Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 40
J-1 J* C ÍJ CJ^)J CO ÍJ Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^wfnleyndar er gætt. '~J -T1 Q r“ Q rj Q SKAFTAHLÍÐ24,10SREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISS05000 5 690710 111' 17 • Ingvar E. Sigurðs- son komst lengra en margir halda í pruf- um fyrir hlutverk meinlætamunksins Silasar í stórmynd- inni Da Vinci lykill- inn. Greint var frá því á sínum tíma að leikarinn Christopher Ecclestone hefði hreppt hlut- verkið og Ingvar væri út úr myndinni. Það var hins vegar ekki rétt og var það að lokum leikarinn Paul Bettany sem fékk hlutverkið. Ingvar fór hins vegar þrisvar sinnum út til London í pruf- ur og var einn eftir með hand- fylli annarra hæfileikaríkra leik- ara þegar Bettany hafði betur... Ég sá hann á Vegamótum! 'T y r>- -. Allt fáriO geckham a Islandi „Nei, hann var aldrei á íslandi," sagði Simon Olivera, fjölmiðlafuil- trúi Davids Beckham, þegar DV náði tali af honum í gær. „Eg skil ekki hvernig sá orðrómur komst á kreik. Hann er í fríi með fjölskyldunni. Þau eru hinum megin á hnettinum." Allt ætlaði um koll að keyra fyrir helgi þegar fregnir bárust af því að David Beckham og Victoria kona hans væru stödd á landinu. Skyndi- lega voru flestir með það á hreinu að Beckh;tm gisti á 101 hóteli eða væri uppi á jökli og búist var við að sam- an myndu þau hjónin ganga inn á tískusýningu Mosaic Fashion í Skautahöllinni. Fótboltastúikur biðu spenntar fyrir utan hótelið. „Við ætlum ekki að fara fyrr en David og Victoria Samkvæmt fjölmiðlafulltrúanum eru þau hinum megin á hnettinum. Island var ekki í kortunum. Beðið eftir Beckham Steipurnarúr Vai biðu fyrirutan Hótel 101 á flmmtudag en sáu ekki Beckham. Fóru að visu sáttar eftir að Eiður Smári gafþeim eiginhandaráritun. við sjáum hann. Við gefumst ekki upp, Valsarar gef- ast aldrei upp," sagði María Rós Arn- grímsdóttir, ein stúlknanna. Aðrir sjónarvottar sóru að þeir hefðu séð Beckham og hringdu inn á útvarps- stöðvar til að segja ffá. Þrátt fyrir ailt fékkst aldrei stað- festing, aldrei náðist mynd. Enda segir Simon Olivera að Beckham hafi aldrei hingað komið. „ísland hefur aldrei verið inni í myndinni hjá þeim. Þau hafa ekki skipulagt ferð þangað," segir Olivera en sam- kvæmt heimildum DV áttu Beck- ham-hjónin bókað herbergi fyrir sig og fylgdarlið sitt á 101 hóteli í júní. Simon vinnur hjá umboðsskrif- stofunni 19 Enter- tainment og hefur séð um fjölmiðla- tengsl Beckham- hjónanna í nokkur ár. Aðspurður hvar þau séu í fríi segist Olivera ekki vilja gefa það upp. „Ég ætla alls ekki að gefa upp hvar þau eru í fríi. Ég vil ekki að pappa- rassíarnir sitji fyr- ir þeim." Nakinn á nýrri Hringbraut Vegfarendur á nýju Hringbrautinni í Reykjavík ráku upp stór augu á hádegi á sunnudag. Nakinn hjólreiðamaður hjólaði eins og óður á nýju brautinni og lét vindinn leika um líkamann. Einn öku- mannanna sem keyrði ffamhjá sagði hafa legið við árekstrum þegar fólk góndi á dýrðina. Seinna um daginn bárust síðan fregnir utan úr heimi þar sem hjól- reiðamenn hvarvetna flettu sig klæðum og tóku þátt í World Naked Bike Ride 2005. Þátttakan var góð í Bretíandi, Ástrahu, Kanada, Bandaríkjun- um, á írlandi, Ítalíu, í Lettlandi og ísrael. Því lá beinast við að halda að nakti íslenski hjól- reiðamaðurinn hefði, líkt og hjólabræðurnir, verið að mótmæla ofurtrú manna á olíu, bílamenningu og óþarfa ofnotkun öku- tækja. Þegar DV grennslaðist fyrir um málið kom hins vegar í ljós að svo var ekki. Þvert á móti. Nakti hjól- reiðamaðurinn var að vinna sér inn aur og leika í auglýsingu. Hann kom nakinn fram fyrir frægðina og líkaði það vel. Hjólað án fata Nakti hjólreiöa- maöurinn á Hringbraut var ekki að mótmæla heldur leika í auglýsingu. Stórskemmdur Þessi Mercedes Benz er frá 1998 og eins og sjá má á mynd- unum erhann vföa illa far- inn afryöi. Ryðgaðir glæsivagnar „í sumum tilvikum er þetta tölu- vert ryð," segir Guðjón Magnússon, verkstjóri fólksbifreiða hjá Ræsi, þegar hann er spurður um fjölmörg ryðtilfelli í nýlegum Mercedes Benz-bílum. Þegar keypt er glæsikerra eins og Mercedes Benz upp á margar millj- ónir býst enginn við því að nokkrum árum síðar þurfi að glíma við ryðvandamál, sérstaklega ekki þar sem þrjátíu ára ryðábyrgð er á bílnum. Þetta er engu að síður stað- reynd með E-týpur af Mercedes Benz sem framleiddir voru á árun- um 1996-2001. „Það er ekki ástæða til að innkalla bflana heldur eiga eigendur að láta okkur vita," segir Guðjón. Ryðið sem herjar á þessa bfla kemur innan frá og ryðgar bfll- inn allur í gegn. Samkvæmt gæðalista J.D. Power, eins virtasta fyrirtækis sem metur gæði bfla, hefur Mercedes Benz hríðfallið í gæðum undanfarin ár. Ljóst er að þetta ryðvandamál verður ekki til þess að hífa Benz aft- ur upp listann að toppnum. www.ht.is ÖRUR - www.ht

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.