Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2005, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ2005
Fréttir DV
Helena Þurlöur þykir einstak-
lega klár og dugleg. Hún lætur
verk sín aldrei falla niður enda
lætur hún finna fyrir sér af
hörku.
Hún er svolítiö viðkvæm því
reynsla hennar ípóiitík er
ekki orðin mikil og á það til
að taka hlutina ofnærri sér.
Helena getur verið skap-
stór.
„Hún er alveg eldklár og
rökföst I hugsun. Efhún
segistætla að gera eitt-
hvað eða tekur eitthvað
að sér þá gerir hún það
og hún gerið það vel sem
er mikill kostur I pólitlsku starfi.
Svo er hún hörkúdugleg. Hún
getur veriö svolítið skapstór en
ég tel það ekki stóran galla ef
það er á annað borð galli því
það er nauðsynlegt að bregðast
við og stundum þarfað gera
það með ákveðinni hörku.“
Oktavía Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi á
Akureyri og samstarfskona
„Kostirnir eru þeir að hún
hefur erft jafnaöar-
mannagenin úr fjölskyld-
unni enda systurdóttir
mln. Það er kostur að
hún býr I kjördæminu og er
tandsbyggöarkona, en það er
erfitt að finna galla hjá þessari
góðu frænku minni."
Kristján Lúövlk Möller, alþingismaöur
og frændi
„Meginkostirnir eru þeir
hvað hún er dugleg,
áhugasöm og glaölynd.
Hún hefur landsbyggð-
arsýn á stjórnmálin
vegna búsetu sinnar á Akureyri
sem veröur að teljast kostur og
mun þvl víkka út sjónarhorn
framkvæmdastjórnarinnar.
Persónulega þekki ég hana ekki
það vel að ég geti nefnt ein-
hverja galla."
Elnar Már Siguröarson, alþingismaður
og samflokksmaður úr Norðausturkjör-
dæml
Helena Þuríður Karlsdóttir er fædd 28.
ágúst árið 1967. Hún hefur starfað I félags-
stjórn Samfylkingarinnaren kom svo öllum
á óvart með þvl að sigra Stefán Jón Haf-
stein í ritarakjöri á Landsfundi Samfylking-
arinnar síðustu helgi. Helena er lögfræðing-
urað menntun.
Hassing nýr
forstjóri Sam-
skipa
Daninn Michel F. Hass-
ing var í gær ráðinn for-
stjóri Samskipa og mun
hann starfa við hhð Ás-
björns Gíslasonar, núver-
andi forstjóra fyrirtækisins.
Hassing, sem tekur við af
Knúti G. Haukssyni, verð-
andi forstjóra Heklu, hefur
verið forstjóri hjá Mærsk
skipafélaginu undanfarin
ár. Hann segir í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu að
hann hafi þekict Ólaf Ólafs-
son, starfandi stjórnarfor-
mann Samskipa, lengi og
ekki staðist freistinguna
þegar honum var boðið að
slást í hópinn.
Dularfullur maður keypti auglýsingu í Fréttablaðinu í nafni Bílasölu Austurlands
þar sem amerískir pallbílar voru auglýstir á kostnaðarverði. Smári Sigurjónsson,
eigandi Bílasölu Austurlands, kannast ekkert við málið og íhugar að leita réttar
síns. Auglýsingin hefur haft skaðleg áhrif á sölu á amerískum pallbílum.
DuHllnr maour eyfiin
stórlé í platauglýsingu
Nánari upplýsingar í síma 471 300
Auglysmgm sem
birtist í gær.
„Síminn er búinn að vera á fullu hjá mér síðan klukkan sjö í
morgun. Mér hefur ekkert orðið úr verki í dag,“ segir Smári Sig-
urjónsson, eigandi Bflasölu Austurlands sem var fórnarlamb
afar óvenjtflegs hrekks í gærmorgun.
í Fréttablaðinu í gær birtist aug- Þetta mun hafa áhrif á sölu þessara
lýsing þar sem amerískir pallbflar
eru auglýstir á kostnaðarverði,
„vegna aukins framboðs" og
„fallandi eftirspurnar", eins og það
var orðað. Auglýsingin var keypt á
kennitölu Bflasölu Austurlands og
staðgreidd, alls rúmar 52 þúsund
krónur. Smári Sigurjónsson, eigandi
Bflasölu Austurlands kannast hins
vegar ekkert við málið. Þar sem aug-
lýsingin var staðgreidd er ekki hægt
að rekja slóð dularfulla mannsins
sem keypti hana.
Verðið út í hött
„Það er hvergi verið að selja þessa
bfla á þessu verði. Þetta er alveg út í
hött,“ segir Smári um verðið sem
gefið er upp í auglýsingunni. „Auk
þess er ég hvorki með umboð fyrir
svona bfla né að selja þá. Kollegar
rm'nir fyrir sunnan eru einnig brjál-
aðir yfir þessu þar sem þetta hefur
haft áhrif á viðmiðunarverð á amer-
ískum pallbflum.
bfla í einhvern tíma. Ég get ekki
ímyndað mér hver sé tflbúinn í að
leggja í þennan kostnað, einungis til
að trufla mína vinnu.“
íhugar að leita réttar síns
„Eg er að fliuga hvort ég eigi að
leita réttar míns í þessu máh, en veit
að það verður erfitt þar sem enginn
veit hver þessi maður er. Ég ber eng-
an kala til Fréttablaðsins, enda þýð-
ir lítið að hengja bakara fyrir smið.“
Smári segir að viðbrögð fólks hafi
verið ólýsanleg, sumir hafi haldið
skammarræðu yfir honum fyrir að
svara seint í símann en aðrir hafi átt-
að sig strax á að þetta gæti ekki verið
rétt.
Ætlar að auglýsa aftur
Samkvæmt heimildum DV sagði
dularfulli auglýsingamaðurinn, eftir
að hann hafði staðgreitt auglýsing-
una, að hann myndi koma aftur á
„Kollegar mínir
fyrir sunnan
eru einnig
brjálaðir yfir
þessu þarsem
þetta hefur
haft áhrifá við-
miðunarverðá
amerískum pall-
bílum."
föstudag og borga fyrir aug-
lýsingu sem ætti að birtast í
laugardagsblaðinu. Það er
því ljóst að hann er tilbú-
inn að fara með kostn-
aðinn við þennan hrekk
í yfir hundrað þúsund krón-
ur.
Þetta er því dýrt spaug.
johann@dv.is
PICKUP ÚTSALA
Vegna aukins framboðs á Pickup bílum og fallandl eftirspumar hofum
við fjóra Ameriska Plckupbila á miklum afslættl.
Bíiarnir bjóðast á kostnaðarverði eða frá kr. 2.700.000.
(ATHI Bilar frá USA er án ábyrgðar)
Smári Sigurjónsson bílasali Var |
fórnariamb dularfulls manns sem
auglýsti blla tilsölu hjá Smára.
Hnífurinn var 11 sm langur
Vítisengill var í lífshættu
Læknar staðfestu fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í fyrradag að Jón
Trausti Lúthersson, vítisengill og
Fáfnismaður, hafi verið í h'fshættu
þegar hann var stung-
inn með hnífi við að
verja vinkonu sína í
Mosfellsbæ. Aðal-
meðferð í málinu fór
fram í héraðsdómi
þar sem farið var yfir
frásögur vitna. Kon-
an sem Jón Trausti
reyndi að vernda er ■
fyrrverandi sam-
býliskona ofbeld-
ismannsins sem
heitir Heimir Sigurðsson.
Ríkissaksóknari ákærir Heimi
fyrir tilraun til manndráps. Læknar
sögðu meiðsli Jóns Trausta hafa ver-
ið lífshættuleg en við réttarhöldin
kom fram að hnífurinn sem Heimir
Heimir Sigurösson Idómssal i gær.
Hann er kærður fyrir tilraun til manndráps.
notaði er 11,5 sm langur. Heimir
upplýsti fyrir dómnum að hann
hefði vísað lögreglunni á vopnið en
í fyrstu var hann ófús til að hjálpa til
við rannsóknina.
Dómsuppsaga er væntanleg í
málinu og þá kemur í ljós hve þung-
an dóm maðurinn sem abbaðist
upp á fyrsta Vítisengil íslands hlýtur.
Löggan slegin vegna próflokafagnaöar
Foreldrar útveguðu
áfengið
Lögreglan í Vestmannaeyjum er
slegin eftir að stór hópur ungmenna
safnaðist saman til að halda upp á
próflok við Hrafnakletta síðastliðinn
laugardag.
Á vef lögreglunnar segir að á ann-
að hundrað ungmenni hafi safnast
þar saman. Áfengi var gert upptækt
hjá þeim sem ekki höfðu aldur til
drykkju. Einhver ungmennanna
sögðu að foreldrar þeirra hefðu keypt
handa þeim áfengið.
Tryggvi Kr. Ólafsson lögreglufull-
trúi segir ekki hafa komið til umræðu
enn að halda fund með foreldrum í
Vestmannaeyjabæ vegna málsins.
Hann segir það ekki í verkahring lög-
reglunnar að bera ábyrgð á bömun-
um heldur sé það fyrst og fremst for-
Fór vel fram Lögreglan ÍVestmannaeyjum
undrast aö engir foreldrar hafi komiö til eftir-
lits. Einungis Þorvaldur Viöisson prestur virö-
ist hafa haft áhyggjur afvelferö krakkanna.
eldranna. Um var að ræða árlegan
viðburð þeirra sem klára tíunda
bekkinn, að sögn Tryggva.
Annað sem stakk lögregluna var
að krakkar undir 16 ára, allt niður í 13
ára, komu á svæðið. Sumir, að eigin
sögn, í þökk foreldranna. Lögregla
vísaði, að því er talið er, um hundrað
krökkum tmdir 16 ára frá gleðskapn-
um, sem annars fór vel fram.