Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 Fréttir DV Ný merki í umferðinni Samgönguráðuneytið óskar eftir áliti almennings og hagsmunaaðila á drög- um að breyt- ingu á reglu- gerð um um- ferðarmerki. Veigamestu breytingarnar fela í sér að kynnt eru tvö ný umferðar- merki: Merki fyrir hestakerruleigu og fyr- ir barnaleikvöll. Almenn- ingur getur gert athugasemdir við fyrirhug- uð merki og sent til sam- gönguráðuneytisins fyrir 20. júní. Fóríbankann hinumegin við götuna Ingimar Haraldsson, sem lét af starfi aðstoðar- sparisjóðs- stjóra í Spari- sjóði Haftiar- fjarðar í kjölfar stjórnarskipt- anna þar, hóf í gær störf hjá Landsbanka íslands. Ingi- mar er nú að- stoðarútibús- stjóri hjá Landsbankaútibú- inu í Fjarðargötu, en það er aðeins nokkrum skrefum ffá Sparisjóðnum. Ingimar vann I Sparisjóði Hafnar- fjarðar í þrjátíu ár ár áður en honum var bolað út í kjölfar stjórnarskiptanna. Upphaf lcosninga- baráttunnar? Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi R-listans. „Ég bið nú fyrir þjóðinni efhún situr uppi með heilsárs kosn- ingabaráttu. Meira að segja Spaugstofan tekur sér sumar- frí. Ég veit ekki hvort borg- arpólitíkin komist i þær hæðir sem Spaugstofan hefurá meðal þjóðarinnar. En það reynir á það núna hvort það sé hugsanleg sparnaðarleið fyrir sjónvarpsstöðvarnar að vera með stjórnmálahornið í stað annarra skemmtiþátta. Ég held það sé best fyrir alla að blða til vors." Hann segir / Hún segir „Kosningabaráttan erhafin. Við byrjuðum hana á mjög já- kvæðum nótum þegar við boðuðum til fundar um nýjar og spennandi hugmyndir í skipulagsmálum. Síðan er Ijóst að það verðurhaldið prófkjör hjá okkur I Sjálfstæðisflokkn- um og það erkomin dagsetn- ing á það. Það er bara ár í kosningarog auðvitað eru flokkarnir að setja sig í stell- ingarog markmiðið hjá okkur erað vinna borgina." Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Hrepparígur á Suðurlandi endaði með þeim ósköpum um helgina að einn lá í valnum. Selfyssingar og Hvergerðingar deildu og eftir nokkur átök kastaði Gunnar Þórbergur Harðarson gangstéttarhellu í andlit Jóns ívars Jóhannssonar. Jón ívar hlaut mikla áverka af völdum þessa, hann kjálkabrotnaði og missti nokkrar tennur og 40 spor voru saumuð í andlit hans. Deilur milli Hvergerðinga og Selfyssinga, aðfaranótt síðasta laugardags, voru upptök hatrammra átaka sem enduðu með því að Jón ívar Jóhannsson, 24 ára Selfyssingur, fékk hellu í andlitið. Sauma þurfti fjörutíu spor í andlit Jóns auk þess sem hann missti nokkrar tennur og kjálkabrotnaði. Sá sem kastaði hellunni, Gunnar Þórbergur Harðarson, tvítugur Hvergerðingur, segist hafa verið að verja sig fyrir Jóni Ivari og fjórum fé- lögum hans. Gunnar segir þá hafa ráðist á sig eftir að hann hrópaði niðrandi orð um Selfyssinga þegar nýbúið var að henda honum út af Pakkhúsinu á Selfossi. Deilur milli Selfyssinga og Hvergerðinga höfðu blossað upp á Pakkhúsinu og var Gunnari fleygt út af staðnum eftir að hafa blandað sér í átökin. Selfyssingunum ekki skemmt „Þegar mér var hent út öskraði ég í átt að staðnum: Helvítis Selfyss- ingar,“ segir Gunnar Þórbergur Harðarson. „Skyndilega varð mér litið til hliðar og sá þá hvar Jón fvar og félagar hans, sem allir eru frá Sel- fossi, stóðu álengdar. Þeim var greinilega ekki skemmt." Gunnar segir Jón ívar hafa veist að sér svo að hann hafi óttast mjög um heilsu sína. Jón ívar hafl tuskað hann til og farið létt með það enda mikill stærðarmunur á þeim Jón fvari og Gunnari. Gunnar er um 170 sentímetrar en Jón ívar tæpir tveir metrar. Gunnar segist hafa náð að slíta sig frá Jóni fvari með herkjum og hlaupið frá honum. Jón ívar hafi elt hann og verið í þann mund að ná honum þegar Gunnar tók upp hellubrot og kastaði í átt til Jóns ívars. „Hann kom bara á svo mikilli fart," segir Gunnar, miður sín yflr þessu. Hellan skall í andlit Jóns ívars með alvarlegum afleiðingum. Faðir fórnarlambsins er lög- regluþjónn. „Ég er rosalega sætur,“ sagði Jón ívar um áverkana á andliti sínu þeg- ar DV náði af honum tali í gær. Hann vildi sem minnst tjá sig um málið en kvaðst heldur illa útleikinn eftir viðskipti sín við Gunnar. Að- spurður um átök þeirra á milli vildi Jón ívar lítið segja og bar við minnisleysi. Faðir Jóns ívars, Jóhann Valgeir Helgason, er lögregluþjónn á Sel- fossi og óttast Gunnar að það geti „Hetvítis Setfyssingar" haft áhrif á rannsókn málsins, að sannleikurinn um aðdraganda árás- arinnar verði ekki leiddur í ljós. Sjálfur kveðst Jóhann hafa litlar áhyggjur af því. „Ég er bara óbreytt- ur lögregluþjónn," segir hann og bætir við að rannsóknin verði lík- lega færð til annars lögregluemb- ættis. Þessu fagnar Gunnar enda óttast hann um framvindu málsins. Hann getur búist við þungri refs- ingu. „Mér þykir rosalega fýrir þessu," segir Gunnar. „Þetta átti aldrei að fara svona. Þetta hefði samt aldrei gerst hefði Jón ívar leyft mér að hlaupa í burtu." Gunnar kveðst ekki hafa orðið fýrir neinum hótunum vegna máls- ins en segist viss um að hann fari ekki aftur til Selfoss í bráð. andri@dv.is Lilja hafði sigur gegn Birni Lilja Sæ- mundsdóttir fékk hnekkt fyrir dómi úrskurði um að hún væri ekki hæftil að ættleiða barn. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra Ihugar næsta leik. Dómsmálaráðuneytið ákveður næsta leik i máli Lilju Sæmundsdóttur Björn útilokar ekki að áfrýja dómnum Bjöm Bjarnason dómsmálaráð- herra útlokar ekki að ráðuneytið muni áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Lilju Sæmunds- dóttur gegn íslenska ríkinu. Héraðs- dómur dæmdi úrskurð ráðuneytis- ins, um að Lilja væri ekki hæf til að ættleiða barn, ógildan á þeim gmndvelli að ráðuneytið hefði ekki rökstutt úrskurð sinn nægilega vel. Björn sagði í samtali við DV að hann útilokaði ekld að ráðuneytið myndi áfrýja dómnum, en slíkt sé gert í samráði við ríkislögmann á hverjum tíma. „Athugun málsins er ekki lokið og því hvorki unnt að svara af eða á um það efni - aðilar hafa ákveðinn frest til að taka ákvarðanir um þetta," sagði Björn. Aðspurður hvort hann telji að ráðuneytið hafi beðið álitshnekki með þessum úrskurði taldi hann ekki svo vera. „ í málum af þessu tagi verður að draga mörk. Dómarinn telur, að dómsmálaráðuneyt- ið hafl ekki fært nægilega sterk rök fyrir þeim mörkum, sem dregin vom í þessu máli. í niður- stöðu dómarans felst mikilvæg leiðsögn um hvernig staðið skuli að afgreiðslu. Síðan málið var til með- ferðar í ráðu- neytinu hefur verið gefin út reglu- gerð 1 því skyni að fækka álitaefnum," sagði Björn. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Lilju, sagðist fagna dómnum þegar DV ræddi við hann í gær. Hann er hins vegar stadd- ur í útlöndum, hafði ekki séð úrskurðinn og gat því ekki tjáð sig um innihald hans. „Það verður spenn- andi að sjá hvað ráðuneytið gerir næst. Hvort það gefur út leyfi fyrir Lilju eða fer með málið lengra," sagði Ragn-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.