Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 33
Menning DV ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 33 Óvæntur listamaður kemur fram í dagsljósið „Verkið er í rauninni samvinnuverkefni Gauja litla og Odds Roth sem er barnabarn Dieters Roth,“ segir Gaui litli, sem nú er farinn að láta til sín taka á sviði myndlistar. f gær var hann að setja upp mikið listaverk eftir sjálfan sig í Listasafni Reykjavíkur í Hafnar- húsinu. Gaui litli hefur starfað með Oddi í leikmyndum um hríð. „í staðinn fyr- ir að henda hlutum sem verða afgangs við leikmyndagerðina hefur Oddur kennt mér að búa til hagnýt listaverk úr allri þessari óreiðu. Hann er náttúrlega alinn upp af afa sínum og náttúrlega föður, Birni, og hefur auga fyrir þessu. Ég er þannig lærisveinn barnabarns Dieters og meðlimur í Dieter Roth-akademí- unni - sem þykir mikill heiður." Gaui segist nú fá útrás fyrir sínar Ustrænu hvatir, en þetta tiltekna verk flokkast undir innsetningu og er titillaust. Þar getur að Uta járnkarl á mótorhjóli. Gaui segir svo frá að þetta sé samsett verk úr tveimur leikmyndum, annars vegar Essó- auglýsingu og svo auglýsingu fyrir Umferðarstofu. Umferðartengt vérk um járnkarl á ferð. Verkið er tU sölu og ætla þeir fé- lagar að láta andvirðið renna tU góðs málefhis. „Við vUjum festa kaup á í einum torfæruhjólastól fyrh fatlaða. Það er við hæfi. Spurning hvort Essó kaupi ekki verkið og fatlaðir fái að njóta þess að hreyfa sig í náttúr- unni? Því undir niðri er maður aUtaf að hugsa um heUbrigði og hreysti." Verkið er partur af samsýningu nemenda í Roth-akademíunni í Portinu verður tU sýnis tíl 21. ágúst. Leiksýningin Mýrarljós hlaut 11 tilnefningar til Grímuverðlauna og nefna menn innan lóikhús- heimsins að framlag Grikkjanna, Vovolis og Zamoulakis, hafi skipt sköpum. Tinna Gunnlaugsdóttir leikhússtjóri upplýsir að Þjóðleikhúsið standi í samningaviðræðum við þá. „Við eigum í samningaviðræðum við þá. Þeir koma væntan- lega ekki á næsta leikári en hugsanlega þarnæsta," segir Tinna Gunnlaugsdóttir leikhússtjóri. Mýrarljós virðist ætla að einoka Grímuverðlaunin sem verða veitt 16. þessa mánaðar. Leikritið hefur fengið hvorki meira né minna en eUefu tilnefningar og eru margir sem DV hefur rætt við innan leik- hússheimsins á því að þar skipti framlag tveggja Grikkja sköpum. „Tveir grískir leikhúsmenn, Þanos Vovolis og Giorgos Zambou- lakis, hafa ekki aðeins veitt hér inn- blástur, heldur opnað dyr að nýrri leiktækni og nálgun á persónum. Hér virðist hafa verið farin sú leið að vinna frá gervinu í átt að persón- unni,“ segir Elísabet Brekkan í lof- samlegum dómi DV um Mýrarljós í Þjóðleikhúsinu. Grískur harmleikur og nú- tímaverk í blöndu Grikkirnir eru þó ekki áberandi þegar GrímutUnefningar eru ann- ars vegar. Þó er VoloUs tUnefndur tU verðlauna fyrir búninga. í sjálfu sér þarf ekki að koma á óvart áð gott komi frá Grikklandi þegar leik- hús er annars vegar. Þar stendur jú vagga sjálfrar leiklistarinnar. „Það var gaman að fylgjast með vinnu þeirra og þeir voru leikhópnum ákveðin vítamínsprauta. Það er örvandi að fá inn nýja aðferðafræði og nýja sýn,“ segir Tinna, en eins og áður sagði standa vonir tíl þess að þeir tveir komi á ný til starfa við leilchúsið á þarnæsta leikári. „Við erum að skoða möguleika á sýningu sem væri einhvers konar samspil af því elsta og því nýjasta í leikhúsi. Tefla saman grískum harmleik og nútímaverki í einni og sömu sýningunni. Þeir kæmu þá að því eða sú er hugmyndin." Leikhústákn og útlendingar Þrír álitsgjafar sem DV leitaði tU vegna Grímuverðlaunanna fyrir skömmu eru aUir á því að Mýrarljós muni hreppa verðlaunin sem besta sýningin. Ari Matthíasson mark- aðsfræðingur og leikari segir Mýr- arljósið með flestar tUnefningar og hljóti að vinna þetta. „Þarna styðst ég við ískalda tölfræði því Héri Hérason hans Stebba stubbs [Stef- áns Jónssonar] er besta sýningin." Elísabet Brekkan, leUdistargagn- rýnandi DV, nefnir Mýrarljós hik- laust er hún er spurð hvaða sýning vinni Grímuna sem besta sýningin. „Þetta var svo mikið leikhús. Og unnið svo mikið og vel með leik- hústáknin sem er fágætt á íslandi. Enda voru þetta útlendingar sem stóðu fyrir því.“ Og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir útvarpskona er sama sinnis. „Ég veit ekki hvort ég hef nokkurntíma upplifað annað eins í íslensku leikhúsi, nema Halldóra Björnsdóttir í Mýrarljósi SegirGrikkina ótrúlega færa leikhúsmenn. kannski þegar ég var smástelpa og Bryndís Schram var Mjailhvít en Helga Valtýsdóttir vonda stjúpan." Mýrarljós tekið upp í haust HaUdóra Bjömsdóttir leUdcona er tUnefnd fyrir frammistöðu sína í Mýrarljósi og áhtsgjafar DV em sammála um að hún muni hreppa Grímuna sem besta leikkona leik- ársins 2004-2005. Ragheiður Gyða: „Túlkun Halldóm Björnsdóttur á Hesteri Swan í Mýrarljósi. Án þess að þurfa að hugsa mig um eitt and- Grisku snillingarnir Vovolis og Zamoulakis Þjóðleikhúsið stendur i viðræðum við þá um að komaaftur tii starfa á þarnæsta leikári. bak við eyrað og hugsanlega verða nokkrar sýningar á verkinu í haust. „Það fer eftir Æ því hvernig um semst. artak. Gefur bókstaflega auga leið og kærar þakkir fyrir mig.“ HaUdóra vildi ekki tjá sig um vinnuna í tengslum við þessa upp- færslu, en staðfesti þó að Grikkimir Vovolis og ZambouJakis hefðu ver- ið ótrúlega færir leikhúsmenn. Tinna Gunnlaugsdóttir veltir því fyrir sér hvort ekki væri ráð að koma fyrr fram með GrímutUnefh- ingarnar. „Það væri gaman að geta verið með Mýrarljó í gangi núna. Að hafa tök á að sýna nokkrar sýn- ingar þegar svo skemmtilega vUl til að ein og sama sýningin fær 11 tU- nefningar." Víst er að fjölmargir vUdu gjarn- an fá tækifæri til að sjá sýninguna, ekki síst í ljósi þess sem Tinna seg- ir. Þjóðleikhússtjóri er með það á Tinna Gunnalaugsdóttir Veltir því fyrir sér hvort tii- nefningar til Grfmuverð- iauna ættu ekki að koma fyrr fram svo áhorfendu hefðu tækifæri til að sjá þær sýningar sem eftirtektar- verðastar teijast. DV-mynd Heiða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.