Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDACUR II.MAl2005
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Jóhannes þykir umfram allt vera
gæskan uppmáluð, heiðarlegur,
geðgóður og vel upp alið einka-
barn. Hann er vinur vina sinna,
gerir ekki flugu mein og einkar
gott er að umgangast hann.
Hin hliðin á þessum peningi er
svo sú að hann þykir ofmjúk-
ur á stundum - svo mjúkur að
hann pissar sitjandi. Og á til
svartan húmor sem getur sleg-
ið menn út aflaginu. Á það til
að vera utan við sig og gleyma
veskinu þegar svo ber undir.
„Kostir Jóhannesar eru
fyrst og fremst mann-
gæska, heiðarleiki og að
vera traustur vinur. Hann
er hugmyndarikur og
vinnusamur. Geðgóður með af-
brigðum. Góður maður sem gerir
ekki flugu mein. Hann er ákafiega
vel upp alið einkabarn. Hin hliðin á
meinleysi hans og gæsku ersvosú
aðhann pissar sitjandi. Og dettur
stundum i Vaigeir, gleymir veskinu
sinu, sem er ekki níska heldur er
hann utan við sig oftog tiðum.
Flökt þenkjandi."
Sigmar Vilhjálmsson, sem kýs aö titla sig
guöfööur Jóhannesar og verndara.
„KostirJóa eru þeir að hann
er einstaklega vel gefinn
drengur með hjartað á rétt-
um stað. Hann er vinur vina
sinna og á auðvelt meðað
koma manni i gott skap.
Gallarnir gætu til dæmis verið þeir
að hann étur allt of mikinn parm-
esanost og þarfalltafað vera John
Lennon þegar við syngjum Bitlalög
saman.“
Sigurjón Brink, tónlistarmaöur, bítill og vin-
urJóa til fjölda ára.
„Jói er gull afmanni. Ákaf-
lega duglegurog vinnu-
samur drengur. Mjög
skemmtilegur og gaman
að vera I kringum hann.
Hann er mjög fyndinn og jafnvel
að hann leyni á sér sem slíkur.
Gallarnir? Hann er náttúrlega
einkabarn. Sem þýðir að hann er
dekraður upp að vissu marki. Svo á
hann tilmjög ijótan húmor-
svona nastí-húmor - sem getur
slegið mann út aftaginu."
Elmar Freyr Vernharösson, markaösstjóri,
besti vinur og kandídat í að verða svara-
maðurJóa þegar stóra stundin rennur upp.
Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktur sem Jói í
Idol, er nú aö Ijúka námi í markaðsfræði I
Tækniháskólanum. Hann útskrifaöist frá Verzl-
unarskólanum sem stúdent áriö 1998 og hefur
einkum látið tilsfn taka á vettvangi fjölmiðl-
anna síðan, bæði I útvarpi og sjónvarpi. Hann
ernúað setja á svið tónleik sem kallast Bltl en
þar fær hann svalað miklum tón- og leiklistar-
áhuga sínum og heefíleikum á þvl sviði. Hann
er I sambúð með óllnu Gísladóttur og eru þau
barnlaus.
Ridley Scott er umdeildur leikstjóri og tekst alla jafna að vekja umtal með mynd-
um sínum. Hans nýjasta mynd, Kingdom of Heaven, hefur hleypt af stað deilum
milli fræðimanna um sagnfræðilegt gildi hennar.
Nýjasta mynd Ridleys Scott „Kingdom of Heaven" hefur vakið
jákvæð viðbrögð í arabaheiminum. Bíóhúsagestir eystra hafa
sagt að myndin gefi aðra mynd af aröbum og múslimum en að
þeir séu ekkert annað en ótíndir hryðjuverkamenn.
Myndin lýsir baráttu um Jerú-
salem sem átti sér stað á tólftu öld á
milli múslima og krossfaranna og
þykir fremur tala máli múslimanna.
Að sögn líbanska rithöftmdarins
Amins Maalouf sem skrifaði bókina
„The Crusades Through Arab Eyes“
er allt sem vinnur gegn hatri og kerf-
isbundinni andúð milli þessara
tveggja heima af hinu góða.
Margir trúarleiðtogar höfðu
áhyggjur af því að mynd um kross-
ferðirnar, hugtak sem George Bush
hefur notað um stríðið gegn hryðju-
verkum, myndi verka sem oh'a á eld
þeirrar togstreitu sem hefur ríkt
milli austurs og vesturs eftir hryðju-
verkaárásimar 11. september.
Fræðimenn deila
Sumir sagnfræðingar hafa ásakað
leikstjórann um að sýna of mikla
samúð með Saladin, kúrdískum
leiðtoga múslimanna sem náðu
Jerúsalem aftur á sitt vald árið 1187.
Breskur ffæðimaður hefur gengið
svo langt að segja að myndin sé út-
gáfa Osamas bin Laden á sögunni. Á
sama tíma hafa múslimskir hópar
hlaðið leikstjórann lofi fyrir túlkun
hans á persónu Saladins. Þessir
hópar hafa einnig sagt að myndin
gæti hjálpað til við að lagfæra þann
skaða sem málstaður þeirra hefur
hlotið eftir íjölmargar Hollywood-
myndir sem hafa varpað skugga á
múshma um víða veröld á meðan
hinar bandarísku hetjur hafa verið
baðaðar í dýrðarljóma.
Hallar á krossfara
Myndin sjálf þykir mála hina
kristnu krossfara sem blóðþyrsta
stríðsmenn sem vildu leggja þennan
heimshluta undir sig hvað sem það
kostaði, og ekki með friðsamlegum
hætti. Maalouf segir að kvikmyndin
tald ef til viil málstað múslimanna
Ridley Scott Nýjasta mynd hans hefur vak-
ið mikið umtal.
fuilmikið á kostnað krossfaranna og
segir að vissulega hafi einnig verið til
þeir arabar sem vildu stríð hvað sem
það kostaði. Hann segir þó að sagn-
ffæðilegur hluti myndarinnar sé
nokkuð nákvæmur og að hún nái vel
að túlka anda þessa tíma.
Breskur fræðimaður
hefur gengið svo
langtað segjaad
myndin sé útgáfa
Osamas bin Laden á
sögunni.
Óánægja meðal araba
Þó svo að þorri þeirra áhorfenda í
Miðausturlöndum sem séð hafa
myndina virðist vera ánægður með
söguskoðun hennar heyrast þó
staka óánægjuraddir. Þær hafa að
mestu leyti snúist um atriði í mynd-
inni þar sem aðalpersónan, krossfari
sem nefnist Balian og leikinn er af
Orlando Bloom, reynir að hjálpa
arabískum bændum að búa til
brunna til að veita vatni á akra sína.
Arabískir fræðimenn hafa bent á að
það atriði lýsi þeirri vestrænu goð-
sögn að síonískir innflytjendur hafi
orðið valdir að því að eyðimörkin í
Palestínu tók að blómstra.
Heimild: Reuters
Atvinnuleikarar stöðvuðu laganema í gerð sjónvarpsþáttanna Réttur er settur
Enginn fékk
hæli í fyrra
Enginn flóttamaður af
þeim 76 sem sóttu um hæli
í fyrra fékk land-
vistarleyfi. Björk
Viðarsdóttir, lög-
fræðingur hjá Ut-
lendingastofnun,
segir margar
ástæður vera fyrir
því að fólki er
synjað um land-
vistarleyfi. Stofnunin sé
bundin af flóttamannaregl-
um og stjórnarskrá íslenska
rfkisins. Átján manns hafa
sótt um hæli það sem af er
þessu ári, en Ifkt og í fyrra
hefur enginn fengið um-
sókn sína samþykkta.
Kærasti Birgittu Haukdal settur út í kuldann
RÚV hefur ákveðið að halda ekki
áfram framleiðslu þáttanna Réttur
er settur. Þátturinn var unninn af
laganemum í Háskóla íslands og var
fyrsti þátturinn sýndur við ágætis
undirtektir í síðustu viku. Sýning
þáttarins vakti hörð viðbrögð Leik-
skáldafélags íslands og Félags ís-
lenskra leikara.
„Ég hélt nú að öllum væri frjálst
að búa til list. Hvort sem það eru
laganemar eða leikarar," segir Fróði
Steingrímsson, einn af handritshöf-
undum þáttanna. Sýning fyrsta þátt-
arins vakti hörð viðbrögð hjá stétt
hinna lærðu og skrifaði Árni Ibsen
m.a. grein á síðasta ári í Morgun-
blaðið þegar fréttir bárust af undir-
búningi þáttanna.
Þar sagði Árni ósæmfiegt með
öllu að sjónvarp allra landsmanna
væri að púkka undir fúsk af þessum
toga. í greininni stakk Árni einnig
upp á því að Félag íslenskra leikara
byði almenningi upp á ókeypis
Árni Ibsen skáld Jarðaði þættina með
harðorðri grein í Morgunblaðinu.
lögffæðiaðstoð. Ekki er víst hvort
öllum þyki þetta sambærileg dæmi.
Ámi Björn Helgason, framleiðandi
þáttanna hjá Þeim tveimur, segir
fleiri þætti hafa verið á teikniborð-
inu og vissulega séu það vonbrigði
að RÚV vfiji ekki halda áfram með
verkefhiö.
„Við erum samt þakklátir RÚV
fyrir að hafa gert okkur kleift að
framleiða þennan eina þátt en
hefðum auðvitað viljað halda
áffam," segirÁrni.
RÚV virðist hins vegar hafa orðið
við kalli Áma Ibsen og félaga í
menntastéttinni sem vilja ekki sjá
„fúskara" leika í íslensku sjónvarpi.
Með aðalhlutverkið í fyrsta þættin-
um fór Benedikt Sveinsson lögfræði-
nemi, sem einnig er kærasti söng-
konunnar Birgittu Haukdal. Ferfil
hans í sjónvarpinu virðist því á enda
í bili.
Ekki náðist í Bjarna Guðmunds-
son, dagskrárstjóra hjá RÚV, en
aðstoðarmaður hans segir ákvörð-
unina hafa verið á hans ábyrgð.
simon@dv.is