sem er kryddað með kúmeni og það er virkilega gott sem skot. Þú geymir það í frystinum og drekkur það kalt. O.W.: A-ha, eins og vodka? S.H.: Já. Og þú tekur það allt f einu. O.W.:Allt í einu? S.H.: Já. tilbuin? O.W.:Hvernig á þetta eftir að bragðast? S.H.:Vel. Þú segir„skál".Skál! O.W.: Skál! S.H.: Skál! Og einn, tveir... Ahorfendur í kór: Áfram! Áfram! Áfram! Áfram! Áfram! S.H.: Færðu tár í augun? Færðu gæsa- húð? O.W.: Bragðast eins og eldur. S.H.: Já, ég veit. Þetta er kallað Black Death (Svartidauði) af þvf að eftir bannárin... O.W.: Þetta heitir Black Death! Og þú segirmér þaðeftirá. S.Hj Alkóhól var bannað um margra ára bil á Islandi. Árið 1935 var það leyft aftur. O.W.:Ja, það er nóg af því ofan f þess- ari flösku. Eftir nokkra svona líta þessi eistu ekki eins illa út. S.H J Þetta er það sem þeir segja á Is- landi. Að borða svona mat er bara af- sökun fyrir þvf að drekka brennivín. O.W.:Eftir nokkur svona staup er þetta Ijúffengt. Kynþáttafordómar og símaat f forsætisráðherranum O.W.:Hvað var þetta sem þú varst að segja mér áðan? S.H.:Á (slandi er bannað að segja eitt- hvað kynþáttatengt opinberlega.Þú færð sekt eða getur lent f fangelsi ef þú segir eitthvað kynþáttafordómafullt. O.W.: Um einhvern annan? Virkilega? S.H_'Já,já. O.W.: Það er gott. S.Hj Mér finnst það. O.W.:Veistu.Frá minni hálfu, þá bætir það upp fyrir rotnaða hákarlinn. Allt í lagi.Hvað er landið stórt? S.H.:Aðeins minna en 300.000 manns. O.W.: Allt landið? S.H4Já. O.W.:Allt landið? S.H.: Já, þetta er símaskráin á Islandi. Þetta er öll þjóðin, heimasfminn, gemsanúmer, vinnusfmi... O.W.: Já. Ég heyrði að meira að segja forsætisráðherrann væri í sfmaskránni. S.H.: Já, næstum allir eru hér. Ég skal sýna þér... O.W.:Er þetta númer forsætisráðherr- ans? Þannig að ef við hringdum núna myndum við ná f hann? S.H.: Já. Á ég kannski að tala við hann? O.W.: Ég skal tala við hann. Hvað er klukkan þar? S.H.: Kvöldmatarleytið. O.W.:Ok,hringjum ihann.Fáum hann f símann. Erum við að hringja núna? Erum við að fá hann í sfmann? Hvað heitir hann? S.H.: Halldór Ásgrímsson. O.W.:Herra forsætisráðherra Ásgrfms- son. Halló? Hver er þetta? Er þetta forsætis- ráðherrann? Ónafngreindur maður: Nei, nei, nei, nei, nei. O.W.:Hæ. Þetta er Oprah Winfrey og ég er I sjónvarpinu. Þannig að öllu sem þú segir er hægt að beita gegn þér. Maður: Þetta er á skrifstofu forsætis- ráðherra. O.W.: Þetta er skrifstofan. Hvar er hann? Maður: Hann er heima hjá sér.já. O.W.:Ok.Geturðu sagt honum að Oprah og Svanhildur hafi hringt.Oprah hafi verið með henni að borða kæstan hákarl... Maður: Allt (lagi. O.W.:Og okkur datt í hug að skemmta okkur aðeins og prófa að hringja í hann af því númerið hans var (símaskránni. Maður: Allt f lagi, en klukkan er núna 7.40. Þannig hann er farinn heim. O.W.:Ok, segðu honum aö ég sjái eftir því að hafa misst af honum og næst þegar ég er I bænum kíki ég við hjá honum og við fáum okkur hrútspung og brennivfnsstaup. Maður: Allt í lagi. O.W.: Nennirðu að gera það? Maður:Já,já. O.W.:Takk. Maður: Takk, sömuleiðis. Bless, bless. (slensku nöfnin O.W.:Jæja, þakka þér kærlega fyrir, Svan. Notar fólk alltaf fyrsta og sfðara nafn þitt þegar það talar við þig, Svan Hildur? Eða segir fólk, þú veist,„Hey Svan!“? S.HuNei, þetta er reyndar bara eitt nafn. Við höfum svo löng nöfn á (slandi. O.W.:Ó, þetta er bara eitt nafn? S.Hj Ég heiti reyndar Svanhildur Hólm Valsdóttir. O.W.: Allt í lagi. Þannig að þegar þú varst úti að leika þér og mamma þín vildi kalla þig inn (mat, kallaði hún þá „Komdu aftur inn,..." S.H.:„Svanhildur Hólm Valsdóttir!" Ég spurðist fyrir og ég veit að faðir þinn heitir Vernon. O.W.:Faðir minn heitirVernon. S.H4 Þá myndir þú heita Oprah Vernonsdóttir. O.W.: Af hverju? Af þvf þið takið nafn feðraykkar...? S.H^ Já og bætum við -dóttir á eftir. O.W.: Og ef það er strákur... S.W.: Ef það er strákur þá... bróðir þinn myndi t.d. vera Vernonsson. O.W.rÞið hljótið að hafa mikið af fólki sem heitir -son og -dóttir í... S.H.rNæstum allirjá. O.W.: ...í símaskránnijá. S.H^Svo getur maður tekið nafn móð- ur sinnar. Hvað heitir mamma þín? O.W.: Lee. S.H^ Lee. Þannig að þú gætir verið Leesdóttir. O.W.:Allt í lagi.Ég skil. Jæja, þetta er búið að vera mjög spennandi.Takk fyrir þetta allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.