Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 Fréttir DV Katrín Ásgríms- dóttir systir Halldórs. Situr í stjórn Skinneyj- ar-Þinganess. Halldór Ásgrímsson og fjölskylda högnuðust um 87,5 milljónir á eignatilfærslum í undanfara einkavæðingar Búnaðarbankans. Ríkisendurskoðun telur að um óverulega hagsmuni sé að ræða og segir lögformlega stöðu ráherranefndarinnar óljósa, svo og eðli þeirra ákvarðana sem hún tekur. Fjölskylda Halldórs hagnaöisl um 87,5 milljnnir daginn fyrir einkavæðingu Búnaöarbanka Á fjölmiðlafundi í ráðherrabústaðnum í gær staðfesti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra að fjölskylda hans ætti 25% hlut í útgerðarfyrirtækinu Skinnney-Þinganes. Þegar félagið Hest- eyri, sem var að helmingi í eigu Skinneyjar-Þinganess, seldi hluti sína í fléttu um eignasamsetningu S-hópsins daginn áðvur en Búnaðarbankinn var keyptur, hagnaðist fjölskylda Halldórs rnn 87,5 milljónir króna. Halldór Ásgrímsson upplýsti í gær að hann hefði, þegar Búnaðar- bankinn var seldur, átt 1,3 prósent í fyrirtækinu Skinney-Þinganesi á Höfn í Hornafirði. Hann upplýsti líka að fólk honum skylt hefði átt um fjórðungs hlut í fyrirtækinu. Þetta fyrirtæki lék lykilhlutverk í fléttu S-hópsins til að eignast Bún- aðarbankann og ná yfirráðum í VÍS, sem S-hópurinn vildi ná undan Landsbankanum áður en Samson keypti meirihlutann í þeim banka. Ríkisendurskoðandi er búinn að komast að því, að HalldórÁsgríms- son hafi ekki komið að lykilákvörð- unum í einkavæðingu Búnaðar- bankans, þar sem hann var í veik- indaleyfi. í skýrslu Ríkisendurskoð- unar er líka sagt að hagsmunir Halldórs hafi verið óverulegir þannig að þótt hann hefði komið að ákvörðunum hefði hann ekki verið vanhæfur. Ríkisendurskoðun segir hagsmunina óverulega „Mér hefur sárnað umfjöllunin undanfarna daga," sagði Halldór á blaðamannafundi sem hann hélt í gær. „Ég vænti þess að stjórnar- andstaðan sætti sig við niðurstöðu Ríkisendurskoðunar," sagði Hall- „Mér hefur sárnað umfjöllunin undan- farna daga dór einnig. Á umræddu tímabili var Halldór að ná sér eftir aðgerð á blöðruhálskirtli. Af þessum sökum hafi hann ekki verið við fram- kvæmd málsins eins og efni stóðu til. Málið er sagt hafa verið í höndum Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra. Halldór sór einnig af sér afskipti af máiefnum Skinneyjar-Þinganess og sagði það ekki vera íjölskyldufyrirtæki sitt. Vilja ekki birta hluthafalista I gær hafði DV samband við Að- alstein Ingólfsson, framkvæmda- stjóra Skinneyjar-Þinganess, og bað hann um hluthafalista í fyrir- tækinu. „Við getum ekki gefið þess- ar upplýsingar út án þess að hafa leyfi hluthafanna fyrir því,“ segir Aðalsteinn. Á vefsíðu Framsóknar- flokksins eru íyrirliggjandi upplýs- ingar um fjárhagsleg tengsl kjör- inna fulltrúa flokksins. Þar kemur fram að hlutur Halldórs í Þingey- Skinnanesi er að nafnvirði 15.180.560 krónur. Samkvæmt Aðalsteinn Ingólfsson Framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess vill ekki upplýsa um hlut- hafa i fyrirtækinu. heimildum DV er heildarnafnvirði hlutafjár í Skinney-Þinganesi 650 milljónir. Það er einfalt reiknings- dæmi að finna út að hlutur forsæt- isráðherra nemur 2,33% af heild- inni. Eiga ennþá íVÍS Skinney-Þinganes á ennþá hlut í Hesteyri og Hesteyri á ennþá hlut í Vátryggingafélagi íslands. Vátrygg- ingafélagið er hluti S-hópsins sem keypti Búnaðarbankann og er því stjórnað af Finni Ingólfssyni, fýrr- um ráðherra og varaformanni Framsóknarflokksins. Einnig er Ingólfur Ásgrímsson, bróðir Hall- dórs, stjórnarmaður í Vátrygginga- félaginu. í S-hópnum eru margir af helstu forkólfum Framsóknar- flokksins í viðskiptalífinu; leifar af veldi Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Fléttan í kringum samsetningu S-hópsins áður en Búnaðarbank- inn var keyptur er flókin, þar sem mörg bréf skiptu um hendur og S- hópurinn tók einnig miklum breyt- ingum. Málið er rakið í tveimur ítarlegum fréttaskýringum í tíma- ritinu Frjálsri verslun frá árinu 2002. í þeim greinum er rakið hvernig félagið Hesteyri, skúffufyr- irtæki sem Kaupfélag Skagfirðinga réð yfir, var látið taka forystuna í fléttunni. Hesteyri keypti stóran hlut í eignarhaldsfélaginu Keri, en skipti á þeim bréfum og bréfum í VÍS daginn áður en einkavæðing- arnefnd ákvað að semja við S-hóp- inn um kaupin á Búnaðarbankan- um. Á þessum tíma höfðu bréfin hækkað mikið í verði. Mismunur- inn sem lenti hjá Hesteyri var 700 milljónir. Það þýðir að Skinney- Þinganes fékk í sinn hlut 350 millj- ónir. Þegar fjórðungshlutur fjöl- skyldu Halldórs er reiknaður inn fæst talan 87,5 milljónir. saj@dv.is Fjölskylda Halldórs græðir 87,5 milljónir í undanfara einkavæðingar Búnaðarbankans Skirmey-Þinganes á helming í Hesteyri. Hesteyri kaupir 22,5% hlut í Keri á 2,7 milljarða. Norvik kaupir 25% hlut í VÍS á 3,4 milljarða. Norvik og Hesteyri skipta á þessum hlutum. Mismunurinn er 700 milljónir Hesteyri I hag. Hesteyri selur hlut sinn I Keri til Kaupfélags Skagfirðinga. Hlutur fjölskyldu forsætisráöherra I Skinney-Þinganesi er 25%. Hlutur Halldórs I Skinney-Þinganesi var 1,3 prósent en er nú 2,3 prósent. Hagnaður forsætisráðherra og fjölskyldu hans nemur 87,5 milljónum. Halldór Asgrímsson for- sætlsráðherra Skýrsla Rlk- isendurskoðunar staðfestir fjórðungs eignarhlut Halldórs og fjölskyldu hans ÍSkinney- Þinganesi. DV-mynd Hari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.