Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2005, Blaðsíða 32
IR11.JÚNÍ 2005 Helgarblað DV [ Þorvaldur Bjarni Krúnurakaðurog vinsælli en nokkru sinni. Bjarki Gunn- laugsson Eftir- sótturllktog bróðirhans. svolengisen menn muna. Robbi Chronic Alltaf krúnurakaður og alltafjafn flottur. [ Ómar Ragnarsson Greiddi lengi velyfir en hefursættsig við hárleysið. Hallgrfmur Helgason Var • lengiaönáfótfestu í ilistaheiminumen ; ernúmeðþeim virtari.Kannskivin- sæidirnar hafí auk- ist með hár- —------- missin- Jón Ársæll Einn virtasti sjónvarpsmaö urlandsinsog mikill sjarmör. uin. Egill Ólafsson Löng- um talinn einn kyn- þokkafyllsti karlmaður landsins þrátt fyrir að hafa verið sköllóttur Fyrir ekki svo mörgum árum þótti það mikið feimnismál hjá karl- mönnum að vera sköllóttur. Allt var reynt til að sporna við hár- missinum. Hárkollur, undralyf og hárígræðslur virðast nú aftur á móti vera á undanhaldi. íslenskir karlmenn virðast hafa sætt sig við hið óhjákvæmilega og sem dæmi eru margir af kynþokkafyllstu og eftirsóttustu mönnum lands- ins nauðasköllóttir. DV leitaði álits hjá nokkrum fag- mönnum. Ekki er langt síðan sköllóttir menn gengu með veggjum og neituðu að horfast í augu við hið óhjákvæmilega. Þeir voru sviptir karlmennskunni upp að vissu marki og reyndu allt hvað þeir gátu að halda í hárið. Nú er öldin önnur. Það þykir ekkert tiltökumál að vera hárlaus og raunar virðist það vera orðið að tískufyrirbæri, svo langt sem það nær. Um þetta eru þrír fagmenn í hárgreiðslubransanum sem DV ræddi við í vikunni sammála. Snoðkollar í tísku „Þetta hefur breyst mikið á síðustu árum og menn eru orðnir óhræddir við að sýna bara skallann. Það er einhver ákveðin stemning í þessu og menn hugsa frekar þannig að fyrst hárið er farið að þynnast þá sé best að taka það bara allt af. Svo eru stuttar og snoðklippingar yflrleitt í tísku á sumrin þannig að ég myndi alveg segja að sköllóttir menn væru gjaldgengir í tískunni núna,“ segir Gummi, hárgreiðslumað- ur á Mojo. „Maður sér varla mann lengur sem greiðir yfir en samt reyna margir að sporna við því að fá skalla. Sumir nota sjampó sem styrkir það hár sem eftir er og gerir það þykkara þannig að þetta eru aðallega íyrirbyggjandi aðgerðir," segir Gummi sem er á báðum áttum varðandi hárígræðslu. „Það munu aldrei allir þora að horfast í augu við að missa hárið og taka það skref að verða algerlega sköllóttir. Mér finnst samt oft svo áberandi ef menn eru með ígræðslu, en það er misjafnt. Maður hef ég séð þetta gert vel og ef menn komast til fagmanns sem gerir þetta virkilega vel, þá er ekk- ert nema jákvætt um það að segja," segir Gummi að lokum. Allt eða ekkert „Að vera sköllóttur er eitthvað sem menn eru bara hættir að skammast sín fyrir. Hérna áður fyrr reyndu menn allt til þess að halda í hárið en ef menn reyna að safna hári í hliðun- um og greiða yfir skallann nú til dags, þá er það virkilega mikið „turn off“. Ég myndi t.d. deyja ef ég sæi einhvern tví- tugan Ómar Ragnarsson niðri í bæ. Að greiða yfir er miklu meira fráhrindandi en að vera sköllóttur," segir Óli Boggi, hárgreiðslumaður á Solid í Reykjavík. „Aðalmunurinn á því sem gildir núna og fyrir nokkrum árum síðan er að þetta er ekkert feimnismál lengur. Þetta er líka auðvitað tengt tískunni," segir Óli Boggi sem er alveg til- búinn að skrifa upp á að það sé í tísku að vera sköllóttur. Hann er ekki hrifinn af hárígræðslum en segist þó öðru hverju rekast á menn sem hafa reynt slíkt. „Maður sér einn og einn þannig en þá er þetta svona svip- að og að vera á gerfigrasvelh, það sést frekar greinilega að þetta er ekki alvöru. En maður skilur svo sem vel að menn reyni ýmislegt þegar þeir eru kannski farnir að missa hárið um tvítugt. En mikill meirihluti sættir sig bara við þetta, kýl- ir bara á þetta og tekur allt af þegar það er farið að þynnast mikið. Mér finnst það í raun og veru það eina rökrétta," seg- ir Óli Boggi. Engin skömm „Það var jafnvel horft á eftir mönnum með skalla hérna fyrir ekkert svo löngu en það er allt breytt. Að vera með skalla er eitthvað sem menn skammast sín ekkert fyrir í dag og það er algengt að menn snoði sig alveg, hvort sem þeir eru sköll- óttir eða ekki. Það er samt meira í tísku hjá yngri kynslóðinni en þessir eldri eiga kannski erfiðara með að sætta sig við þetta og grípa til ráða eins og að greiða yfir. En það er að líða undir lok," segir Ragnar Jónassön hárgreiðslumaður á Space í Kópavoginum. „Ef hárið fer að þynnast það mikið hjá ungum mönnum að það fer að sjást áber- andi mikið í skallann, þá mæli ég bara með að taka allt af. Menn eiga misjafn- lega erfitt með að taka þá ákvörðun en að mínu mati er fátt annað hægt að gera. Að vera með ekkert hár er alltaf betra en t.d. að vera með hárkollu. Að vera sköllóttur er ekkert feimnismál í dag og því fylgir engin skömm eins og var hérna einu sinni," segir Ragnar að lokum. I Jói Idolkynnir I Hárið minnkar í en vinsældir Æ hans sjálfs vaxa ífl ogvaxa. Tryggvi Guðmunds- [U son Aldrei verið betri en I dag enda nauða- | sköllóttur. Pn Kristján Finnboga- son Verður bara betri með aldrinum, hvort sem er I útliti eða inni á fótbolta- vellinum. Baldur Þór- hallssson Lætur hárleysið ekkert þvælast fyrir sér. Felix Bergsson Hárlaus en eftir- sóttur af báðum kynjum. Arnar Gunnlaugs- son Einn heitasti pip- arsveinninn i bænum þrátt fyrir að hafa misst hárið löngu fyrir þrltugt. Ragnar á Space Segir eina ráðið að taka allt af þegar farið er að sklnaí skallann. Gummi á Mojo Seg- ir sköllótta menn vera gjaldgenga í tlskunni þessa dagana. D\ Helgarblað LAUGARDAGUR Tómas , Lemarquis Myndlistarmað- I urinn og leikar- I inn Tómas þykir I mjög sjarmer- 1 andi þrátt fyrir iaðþjástafsjúk- dómi sem veldur þviaðhanner hárlaus með HEYRUMST! Auglýsingin þín nær til mikilvægasta markhópsins BLT (Bylgjan, Létt 96,7 og Talstöðin) Rás 1 & 2 18-49 konur allt landið Kl. 7:00 - 17:00 83% íslenskra kvenna undir fimmtugu stilla á Bylgjunna, Létt 96,7 eða Talstöðina í viku hverri Sf/iBVL'oJAtÚ' Xétt 96,7 Rctlti Iö<’in...(illtn)! Samkvæmt könnun Gallups í mars 2005 Bubbi Aldrei eftirsóttari en einmittnú. Síðasta tangókvöldið í Iðnó í bili Tangókvöldin kvö í allan vetur hafa svokölluð tangókvöld verið haldin í Iðnó. Síð- asta tangókvöldið í bili verður ann- að kvöld og við hæfi þykir að enda þetta með stæl og því verður engu tíl sparað. öllum er velkomið að stíga nokkur spor á gólfinu en að- gangseyrir er 1500 krónur. Fyrst fer fram stutt leiðsögn sem stendur á milli klukkan átta og nfu. Það er tilvalin leið fýrir byrjendur að kynnast grunnsporunum og fyrir lengra komna að riija upp. Að því loknu mun Tangósveit lýðveldins svo stíga á stokk. Sveitin er skipuð nokkrum valinkunnum tónlistar- Óli Boggi á Solid Veitfátt Ijótara en menn sem eru I afneit- un og reyna að greiða yfir skall- ann. Ólafur Egill Egilsson Er einn eftirsóttasti pipar- sveinn Reykjavlkur þrátt fyrir að þjást afalopecia sem veldur hárleysi. Gisli Einarsson Sköll- óttur sveitamaður sem hefur unnið sig inn I hjörtu þjóðarinnar. Gauji litli Sættir sig við hárleysið og lítur bara vel út. Stemgrímur J. Sigfússon Virðist verða beinskeytt- ari eftir því sem hárunum fækkar. ■ontia Amar Björnsson Lét allt flakka þegar hárið fór að þynnast og hefur aldrei litið beturút. mönnum s.s. Hjörleifi Valssyni fiðluleikara, Tatu Kantomaa band- oneonleikara, Ástvaldi Traustasyni harmónikuleikara, Vigni Þór Stef- ánssyni píanóleikara og Gunnlaugi T. Stefánssyni kontrabassaleikara, en þeir munu leika í um klukku- stund áður en aðalatriðið hefst Þá munu viðstaddir fá að njóta snilli argentísku tangódansaranna Ceciliu Pugin og Mariano Galeano. Þau þykja sérlega fær á sínu sviði og alla helgina verða þau einmitt með tangó- námskeið í Kramhúsinu. Tangó Hlé verður gert á tangókvöld- unum sem haldin hafa verið I Iðnó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.