Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR U.MAÍ2005 Fréttir DV Skert sjón eftir árás Viðtal við Jónínu Benediktsdóttur í Kastljósinu dregur dilk á eftir sér. í gær var bréf frá Finni Ingólfssyni, forstjóra VÍS, til umfjöllunar hjá útvarpsráði. Finnur hafði sent útvarpsstjóra bréf þar sem hann spyr hvort ekki hafi verið brotin hlut- leysisregla Ríkissjónvarpsins með viðtalinu. Sigmar Guðmundsson vísar því alfar- ið á bug en Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri harmar það sem hann kallar mis- notkun Jónínu á aðstæðum. Jónína hyggst eftir sem áður vera hugrökk. Aðalmeðferð fór fram í gær í máli ríkissaksóknara gegn Róbert Cassis. Róbert er gefið að sök að hafa sleg- ið mann í andlitið á meðan hann var að drekka úr glasi á veitingastaðnum Kaffi Austurstræti í október síð- astliðnum. Glasið bromaði á andliti mannsins og hlaut hann alvarleg meiðsl af þessum völdum. Meðal annars leiddu áverkarnir til sjónskerðingar á báðum augum en endanlegar af- leiðingar eru enn ekki komnar í ljós. Bush hylltur í Georgíu George W. Bush Banda- ríkjaforseti hefur verið á ferðalagi í Georgíu. f ræðu sem hann hélt á Frelsis- torginu í höfúðborginni Tblisi sagði hann Georgíu- menn vera mjög hugrakka þjóð sem hefði knúið fram lýðræði á friðsamlegan máta og með því verið fyrirmynd rrkja á borð við Ukraínu, Líbanon og írak. Var Bush hylltur sem rokk- stjarna er hann flutti ræð- una, en fyrr um daginn hafði forseti Georgíu, Mikh- ail Saakashvili, lýst Bush sem einbeittum leiðtoga með skýra framtíðarsýn. Drengur undir baunaflóði Sautján ára gamall ung- lingur á Nýja-Sjálandi grófst í baunaflóði eftir að hann, ásamt tveimur vin- um sínum, gerði sér það að leik að opna gám sem stað- settur var við höfnina í bænum Ashburton. Þegar dyrnar á gámnum lukust upp grófst drengurinn í miklu baunaflóði. Lögregla og sjúkralið voru kvödd á staðinn og tókst að bjarga drengnum í tæka tíð. Hann var dæmdur í 200 stunda samfélagsvinnu og gert að borga skaðabætur upp á 77 pund, andvirði helmings baunanna. Markús harmar Jonínu Óhress með of lágttilboð Oktavía Jóhannesdóttir, bæjar- fulltrúi á Akureyri, lagði nýlega til í bæjarráði að út- boð bæjarins á garðslætti í bæn- um yrði gert ógilt. Hún segir tílboðið semAkureyrar- bær gekk að sé fullkomlega óraunhæft. Tiiboðið var tæplega helmingur af kostnað- aráædun bæjarins. „Það hringir vissulega viðvörunarbjöllum þeg- ar tilboð er svona langt undir kostnaðaráædun," segir Oktavía um málið. Hún segir að vel verði fylgst með vinnu verksins og farið verði fljódega yfir innkaupastefnu bæjarins vegna málsins. Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, sendi Markúsi Erni Antonssyni bréf þar sem hann spyrst fyrir um ástæður þess að talað var við Jónínu Benediktsdóttur í Kastljósi Sjónvarpsins 17. apríl síðast- liðinn. I' svarbréfí Markúsar Arnar er harmað að Jónína hafi mis- notað aðstöðu sína í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Téð viðtal olli nokkrum usla en Jónína þjófkenndi Finn og fleiri, til dæmis Olaf Ólafsson, sem kenndur er við Samskip, í tengslum við gjald- þrot SÍS auk þess sem hún gagnrýndi harðlega einkavæðingu ríkisstjóm- arinnar. Bréf Finns var tekið fyrir á fundi útvarpsráðs í gær sem og skrifleg svör Sigmars Guðmundssonar, Eyrúnar Magnúsdóttur og Sigurðar Valgeirssonar í Kastíjósi en útvarps- stjóri, Markús ÖmAntonsson, hafði, í kjölfar bréfs Finns, farið fram á skýringar. Engin niðurstaða varð á fundinum nema sú almenna ályktun að vanda ætti til verka. í bréfi Finns er óskað eftir við- brögðum stofnunarinnar við því að hann og fleiri séu þjófkenndir: „Þá komu þar ótal fleiri meiðandi full- yrðingar og hreinn uppspuni varð- andi nafngreint fólk og íyrirtæki, meðal annars VÍS og hluthafa félags- ins.“ Enn fremur: „Það spyrja fleiri en ég hvernig það samræmist stefnu og markmiði Ríkisútvarpsins að leggja heilan sjónvarpsþátt á besta tíma á sunnu- dagskvöldi undir ærumeiðingar og róg.“ Markúsi fannst miður hvernig til tókst „Ég er bú- inn að fá svar frá Markúsi," segir Finnur í samtali við DV. „Ég vildi vita hvernig þetta væri til komið. Þátturinn var sérstakur og sérstaklega til kominn. Útvarpsstjóri harmar það í svarbréfi til mín hvern- ig Jónína misnotaði aðstöðu srna í þessari beinu útsendingu til að ráð- ast á fjarstadda menn og þjófltenna þá.“ I bréfinu sem Markús Örn ritar Finni kemur fram að hann hafi farið fram á skýringar Rúnars Gunnars- sonar, deildarstjóra innlendrar dag- skrárgerðar, en í umsögn Rúnars segir hann sig hafa verið sammála umsjónarmönnum að fá Jónínu í viðtal, „ ...en jafriframt er það harm- að, að Jónína hafi misnotað aðstöðu sína í beinni útsendingu til að við- hafa meiðandi ummæli um nafn- greinda einstaklinga". Þessu lýsir Markús örn sig sam- mála og segir í bréfinu til Finns að honum finnist miður hvernig til tókst í þessari beinu útsendingu. Hafnar því að hafa brotið hlutleysisreglur f bréfi sínu spyr Finnur meðal annars hvort það samræmist hlut- leysisstefnu Rfldsútvarpsins að ein- staklingur getí komið ffarn í Kastíjós- inu og haft skoðanir og álit á hverju sem honum sýnist. „Auðvitað braut ég engar hlut- leysisreglur með því að fá Jón- ínu í viðtal," segir Sigmar Guðmundsson í samtali við DV og spyr af hverju Jónína ættí ekki að mega tjá sig í Kastíjós- inu sem , °g í Mogg- antun, ís- smI landi í dag, Silfri Egils og svo framvegis. „Endalaust má diskútera hvort viðtalið hafi verið gott eða vont. Við fönrm í slrka naflaskoðun á hverjum degi eftir þætti, en að ekki hafi mátt tala við hana í beinni útséndingu af því að hún hefur einhverjar tilteknar skoðanir á málum er eitthvað sem ég kvitta ekki uppá." Að ritskoða viðmælendur fyrirfram Sigmar bendir jafnframt á að þeim Ólafi og Finni hafi báðum verið boðið að koma í Kastíjósið en hvor- ugur þáði það. Þeir sendu hins vegar báðir frá sér yfirlýsingar sem lesnar voru upp í þættinum, sem er fátítt. Sigmar segir að fólk ættí að fara varlega að ætía þeim í Kastíjósinu að ritskoða viðmælendur sína fyrir- fram. „Fólk er sjálft ábyrgt orða sinna í Kastíjósi en ekki þáttarstjómendur. Og á sama hátt og það er ábyrgðar- hlutí að velja viðmælendur í þáttinn, þá er það líka ábyrgðarhlutí að útí- loka einhverja fyrirfram vegna skoð- ana þeirra. Kastíjósið á að rúma þær skoðanir sem em uppi á hverjum tíma í samfélaginu og í beinni út- sendingu em stór orð stundum látín flakka og það gerðist í þessu tilviki." Jónína bíður svara „Þeir verða bara að svara mér og sanna að þessi sala hafi farið eðlilega fram," segir Jónína í samtali við DV. „Tengsl Finns við ráð- andi öfl í samfélag- inu em alltof náin til að hann ætti að fá að gera svona hluti. Af hverju vom „Útvarpsstjóri harmar það í svarbréfi til mín hvernig Jónína mis- notaði aðstöðu sína í þessari beinu útsend- ingu til að ráðast á fjarstadda menn og þjófkenna þá." þeir að kaupa Búnaðarbankann ef þeir ætíuðu ekki að reka hann?" Jóm'na vill ekki láta hafa mikið eftir sér um þetta mál og segir að Markús Örn megi alveg hafa skoðun á því hvort hún hafi misnotað að- stöðu sína. „Frelsi krefst hugrekkis. Og ég ætía að vera hugrökk áfram. Við getum ekki ætlast til þess að Markús Öm hafi ekki skoðanir þó að hann sé útvarpsstjóri. Sannleikurinn kemur alltaf í ljós." jakob@dv.is I Finnur Ingólfsson / bréfi til út- I varpsstjóra ferhann fram á viöbrögö I stofnunarinnar viö því að heill sjón- ] varpsþáttur á besta tíma sé lagður I undir ærumeiðingar og róg. I Sigmar Guðmundsson I Tekursér vara fyrirþvíað I viðmælendur Kastljóssins 1 verði ritskoðaðir fyrirfram. Markús Örn Antonsson íbréfi til I Finns Ingólfssonar er harmað að I Jónína hafi misnotað aðstöðu sína i 1 beinni útsendingu Sjónvarps. Jónína Benediktsdóttir Segir að Finnur og félagar verði að svara fyrir þær spurningar sem hún setur fram varðandi.söluna á Búnað- arbankanum. Hún segir Markús Örn mega hafa þær skoðanir sem honum sýnist. Selma ekki á flæðiskeri stödd í aðdraganda Eurovision Dreifði huganum með jeppakaupum „Ég varð bara að dreifa huganum síðasta daginn," sagði Selma Björnsdóttir, sem hélt utan í morgun til Kænugarðs í Úkraínu. Það voru ekki ferðatöskurnar sem áttu hug hennar all- an í gær heldur fór hún og keyptí sér nýjan bíl, Ford Escape-jeppling. „Þetta er búið að standa til í fjögur ár. Loksins er ég komin á draumabíl- inn. Ég er búin að keyra um á Dai- hatsu Zirion í sjö ár en hann var bara orðinn of lítill. Við þurftum stærri „Það er mjög áríðandi að hvetja til að þessi óraunhæfa skattlagning sem er fyrir- huguð á dlselolíu verði endurhugsuð/'segir Óskar Stefánsson, formaður Bif- reiðastjórafélagsins Sleipnis.„Það er full ástæða tilþess að harma þessa ákvörð- un stjórnvalda. Verðið verður ofhátt og verðmunurinn á miili olíu og benslns verður of Iftill.Það er engin hvatning íþessu fyrir fólk." bil út af barninu," útskýrði söngkonan. Selma var ekki stressuð fyrir ferðina í gær. Sagði að bæði hún og dansaramir væm klár. „Við erum ef- laust með best æfða atriðið í keppninni. Erum búnar að vera að í tvo og hálfan mán- uð," sagði hún. Hópurinn lagði af stað snemma í morgun. Hann millilendir í Kaupmannahöfn og Berlrn og lendir í Kænugarði þegar líða tekur á daginn. Hægt er að lesa meira um Eurovision-ferð íslendinga í Hér & nú á síðum 28 og29. Selma Björnsdóttir Fjölskyld- an ofstór fyrirgamla bílinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.