Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2005, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2005, Blaðsíða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ2005 17 Ótryggðurá ofsanraða Ökumaður bifhjóls var stöðvaður á 162 kílómetra hraða á klukkustund á Kringlumýrar- braut rétt íyrir ellefu á mánu- dagskvöldið. Þar er 80 kiló- metra hámarkshraði. Að sögn lögreglunnar reyndi ökumaðurinn að komast undan en náðist snögglega. Hjólið reyndist ótryggt og voru skráningarnúmer því fjarlægð. Ökumaðurinn má búast við þriggja mánaða leyfissviptingu enda á tvö- földum hámarkshraða, sem og 70 þúsund króna sekt. Þá eru margir enn á nagla- dekkjum en sekt við því er 5000 krónur. Yfirheyrslur standa enn yfir Skýrslutökur lögregl- unnar af vitnum að morðinu í Hiíðarhjalla hafa engu bætt við þá vit- neskju sem lögregla hafði um málið. „Þetta hefur frekar verið til að skerpa þá mynd sem við höfð- um,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögreglu- þjónn í Kópavogi. Hann segir yfirheyrslur hafa gengið ágætlega þrátt fyr- ir ýmsa tungumálaerfið- leika en langflest vitni eru Víetnamar að uppruna. Yfirheyrslum yfir árás- armanninum, Tién Ngu- yen, er ekki lokið en hann hefur enn ekki játað. Kveðjustund Ásdísar Ásdís Halla Bragadóttir hætti formiega sem bæjar- stjóri Garðabæjar í gær þegar hún veitti arftaka sín- um Gunnari Einarssyni „lyklana“ af bæjarstjóra- skrifstofunni. Gunnar not- aði tækifærið og greindi frá því að samþykkt hafði verið í bæjarráði um morguninn tillaga sem felur í sér um- talsverðar breytingar á þjónustu við börn frá eins árs aldri til tólf ára í Garða- bæ. Kostnaður vegna breyt- inganna verður um sjö milljónir á þessu ári og 28 milljónir í heildina. Barinní bústað Til átaka kom innan hóps framhaldsskóla- nema af höfuðborgar- svæðinu í sumarbústað í Rangárþingi eystra að- faranótt sunnudags. Samkvæmt vef lögregl- unnar á Hvolsvelli mun einn aðili hafa verið tals- vert illa útleikinn eftir líkamsárás en náð að flýja. Sá er grunaður er um verknaðinn var handtekinn og látinn sofa úr sér í fanga- geymslu á Hvolsvelli. Hópurinn mun hafa leigt bústaðinn til að fagna próflokum. Málið er talið upplýst. Sonur Kristínar Guðríðar Hjaltadóttur í Yrsufelli vill búa áfram með móður sinni, hvort sem það verði í tjaldi eða bíl, til dauðadags. Þeim hefur verið boðið að fara á heimili fyrir geðsjúka og fatlaða á landsbyggðinni. Ætla ao bua saman til dauðadags „Við förum alltsaman sem við þurfum að fara. Það breytist ekki. Ekki í okkar lífi." Mæðginin í Yrsufelli, sem hafa verið rekin burt af heimilum sín- um frá því þau komu frá Keflavík fyrir áratug, hyggjast fjárfesta í tjaldi á næstunni. Félagsbústaðir vísa þeim á dyr um mánaða- mdtin í Yrsufelli 7 vegna undirskriftalista allra nágranna þeirra. Þeim hefur verið boðið að búa á stofnunum fyrir fatlaða, annars vegar, og aldraða með geðveilu, hins vegar. Búseta þeirra nærri öðr- um hefur alltaf endað illa. Nú síðast sökuðu þau nágranna sína meðal annars um líflátshótanir og morð- tilraunir. Nágrannamir saka þau um sífelldar árásir sem einkennast af vænisýki. „Við viljum ekki fara á stofnun eða sambýli," segir Antonio Pass- ero, 37 ára gamall sonur Kristínar Guðríðar Hjaltadóttur. „Ráðgjafinn uppi í Mjódd kom með pappíra og sagði mér að skrifa undir. Ég sagði honum sjálfum að skrifa undir. Þá átti að senda okkur á stofnun," segir hann. Stofnanirnar í boði er annars vegar Hólabrekka í Hornafirði, sem er sambýU í sveitinni fyrir þroska- hamlaða, og hins vegar Ás í Hvera- gerði, sem er ætlað öldruðum fólki með geðraskanir. „Þeir eru alltaf að reyna að þvinga okkur til að fara á stofnun," segir Kristín Guðríður mæðulega. Saman til dauðadags Kristín og Antonio hafa búið saman frá því hann fæddist vorið 1968. Þau hafa verið flæmd úr fjölda íbúða og búið í bíl um skeið. Kristín segist hafa fengið kal í fótinn og hjartabilun í bflnum. Antonio segist hafa ofkælst, en öryggisvörð- ur Securitas hjálpaði honum. Þau ætla að vera saman í gegnum súrt og sætt til dauðadags. „Við förum allt saman sem við þurfum að fara. Það breytist ekki. Ekki í okkar lífi,“ segir Kristín. Sjálfúr leitar Antonio ekki að kærustu, „enda liggur ekkert á“, eins og móðir hans segir. í bílinn Mæðginin vísa í sjálfsákvörðun- arrétt sinn og hyggjast búa frjáls í bifreið sinni og hafa tjald til vara. „Ég er nú ekki alveg svo klikkaður að ég fari inn á stofnun fyrir tím- ann. Ef ég bý á stofnun þá verð ég sveltur. Við tökum bara okkar ákvarðanir sjálf og förum í bflinn. Ég bjó heilt ár í bflnum, ekki þess- um sem ég á núna, heldur öðrum," segir Antonio. Daga sína nota mæðginin til að vafra um miðborgina. Bæði eru þau öryrkjar og hafast oftast við nærri Hlemmi á daginn. Þau fara út snemma morguns og koma heim við lok venjulegs vinnudags. Á Hlemmi Antonio segist vilja leiðrétta nágranna sína í YrsufeUinu. „Þeir fara með ósannindi þessir nágrann- ar og láta eins og við ger- um allt en þeir ekkert," segir hann. „Við förum út klukkan átta á morgnana og komum heim klukkan fimm og erum lítið fyrir fólki," segir Kristín Guð- ríður. Og nú segjast mæðgin- in fengið nóg af Félagsbústöðum. Leiðin Uggi óumflýjanlega í bílinn. „Við skulum aldrei, aldrei, aldrei aft- ur sækja um íbúð hjá þeim. Því ég hef reynslu af því. Þeir setja okkur innan um einhverja tóma rugludalla æ ofan í æ,“ segir Antonio. Sveitadraumur Sigurður Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Félagsbústaða, segir það almennt að taka verði tillit til allra nágranna. „Almennt séð þurf- um við að taka tillit til fólksins sem býr í húsinu. Það geta komið upp illindi mifli fólks, jafnvel óbrúanleg. Þá verður annar aðilinn að víkja. Ef fólk er ekki húsum hæft verður að laga það,“ segir hann. Sigurður framkvæmdastjóri vill 14: Keflavík, fluttu út sjálfviljug vegna nágranna. 1994: Lödubifreið við Borgarkringluna. 1995: Lödubifreið við BSÍ. 1995: Síðumúla 21, rétt inn og út aftur. Ágúst 1995: Yrsufell 13, flæmd út. 1995-2002: Vatnsstígur 12, flutt út. 2002: Blesugróf, flutt út. 2002- 2003: Yrsufell 3, flutt út. 2003- 2005: Yrsufell 7, rekin út. ekki upplýsa hvort mæðginin verði útilokuð frá Félagsbústöðum vegna ítrekaðra brottvísana. Nú liggur leið þeirra í bflinn, en í honum bjuggu þau við Borgar- kringluna og BSÍ á árunum 1994 til 1995. Lausnin á heimilisvanda mæðginanna er ekki fundin nema til skamms tíma, líkt og Sigurður segir: „Einhvers staðar verður fólk að búa." Og Kristín Guðríður vlll helst búa með syni sínum í sveitinni, en Antonio hefur réttindi á dráttarvél. „Sveitin er besti staðurinn því hvorki hundurinn né beljan kjafta frá," seg- ir hún, og vonar það besta. „Ein- hvers staðar er góður maður. Það eru ekki allir slæmir í þjóðfélaginu." jontrausti@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.