Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2005, Blaðsíða 34
■w
fOHSALAH
í fUUOM CAIICI
Kf smnnn^Bió
' HUÚSAOfJ STÓHT
SIMÍ bb4 titíOO
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.l. 12 ára Sýnd kl. 4 og 6 m/ísl. tali
■illt ,i einum il/ið
0 Ví*
Sýndkl. 5,8og10
Sýnd I Lúxus kl. 5 B.i. 16 ára
ríiflSALAfi
í FULIUM GAUCI
im
- REGrwoGmn
Sýnd kl. og 9
Hotel Rwanda - Sýnd kl.
Aðrar myndir sem eru til sýningar:
Bad Educatlon - Sýnd kl. 6
House of the Flying Daggers
- Sýnd kl. 10.15
400 kr. / bíó! Glldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu
* * * HL MBL
Orlanrln Bloom, Llam Meosoii ocj Jercmy
Irons lara á kostum i cpiskrí stórmyml.
IVtissiö f:kki af mógmiöustu myncl arsins!
KJMOI )OA \
t'i | |I .O\/| M
Sýnd kl. 6,8 og 10
Sýnd kl. og9 B.1.16ara
Vandræði með
stærstu góðgerðar-
tónleika sögunnar
Stórvægileg vandræði eru í upp-
siglingu fyrir Live 8-hátíöina, sem
er góðgeröarhátíð skipulögð af Bob
Geldof. Hátíðin, sem spáð hefur
verið að verði stærri en Live Aid-
tónieikarnir sem 1,5 milljarðar
manna horfðu á, verða haldnir á
sama tíma og 10,000 starfsmenn
BBC ætla að hætta störfum í sólar-
hring til þess að mótmæla niður-
skurði innan fyrirtækisins. „Við
vonum að verkalýðsfélögin reyni
ekki að stöðva jafn mikilvægan
atburð og þennan," sagði yfirmað-
ur hjá fjölmiðlafyrirtækinu.
Bob Geldof, sem sagði á sínum
tíma að hann myndi „frekar deyja
en halda aðra góðgerðartónleika",
hefur skrifað undir samning við
BBC til þess að skipuleggja tónleik-
ana.
Markmið tónleikanna er að setja
þrýsting á leiðtoga ríkustu landa
heims - sérstaklega George Bush -
til þess að leggja niður skuldir
þriðja heimsins á G8-ráðstefnunni í
Skotlandi 6.-8. júli.
Meðal þeirra sem Bob Geldof
hefur fengið í lið með sér eru Elton
John, Joss Stone, sir Paul McCart-
ney, Madonna, U2, Robbie Willi-
ams, Coldplay, The Who, Eminem
og Rolling Stones. Einnig er búist
við að Nelson Mandela muni
ávarpa hátíðargesti.
Það var árið 1992 í smábænum
Veserás í Svlþjóð sem Dj Embee, þekkt-
ur þá sem Dj Mc Marshall, kynntist hip-
hoptónlist iýrst. Hann, ásamt bekkjar-
bróður sínum Marcie Cee, gerði ekkert
nema dásama hip-hoppið og vildi helst
ekki að neinn annar íýndi þennan nýtil-
komna fjarsjóð. Dag einn gerðu þeir
grín að því hver í skólanum væri ólíkeg-
astur til þess að rappa eftir útlitinu að
dæma og hlaut það að vera Mc Márten,
með sítt hár, í þröngum gallabuxum og
með eilíf læti. Nokkrum mánuðum
seinna voru Mc Márten og Dj Mc Mars-
hall búnir að gera lag saman. Seinna
gekk til liðs við þá Mellow T sem var í
hinni hip-hophljómsveit bæjarins, Hot
Dogs. Sá fjórði og jafnffamt sá síðasti til
þess að ganga í bandið var Supreme en
hann var í pönksveit í bænum. Eftir að
hafa hitt hann í partíum buðu þeir hon-
um að gera lag og eins og hendi væri
veifað skildi Supreme pönkið eftir
handa graðnöglunum og gekk rappinu
á hönd. í dag er hljómsveitin þekict sem
Loop Troop Rockers og em meðlimir
hennar Dj Embee (Dj Mc Marshall)
taktsmiður, Promoe (Márten), •
CosM.I.C (Mellow T) og Sup-
reme, rapparar. Þeir
hafa gefið út plötumar,*
Modem Day City Sym-
phony, The Stmggle Contin-
ues og nú síðast Fort Europa. Þeir eiga
sitt eigið útgáfufyrirtæki og heitir það
David Vs Goliath.
Það sem einkennt hefur Loop Troop
í gegnum árin em skilaboðin í textun-
um og sterk pólitísk meining. Textar
Loop Troop fara hörðum orðum um
stríð, Tony Blair, George Bush og efiús-
hyggju svo eitthvað sé nefiit. Promoe
sjálfur sagði: „LoopTroop, that’s what
you get when you mix hiphop & punk!"
Promoe er þekktasti meðlimur
hljómsveitarinnar, enda fer hann iðu-
f legafyrirhenni. Hann þykir af flestum
besti rapparinn. Útlit hans
er sérkennilegt, hann er
með sítt skegg og langa,
þykka slöngulokka og
ganga ótal sögur af honum.
Sagt er um Promoe að þegar hann kom
eitt sinn til íslands að spila hafi hann
ekki haft löngun eða rænu til þess að
halda uppá hótel og hafi sofið á Lækjar-
torgi, á bekk. Hann hefur einnig fengist
við veggjakrot og dásamað það í textum
sínum: „Graffiti is a freedom crime,
beautiful and revolutionary / suitable
for revolutionaries/". Hann hefur gefið
út tvær plötur undir eigin nafríi en það
em plötumar Goverment Music og The
Longdistance Runner. Loop Troop
hefúr alla tíð rappað á ensku en ekki á
móðurmáli sínu og er það kannski
vegna þess að árið 1992 vom rapparar
ekki byrjaðir að rappa á sfnu eigin máli,
áhrif og straumar frá BNA vom algjör-
lega ráðandi í rappinu. En það að rappa
á ensku auðveldaði þeim að ná vin-
sældum utan Svfþjóðar.
Loop Troop kemur nú á á klakann í
fjórða skipti en þess má til gamans geta
að þegar sveitin kom fyrst árið 1998 tók
hún lag sem bar nafnið „Reykjavik
Style" og þótti tónleikagestum gaman
að. Loop Troop er margrómuð fyrir líf-
lega og vel æfða sviðsframkomu og því
ættu tónleikamir að gleðja alla. Strák-
amir spila á Gauki á Stöng þann 20. maí
ásam N.B.C, Dj Paranoy og Danna
Deluxe. Húsið opnar kl. 23 og stendur
partíið fram eftir nóttu. 18 ára aldurs-
takmark og 1500 kr inn.
Tónlistarmaðurinn Phil Elvrum heldur nokkra tónleika á íslandi
Eerie-fjall áíslandl
Á landinu er staddur bandaríski tón-
listamaðurinn Phil Elvrum, sem er þekktur
í rokkheimum sem bæði The Microphones
og Mount Eerie. Hann kom hingað ásamt
kærustunni sinni, Geneviéve Castrée, sem
sýnir á teiknimyndasýningunni Níunni í
Listasafni Reykjavfkur undir nafninu
Woelv.
Phil vakti mikla athygli árið 2001 undir
nafninu The Microphones þegar plata
hans, The Glow pt. 2 kom út. Mörgum
fannst það besta plata þess árs, m.a.
veftímaritinu Pitchforkmedia sem er leið-
andi í smekk þeirra sem hailast að óhefð-
bundinni rokkmúsik. Næsta plata kom
tveim árum síðar, Mount Eerie, þung og
tormelt plata, eins konar óður til fjallsins
sem Phil sér út um gluggann þar sem hann
býr í smábænum Anacortes í Washington-
fylki. Á þessum tíma skipti Phil út Microph-
ones-nafninu og kemur nú fram undir
nafninu Mount Eerie.
Tónlist Phils er lágstemmd og lagræn
með gítar og einmanalegum söng í aðal-
hlutverki. Hann spilar víða á ferð sinni hér.
Hefur þegar spilað í matartímanum í MH,
en spilar í hádegishléi í Kvennaskólanum í
dag og í Frumleikhúsinu í Keflavík í kvöld. Á
morgun spilar hann í Smekkleysubúðinni
kl. 17, en aðaltónleikar hans verða á laugar-
dagskvöldið í Klink og Bank. Þar kemur
hann fram með trúbadornum
Þóri og Gavin Portland, sem er ný
hljómsveit sem téður Þórir
starfar með. Klink og Bank-tón-
leikarnir hefjast kl. 20.