Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR ll.MAl2005 77
Æm
Síbrotamaður
sleppurvel
Sigurður Sveinsson, 19
ára Hafnfirðingur, sleppur
ótrúlega vel frá löngum
lista afbrota sem gerður var
upp í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær. Sigurður mun
ekki sitja inni einn dag af
þeim eins árs fangelsis-
dómi sem hann fær, brjóti
hann ekki skilorð. Sigurður
framdi alls ellefu brot á
tæplega sex mánaða tíma-
bih, frá desember 1993 til
maí 2004. Brotin sem um
ræðir eru ýmist fíkniefna-
brot eða innbrot. 877.508
króna bótakröfu ffá ýmsum
brotaþolum var vísað fr á
dómi.
Jón Frímann Jónsson er ákærður fyrir tölvuinnbrot í skólann sinn
Hrirgdi eftir töMM
í iKiMMrlilii
Jón Frfmann Jónsson |
Tilkynnti Heilbrigðiseft-
irliti Norðurlands vestra
um misbresti I tölvukerfi |
stofnunarinnar.
Jón Frímann Jónsson, 24 ára gamall Hvammstangabúi með
Asperger-heilkenni, braust inn í netkerfi Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands vestra meðan hann var nemandi í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki fyrir um tveimur árum. Um
svipað leyti fór hann í óleyfi inn á netkerfi skólans síns með lyk-
ilorði keifisstjóra, sem hann er nú ákærður fyrir.
„Hann hringdi sjálfur og
sagðist hafa komist inn í
tölvukerfið," segir Sigurjón
Þórðarson, þáverandi fram-
kvæmdastjóri heilbrigðis-
eftirlitsins og núverandi
alþingismaður. Sigurjón
hefur gagnrýnt ákæruna á
hendur Asperger-veikum
nemanda. Sjálfur kærði Sig-
urjón ekki tölvuinnbrotið,
Sigurjón
heldur hafði samband við Þórðarson
tölvuþjónustuna og lét lagfæra
misbrestina í tölvukerfinu.
Engar varnir voru á tölvu-
kerfinu áður en Jón
Frímann benti á vandann.
Aðstandendur Jóns Frí-
manns sem halda úti síð-
unni Freejon.com segja
kerfisstjóra skólans bera
mesta ábyrgð á tölvuinn-
brotinu, þar eð kerfið hafi
verið galopið og lykilorð
kerfisstjóra á glámbekk.
Sigurjón Þórðarson hefur fengið
hörð viðbrögð stuðningsmanna
skólans við pistfi sínum um að ekki
beri að lögsækja Asperger-veikan
tölvuáhugamann. „Það hlýtur að
vera einhver önnur leið til að koma í
veg fyrir fikt námsmanns við illa lok-
að tölvukerfi fjölbrautaskóla," sagði
hann þar.
Aðalmeðferð verður seinni
hluta mánaðarins í Héraðs-
dómi Norðurlands vestra.
Ekki er ljóst hvaða refs-
ingu ákæruvaldið krefst,
en Jóni Frímanni hefur
verið boðið tveggja
ára skilorðsbundið
fangelsi ef hann
játar fyrir dómi.
jontrausti@dv.is
LOKAHOF HSI - FOSTUDAGSKVOLDIÐ 13. MAI
STUÐMENN ÁSAMT NÝJASTA MEÐLIMNUM HILDI VÖLU
HÚSIÐ OPNAR Á MIÐNÆTTI• MIÐAVERÐ AÐEINS ÞÚSUND KRÓNUR
> 0 ■ií
Lgj & ■ m
V