Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 Fréttir DV Tók ríkisendur- skoðandaátal Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk- ingarinnar, greindi frá því í sjónvarps- fréttum í gærkvöldi, að Halldór Ásgrfms- son forsætisráð- herra hafi kallað Sigurð Þórðarson ríkisendurskoðanda á sinn fund. Þessi fundur forsætis- ráðherra og ríkisendur- skoðanda átti sér stað skömmu áður en Sigurður mætti til fundar við fjár- laganefnd, síðastliðinn miðvikudag. Forsætisráð- herra kynnti í gær niður- stöður Ríkisendurskoðunar um hæfi sitt á blaðamanna- fundi í ráðherrabústaðn- um. 'f :■ Byggtí Reykholti Útht er fyrir að mikið verði um framkvæmdir í Reykholti í Borgarfirði á næstunni. Hafist er handa við byggingu eins parhúss en auk þess er búið að skipuleggja nýja íbúðargötu fyrir tíu einbýlishús. öllum lóðunum nema einni hefúr verið ráðstafað. Nýja gatan hefur fengið nafnið Hall- veigartröð eftir sambýhs- konu Snorra Sturlusonar. Þetta verða fyrstu íbúðar- húsin sem byggð eru í Reykholú í um aldarfjórð- ung. Skólastjórn- endur í Eyjum fúlir Á fundi skólamálaráðs Vestmannaeyja barst bók- un frá skólastjórnendum grunnskóla og leikskóla bæjarins, þar sem alvarleg- ar athugasemdir voru gerð- ar við þau vinnubrögð sem viðhöfð eru vegna fyrirhug- aðrar sameiningar grunn- skólanna undir eina yfir- stjórn þann fyrsta ágúst á næsta ári og leikskólanna í byrjun næsta árs. Skóla- stjórnendur harma að bæj- arstjórn Vestmannaeyja skuli samþykkja stefnu- mörkun sem raskar starfi þessara stofnana án ahrar samræðna við skólastjóm- endur. 26 ára Suðurnesjamaður, Karl Filip Geirsson, var í gær dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir fíkniefnainnflutning. Hann játaði sök í málinu, en hefur nú snúið baki við hörðum heimi fíkniefna. 19 mánuðir liðu frá handtöku til dómsupp- kvaðningar og segir Karl mikla vanlíðan hafa fylgt biðinni. „Ég á eftir aö sakna dóttur minnar gííurlega" Karl Filip Geirsson var í dag dæmdur til tveggja ára fangelsisvist- ar fyrir fíknieftiainnflutning. Karl játaði að hafa lagt á ráðin um hann ásamt Pétri Steinþðri Gunnarssyni. Þeir stóðu að baki inn- flutningi á 1000 e-töflum og 131,63 grömmum af kókaíni. Efnin voru send í pósti 4. febrúar í fyrra en dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fimmtán mánuðum síðar. Karl segir í samtali við DV að hann hafi ætlað að borga skuldir áður en hann færi í meðferð. Þetta hafi verið liður í baráttu hans við ffkniefni, en hann var handtekinn þann 15. febrúar. „Ég er að standa mig núna," segir Karl, sem hefur nú snúið baki við fíkniefhum. Þeir sem dæmdir voru fyrir beina aðild að innflutningnum ásamt Karh voru Vilhjálmur Vil- hjálmsson í tveggja ára fangelsi, Pét- ur Steinþór Gunnarsson í 21 mán- aða fangelsi og L’Houcine Bouhlah í 12 mánaða fangelsi. Friðrik Þór Bjarnarsson var dæmdur í 18 mán- aða fangelsi fyrir að hafa, ásamt Vil- hjálmi, fjármagnað kaupin. Rebekka Jóhannsdóttir var dæmd í 6 mánuði skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa náð í sendinguna á pósthúsið í Keflavík. Petra Ingvarsdótúr var sýknuð af ákæru um að hafa tekið vísvitandi við 90.000 krónum sem Bouhlah hafði unnið sér inn fyrir fíkniefnasölu og lagt inn á reikning hennar. Lögreglan plataði þau Bouhlah fór ásamt Petru konu sinni til Rotterdam í Hohandi og keypú efhin. Hann pakkaði þeim inn, meðal annars í vaxkerú sem voru holuð að innan. Síðar pósúagði hann þau th Péturs og voru kertin ásamt öðru látin hta út fyrir að vera vörusending tU blómabúðar Péturs. Lögreglan sá við þeim og kom gervi- efnum fyrir í pakkanum. Petra náði svo í pakkann vegna þess að Pétur guggnaði og þorði það ekki. Karl náði síðar um daginn í pakkann heim tU Petru. Friðrik Þór og Pétur æúuðu að skipta með sér 1000 töfl- um tU heUdsölu, en einnig átti Pétur að fá 30 grömm af kókaíni. Karl átti að fá 100 grömm af kókaíni. Ætluðust til að hann einn yrðisekur „Ég hef ekki talað við vini mína efúr að málið komst upp,“ segir Karl. Þeir sem stóðu með honum í innflutningnum æúuðust úl að hann myndi taka aUa sök á sig. „ViUi var einn af mínum bestu vin- „Ég hefekki talað við vini mína málið komst upp" um og hann æúaðist úl að ég tæki aUt á mig,“ segir hann og á við VU- hjálm. Karl skuldaði fíkniefnasöl- um tvær miUjónir og flutú inn efri- in tU þess að greiða skuld sína áður en hann færi í meðferð. Karl var handtekinn 15. febrúar á síðasta ári, en átú pantaða meðferð þann 18. Vanlíðan í biðinni „Ég er búinn að afplána mikinn dóm með bið eftir dómnum," segir hann. Nítján mánuðir liðu þangað úl dómur féU. „Ég er búinn að af- plána innra með mér með vanlíðan yfir þessu," segir Karl, sem hefur unnið við heUulagnir og reynt að koma sér á strik síðan málið komst upp. Karl segir biðina hafa verið óþolandi og gott að málinu sé lok- ið. Hann hefur verið edrú í fjóra mánuði og er enn í göngumeðferð. „Nú er ég fluttur heim úl mömmu og er með tveggja ára dóttir mína eins mikið og ég get.“ Fjölskylda Karls hefur sýnt honum skUning í þeirri stöðu sem hann hefur komið sér í vegna fíkni- efiianeyslu. Hann kvíðir samt sem áður fyrir því að fara frá dóttur sinni. „Ég á eftir að sakna dóttur minnar gífurlega." segir hann. gudmundur@dv.is Endur hópnauðga Svarthöfði hefur lengi haft grun um að bókstaflega aUt sé að fara tU fjandans. Svarthöfða hefur stundum ftindist eins og hann sé af síðustu kynslóð jarðarbúa. Ef heimsku og græðgi tekst ekki að koma jarðarkúl- unni fyrir kattarnef, ef mönnum tekst ekki að sprengja hnöttinn í loft upp með bjánalegu rifrUdi, mun hlýnun jarðar og bráðnun Græn- landsjökuls færa hér aUt í kaf fyrr en varir. Svarthöfði hefur séð teiknin um þetta í hverjum fréttatímanum á eftir öðrum. Svarthöfði hefur þó sjaldan séð annað eins merki um heimsendi og Svarthöfði stórfrétt Stöðvar 2 á sunnudags- kvöldið. Hann sat eins og lamaður efúr. Kona sagði frá því með ekka að einhleypum kvenöndum væri nú ekki lengur vært á Tjöminni því spólgraðir steggir, aUt upp í átta í hóp, væru farnir að taka sig saman og hópnauðga öndum. Konur hafa víst ítrekað þurft að taka fyrir augun á bömum sínum þegar Ulvirkin eiga sér stað og fólk í Þingholtunum finn- ur oft Ula farnar og blæðandi endur í Hvernig hefur þú það? Ég hefþaö Ijómandi fínt,“segir Rögnvaldur gáfaöi, meðlimur Hvanndals- . | bræðra.„Sólin og blíðan á hug minn og hjarta núna. Ég er að steikja mér kjöt- L búðing og horfa á nágrannann slá garðinn. Það er alltafgaman að sjá aðra vinna.“ görðunum hjá sér. Fómarendur hópnauðgananna. Þetta - að blessuð dýrin séu farin að hegða sér svona - er skýrt merki um yfirvofandi heimsenda. Endurn- ar em yfirleitt heimilislegar og velja sér maka tU h'fsúðar og því er þessi hegðun stórfurðuleg. Ástæðan sem var gefin upp er sú að of margar endur séu á Tjörninni og því er venjulegt lífsmynstur andanna í uppnámi. Sem er ekki mjög trúlegt því ekki getur Svarthöfði séð að end- urnar séu eitthvað fleiri en vanalega. Ástæðan hlýtur að vera sú að end- urnar finna á eigin fjöðrum fyrir þeirri andlegu upplausn sem nú rík- ir í þjóðfélaginu. Þetta virðingar- og skeytingarleysi sem gætir í garð ná- ungans, þessi hlaup á eftir guUgæs- inni og þá viðtukenningu sem enda- þarmsmök njóta. Endumar finna fyrir klámbylúngtmni enda neyðast þær til að horfa upp á helg- arpabbana sem mæta um helgar með krógana. Endumar sjúga í sig spiUtan ú'ðarandann og því fór sem fór. Svarthöfði mun ekki hætta sér á Tjamarbakkann í bráð. Snuthöfói

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.