Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Side 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 17
U':
j
Reykjavíkurborg og lögreglan borguðu hálfa milljón til að kattakonan Ólöf Hulda Marísdóttir fengi
16 ketti sína aftur eftir að þeir voru teknir af henni í febrúar í fyrra. Á föstudag fundust kettirnir í
gámi, þá orðnir 22.
Borguðu hálfa milljón til að
leysa ót ketti kattakonunuar
„Lögreglan og borgin greiddu þann kostnað sem safnast hafði
íyrir á meðan kettimir vom í fóðrun og umsjá í Kattholti," segir
Ingimundur Einarsson, hjá Lögreglunni í Reykjavík, en kettim-
ir sem frelsaðir vom úr gámi á föstudaginn höfðu áður verið
teknir af eiganda sínum, Ólöfu Huldu Marísdóttur. Nú em
kettimir aftur komnir í Kattholt og fleiri hafa bæst í hðpinn.
„Það hefði verið hægt að
stoppa þetta í febrúar í fyrra," seg-
ir Sigríður Ásgeirsdóttir, hjá Dýra-
verndarsambandi íslands, um
kattamálið sem kom upp á föstu-
dag. í febrúar 2004 tóku yfirvöld
kettina af Ólöfu Huldu Marísdótt-
ur þar sem hún hafði komið þeim
fyrir á Njálsgötunni. Um þremur
mánuðum síðar fékk hún þá aftur
afhenta frá yfirvöldum sem
greiddu jafnframt 500 þúsund
króna kostnað vegna dvalar þeirra
í Kattholti á meðan málið var
rannsakað.
Kettirnir komu aftur
„Ég sagði, þegar hún fékk kett-
ina aftur, að þessa ketti myndi ég
aftur sjá og það hefur komið á
daginn," segir Sigríður Heiðberg,
forstöðukona í Kattholti, um at-
burðina. Þær nöfnur eru sammála
um að ábyrgðin í málinu liggi hjá
yfirvöldum og segja Ólöfu Huldu
tii varnar að hún reyni að gera vel
við kettina en hún hreinlega ráði
ekki við að annast svo marga ketti.
Ólöf vildi ekki tjá sig um hvers
vegna hún geymdi 22 ketti með
búslóðinni sinni í gámi við Bílds-
höfða.
Kettirnir leystir út
Sigríður Heiðberg segir að lög-
maður Ólafar í fyrra málinu, Inga
Björg Hjaltadóttir sem starfar á
DP lögmönnum, hafi haft sam-
band við sig og tilkynnt sér að hún
ætti að afhenda kettina aftur. „Ég
sagðist ekki gera það nema gegn
greiðslu og þá fór hún að hóta mér
einhverju á lögfræðimáli. Ég stóð
á mínu og var tilbúin að fara í
fangelsi fyrir dýrin ef til þyrfti,"
segir Sigríður en svo komu lög-
regla og heilbrigðisyfirvöld og
sömdu við hana um hálfa milljón.
„Heildarupphæðin var nú samt
hærri," bætir forstöðukonan við.
„Niðurstaðan fra þeim var að kettirn
ir hefðuháf&pðnógu gott til að
geta verið áfram hjmiganda sínum.
Meö glænýja
kettlinga Nokk-
urra daga gamlir
kettlingar fylgdu
þessu kattarpari
úrgáminum.
Löggan ekki ánægð
með að borga
Ingimundur Einarsson, hjá
Lögreglunni í Reykjavík, segir að
lögreglan hafi farið eftir öllum
settum reglum þegar kettimir
vom teknir á Njálsgötunni en
seinagangur hjá Umhverfisstofn-
un hafi valdið kostnaðinum. „Álit
U mhverfisstofnunar
kom ekki fyrr en
mörgum vikum eft-
ir að búið var að
handsama kett-
ina. Við vom ekki
par hrifnir af því
að sitja uppi með
kostnaðinn en það
náðist sátt í málinu
á milli okkar og
Reykjavíkurborgar.
Niðurstaðan frá
þeim
I Ingimundur Einarsson
| „Við voru ekki par hrifnir af því
| aö sitja uppi með kostnaðinn en I
I það náðist sátt i málinu á milli
I okkar og Reykjavíkurborgar.“
Gamall og lúinn Kettirnir
sýndu ekki mikil viðbrögð þeg-
ar blaðamaður skoðaði þá.
var að kettirnir hefðu haft það
nógu gott til að geta verið áfram
hjá eiganda sínum," segir Ingi-
mundur og tekur fram að eftir
þessa reynslu hafi lögreglan sett
sér nýjar verkreglur í slíkum
málum.
tj@dv.is
Köttur úr gámfnum
Hann var úfinn og illa
farinn þessi þrátt fyrir
að hafa fengið bað í
Kattholti og nóg að
borða.
Sigríður Heiðberg
„Égsagðiþegarhún
fékk kettina afturaö
þessa ketti myndi ég
aftur sjá og það hefur
komið á daginn."
] Karl Karlsson Umhverfisstofnun var lengi
| að skila ályktun sinni þegar kettirnir voru
] teknir í fyrra skiptið og það olli þvi að
I Reykjavíkurborg og lögregla þurftu að
| greiða háa fjárhæð í iausnarfé fyrir kettina.
Elín Kristjánsdóttir í Kattholti fékk rúmgafla í hausinn og slæman heilahristing
Stúlka slasaðist í blóðugum
átökum við gámakettina
„Gerir maður ekki allt fyrir þessi
blessuð dýr?" spyr Elín Kristjáns-
dóttir, starfsmaður Kattholts, sem
fékk rúmgafl í höfuðið við björgun
katta úr gámi á föstudag. Mikil
vinna var að finna kettina sem klór-
uðu og bitu aðra starfsmenn, enda
hræddir eftir rúman mánuð inni í
gáminum. Lögregla, dýralæknir og
meindýraeyðir voru einnig á staðn-
um.
„Aðkoman var hræðileg," segir
Elín Kristjánsdóttir um aðstæðurn-
ar í gáminum við Bíldshöfða á
föstudaginn.
„Kettirnir voru auðvitað skft-
hræddir enda búnir að vera lokaðir
inni í rúman mánuð þannig að það
var ekkert grín að ná þeim og lyktin
var alveg hræðileg. Gámurinn var
stútfullur af húsgögnum og kettirn-
ir voru búnir að míga og skíta úti
um allt," segir Elín sem aldrei hefur
kynnst öðru eins.
„Við vorum að færa til lilutina til
að reyna að komast að köttunum
þegar rúmgaflamir fóru af stað og
duttu ofan á hausinn á mér. Ég fór
strax upp á spítala og í ljós kom að
ég var með slæman heilahristing
enda var ég undir eftirliti til klukk-
an átta um kvöldið, þegar ég fékk
loksins að fara heim," segir Elín um
atburðarásina en björgunaraðgerð-
irnar hófust um hádegisbilið og
Ehn slasaðist um þrjúleytið.
Að sögn Sigríðar Ásgeirsdóttur,
hjá Dýraverndarsambandi íslands,
tók björgun kattanna ahs sex
klukkustundir og lfkir hún verki
þeirra sem tóku þátt í henni við
þrekvirki.
„Aðstoðarstúlka slasaðist, hinir
björgunarmennirnir voru rifnir og
blóðugir því kettirnir vom orðnir
að vhlidýrum eftir þessa ómannúð-
legu meðferð undanfarna 16 mán-
uði," skrifar Sigríður Ásgeirsdóttir á
heimasíðu Dýraverndunarsam-
bands íslands, dýra-
vernd.is.
Sigríður Heiðberg,
forstöðukona í Kattholti,
sagði Elínu hafa mætt til
vinnu á mánudag en
hún bæri merki þess
sem gerðist. „Hún er al-
veg hvít í framan f dag, stúlkan,"
sagði Sigríður í Kattholti.
tj@dv.is
Elín Kristjánsdóttir„V7ð vor-
um að færa til hlutina til að
reyna að komast að köttunum
þegar rúmgaflarnir fóru afstað
og duttu ofan á hausinn á mér.‘
W .