Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 15
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 15 Ræðiráfengií Þórshöfh Jón Kxistjánsson heil- brigðisráðhenra ræðir meðal annars áfengisstefiiu við starfsfélaga sína á Norður- löndunum í Þórshöfii í Fær- eyjum í dag. Auk þess ræða ráðherramir starfsemi frjálsra félagasamtaka á sviði velferðarmála og fijálst framtak einstaklinga. Loks er komið inn á norræna við- bragðsáætlun á sviði smit- sjúkdóma og nánari sam- vinnu á því sviði. Gestirtil sóma í Eyjum Það var lítið að gera hjá lög- reglunni í Vest- mannaeyjum um helgina þrátt fyrir að fjöl- menni hafi verið í bænum. Þar var haldið pæjumót ÍBV sem og golf- mót í Toyota-mótaröðinni á golfvelhnum í Herjólfsdal. Þrátt fyrir þetta mikla fjöl- menni þurfti lögreglan ein- ungis að hafa afskipti af ökumönnuin sem brutu í bága við umferðarlögin og vegna eins áreksturs. Gestir Eyja um þessa helgi voru að sögn lögreglu sér og sinni íþrótt til sóma. Ungmenni með kannabis Fjögur ungmenni á aldrinum 15-17 ára voru í fyrradag handtekin með lítilræði af kannabisefn- um í fórum sínum. Þau sátu í kyrrstæðum bíl við frystihúsið Gunnvöru þegar lögreglumenn bar að garði. Þótti lögreglu háttalag ungmennana grunsamlegt og fundu þeir tæplega 1 gramm af kannabisefnum í bílnum. Ungmennin voru færð á lögreglustöð þar sem þau voru yfirheyrð að við- stöddum fulltrúa barna- verndaryfirvalda. Máhð er litið alvarlegum aug- um vegna sökum, enda um unglinga að ræða. Hjörleifur vill að álæðið stoppi „Menn ættu að stoppa sig af í þessu álæði hér á landi,“ segir Hjörleifur Gutt- ormsson nátt- úrufræðingur um álver Alcoa á Reyðar- firði. Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms um að eldra umhverfismat sem fara átti eftir við iðju ál- versins yrði fellt úr gildi. „Dómurinn þýðir það að þessi verksmiðja er á byrj- unarreit, að því er varðar formlega málsmeðferð. Því að það sem hefur verið gert hefur ekki staðist lög," segir Hjörleifur. Einnig segir hann alltof stóra framkvæmd vera þar á ferð sem feli í sér félagslega röskun samfélagsins þar. „Hún er engu skárri en náttúrufarsröskunin við Kárahnjúka." Tíunda ráðstefna CRU, alþjóðlegrar málmiðnaðarstofnunar, var sett í gærmorgun Mótmælendurvið Nordica Hotel „Hér er eitthvað leynimakk í gangi, hér er verið að leggja h'nurnar fyrir málmiðnaðinn í heiminum," sagði Valur Hreinsson, meðlimur Náttúruvaktarinnar, þar sem hann stóð fyrir mótmælum við Nordica Hotel í gær. Þar fór fram 10. alþjóð- lega ráðstefria CRU, sem er alþjóð- leg upplýsinga-, greiningar- og rannsóiaiarstofnun í málmiðnaði. „Að Valgerður skuli setja þessa ráð- stefnu er fáránlegt og lýsir stefnunni sem verið er að taka í þessum mál- um. Þessi stóriðjustefna er dauða- dómur yfir íslenska náttúru og ís- lenskt atvinnuh'f. Þessu viljum við mótmæla." Valur sagði fáa hafa vitað af þess- ari ráðstefnu. „Farið var hljótt með ráðstefiiuna svo að ekki væri hægt að bregðast við. Við fféttum af henni um helgina og fórum að undirbúa okkur." í tilkynningunni sem Náttúru- vaktin deildi út til ráðstefnugesta kom fram að fyrirtækin sem stæðu að CRU væru að leggja fsland undir sig. Þar er einnig spurt hvort það skjóti ekki skökku við að einn lykil- fyrirlesaranna væri frá Landsvirkj- un, sem er þjónustufýrirtæki í eigu landsmanna. Mótmæhn voru ffiðsamleg, en þau fólust í því að meðlimir Nátt- úruvaktarinnar réttu gestum ráð- stefnunnar frétta- tilkynningu þar sem stóriðjustefn- unni var mótmælt. Einnig fóru nokkrir mótmælendur að fánastöngum þar sem erlendum fán- um var flaggað og drógu fánana í hálfa stöng. kjartan@dv.is Mótmælendur Gagnryndu Valgerði Sverrisdóttur fyrir að setja ráðstefnu alþjóðlegrar málmiðnaðarstofnunar. RUV Vertu viss um að fá betri kökuna BLT STENDUR FYRIR BYLGJUNA, LÉTT 96,7 OG TALSTÖÐINA Hlustendur okkar eru í þínum markhóp - um 70% hlustenda Bylgjunnar, Létt 96,7 og Talstöðvarinnar eru yngri en 50 ára. Samkeyrðar auglýsingar á BLT tryggja að skilaboðin þín komast áleiðis til mikilvægasta markhópsins. Er nokkur spurning hvora kökuna þú velur? mmz Réttu lögin...alltaf! Talstöðin FM 90,9 Samkvæmt könnun Gallups í mars 2005.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.