Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 39
DV Síðasten ekkisíst ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNl2005 39 Brady-fjölskyldan Hægrimenn í Bandaríkjunum llta breytingar á sam■ félaginu illu auga. Þeir telja hinum hefðbundnu fjölskyldugildum ógnað lllterþaðallt og bölvað Bandarískir gáfumenn úr hægri- geiranum sitja á ráðstefnu - og þeir eru sannarlega ekki að lýsa gleði sinni yfir makt og miklu veldi lands síns, eina risaveldisins sem nú er við lýði. Nei, þeir hlusta á og taka undir kolsvartar dómsdagsspár. Hnignun og hrun Bandaríkjanna eru yfirvof- andi, segja ræðumenn, og ástæðan er sú að samfélagið er að klofna. Hæg er leið til helvítis Skammsýnir og skaðlegir frjáls- lyndisapakettir, segja þeir mælsk- ustu, hafa talið okkur trú um að við eigum að stunda fjölhyggju og játast undir það að fjölmenningarþjóðfé- lag sé gott. Fjölbreytni sé betri en eining. En þetta er, segja þeir, hitm versti háski. Ef til dæmis tekst að fá það almennt viðurkennt að Banda- ríkin séu ríki tveggja heimstungu- mála, ensku og spænsku, þá er það miVill áfangi á leið til glömnar. Við verðum að gera allt til að efla og styrkja hinn bandaríska samnefnara ef við viljum ekki molna í sundur og hverfa í hafrót sögunnar eins og svo mörg heimsveldi á undan okkar. Bandarískt þjóðfélag sýnist raun- ar mjög klofið í áhrifasvæði frjáls- lyndra og fhaldssamra afla, eins og öllum mátti ljóst verða af þeirri heift sem einkenndi slaginn um forseta- embættið nýverið. En einhvern veg- inn er eins og allir sameinist svo um að Bandaríkin séu í mikilli kreppu og allt að fara á versta veg. Fijálslyndir svokailaðir eru hneigðir til stórra aihæfmga um að samfélagsþróunin valdi miklum usla í sálarlífi Bandaríkjamanna, Árni Bergmann endurvekur umræðuna um þjóðarmorðið sem gleymdist. Hægrímenn halda uppi miklum og há- værum harmatölum um að fjölskyldan og kristindómurinn séu í hættu. ekki síst uppvaxandi kynslóðar. Pilt- ar sem stúlkur eigi í vaxandi mæli erfitt með að fóta sig í harðnandi heimi og séu að farast miljónum saman úr „einangrun, þunglyndi, einsemd og örvæntingu" eins og einn metsöluhöfundurinn segir. Hægrimenn taka þessu illa og segja að aUskonar fijálslyndismenntapakk sé að eyðileggja þjóðina með sjálfs- vorkunnarhjali. Þeir ráðast af hörku gegn „fórnarlambamenningunni" eða „meðferðarmenningunni“ sem fylli landið af sérffæðingum í að vinna gegn streitu, sorg, depurð og tilvistarangist og grafi þar með und- an getu nýrra kynslóða til að takast á við heiminn. Syndin er lævís og lipur. En hægrimenn eru engu ódug- legri við að mála skrattann á vegginn og það einatt í bókstaflegum skiln- ingi, því þeir taka mið af trúarlegum viðhorfum. Þeir tala ekki um „ein- kennamynstur“ og enn síður um af- leiðingar stéttaskiptingar þegar þeir rekja sínar hugmyndir um það hvað helst amar að Bandaríkjamönnum samtímans. En þeir tala því meir um syndina - um leið og þeir gera, eins og andstæðingar þeirra í fijálslynd- isherbúðum, sem mest úr því hve viðkvæmir landar þeirra séu fyrir skaðlegum áhrifum. Hægrimenn halda uppi miklum og háværum harmatölum um að fjölskyldan og kristindómurinn séu í hættu. Að þeim sæki margir slóttug- ir óvinir og stórsyndarar. Kvenrétt- indabaráttan er talin stórhættuleg, einkum vegna þess að hún berst fyr- ir rétti kvenna til fóstureyðinga sem er eitur í beinum hægrisinnaðra trú- manna. Poppmenningin fær á bauk- inn með ásökunum um lauslæti í siðferðilegum efnum. Klámvæðing- in fær náttúrulega sinn skerf, enda kannski ekki nema von, en í meðför- um hinna kristnu hægrimanna er komið á afar hæpnum tengingum milli hennar og baráttu fyrir réttind- um samkynhneigðra. Nefiia má til dæmis glósur á borð við þessar: „Samfélagið er í heljargreipum hommalostans" - eða: „Fem- ínisminn stendur í ástarsambandi við lesbíustúss og fósturmorð." Pólitísk lævísi. Semsagt: illt er það allt og bölvað - hvert sem litið er. Hvernig stendur á öllu þessu krepputali? Vitanlega er margur pottur brotinn í bandarísku samfélagi og lfkast til er sá stærstur sem tengist því hve frjálsar hendur „græðgin í forstjóraherbergjunum" hefur haft til að margfalda auð þeirra sem ríkastir eru og skilja venjulegt fólk eftir atvinnulaust og án eftirlauna. En það er dæmigert fýrir krepputalið að þeir hlutir eru ekki áberandi í umræðunni. Ann- arsvegar ræður ferðinni vanda- málaiðnaðurinn sem gerir stórt og smátt að einstaklingsvanda sem kallar á meðferð sérfræðinga svo sem fýrr var rakið. Hinsvegar má benda á þau pólitísku slóttugheit hægrimanna sem komu vel fram í kosningabaráttu Bushmanna fýrir skemmstu. En þeim tókst að láta fá- tækt fólk og atvinnulaust í fyrrum iðnaðarbæjum, sem afleiðingar hnattvæðingar og sóknar í ódýrt er- lent vinnuafl hafa leikið grátt, gleyma öllum þeim raunum og ástæðum þeirra. Þess í stað tókst að sannfæra ótrúlega stóran hluta af þessu fólki um að fjölskyldulíf þess og kristindómur væru í miklum háska fyrir sakir samsæris lauslátra, guðlausra og laumusósíalískra há- menningarmanna f liði demókrata. Þar með þyrftu hinir fátæku og þeir ríkismenn sem stjóm Bush vill allt fyrir gera - ekki síst lækka enn skatt- heimtu af þeim sem er h'til fýrir - að sameinast um að bjarga guðs kristni og öllu því sem gott er og amerískt. En um leið heldur sá söngur áfram að þótt réttur maður, þ.e.a.s. Bush, hafi sigrað séu vélabrögð syndar- innar og agenta hennar jafn háska- leg sem fyrr og verði allir að halda vöku sinni. é é ^ Frekar hægi vindur , Frekar hægur vindur Frekar h: ? Ida <9 £2>/ +13 Hægur vindur Hæaur vindur Sruá0narStatUSqU0er " Frekár'hægur höfuðborgarsvaeðinu. Kalt I >^v.Ur*‘ í 1 er fýrir norðan. Svíar kvarta einnig undan kulda. Enn einn daginn erhlýrraí höfúðborg okkar en þeirra. Mikil aukning hefur verið í pöntunum á sólarlandaferðum þarlendis, en að sama skapi koma líkafaerriþeirra hingað. Frekar hægur vmdur itiifn _____r hægur vindur H anna Stokkhól Helsinki -• 24 Jakob Bjarnar Grétarsson • Fjöimargir furða sig á niðurstöðu dómar- ans Allans Vagns Magnússonar að vísa máli Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólm- steini Gissurarsyni fr á í Héraðsdómi Reykjavíkur. Viðbrögð Hannesar em á einn veg: Auðmjúkur gerir hann hvað hann getur til að lægja öldumar. Og gott betur því hann hefur fundið ákjósanlegan blóra- böggul. Þannig kennir hann nú Eiríki Jóns- syni, blaðamanni á Hér ognú, um öll sín vand- ræði því þegar Hannes var að leggja drög að þessu umdeilda verki skrifaði Eiríkur frétt í Fréttablaðið þar sem sagði að Hannes ætlaði að gera sér mat úr kvennamálum Nóbelsskáldsins. Þá strax varð andskotinn laus að mati Hannesar og hann lentur í stríði við aldraða ekkju sem hann gat aldrei unnið... • Þeir sem spá í hin pólitísku spil sjá nú fýr- ir óvænta vendingu í kortunum. Og þetta lesa þeir úr þeirri miklu ákefð sem Bjöm Ingi Hrafnsson, aðstoðar- maður Halldórs Asgrfmssonar, leggur í grein sem hann ritaði í síðusm viku í Blaðið. Þar fjallar Björn Ingi um skipufagsmál í Reykjavík og gæti greinin verið vísbend- ing um að Bjöm Ingi æth sér í slag til að steypa hinum mjög svo umdeilda Alfreð Þorsteins- syni í borginni. Á móti kemur að metorðastigi Framsóknarflokksins er tveggja þrepa trappa og ekki ætti að vefjast fýrir Birni Inga að hlaupa upp hana vilji hann í landsmálin... • Magnús Geir Þórð- arson, leikhússtjóri á Akureyri, ætlar sér hvergi að gefa eftir og veðjar á tiltölulega traust hross þegar væntanlegir leikhús- gestir em annars veg- ar. Nú er verið að leggja drög að upp- færslu á Litlu Hryllingsbúðinni nyrðra og hefur þegar verið gengið frá ráðningu Vigdísar Hrefiiu Páls- dóttur í aðalhlutverkið. Þama rætist gamall draumur Vigdísar Hrefnu, því þegar hún var lítil stúlka setti pabbi hennar, Páll Baldvin Baldvinsson, þetta verk upp við miklar vinsældir ásamt Sigurjóni Sighvatssyni - róm- aða sýningu sem gekk vel. Þá ákvað Vigdís Hrefiia að þetta vildi hún gera. Meðal annarra leikara í þessari upp- færslu LA em sonur biskupsins Guð- jón Davíö Karlsson, vinur hans Jó- hannes Haukur Jóhannesson og auð- vitað Þráinn Karisson... • Gfsli öm Garðarsson og félagar hans í Vestur- porti æfa nú sem mest þeir mega sína útgáfú af Voyzek sem frumsýnd verður í september í Borgarleikhúsinu. Hóp- urinn lauk nýverið við að taka upp kvikmyndina Kvikyndi í leikstjóm Ragnars Bragasonar. Þar leikur Gfsli öm tvo karaktera, annan feitan - hinn mjóan, og lagði hann sig allan fram, fitaði sig fýrir hlutveriáð og svo grennti. Fer ekki miklum sögum af því hvor Gíslinn féll konu hans, leikkon- unni Nfna Dögg Filipusdóttur, betur í geð - sá feiti eða mjói. Hins vegar þurfti Gísli Öm að lita á sér hárið og var ljóshærður með eymalokka. Sá fékk ekki margar stjömur á heimili Gísla Amar en sjálfur er hann sagður „£fla sig massa vel" í því útlitinu...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.