Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Síða 13
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ2005 13
f ,-rin nóii ekkiað gefa heruii brjoít
b'^f'lhæftiloðala upp dóttursina
i 09 hjartaö vmi rífíð úrmér"..
mm
mhil'/j
Áskriftarsími
Einar Örn Thor-
lacius Sveitarstjóri
Reykhólahrepps segir
eðlilegt að hjónin
borgi útsvartilsín.
Slökkviliðið viðbúið hinu versta
Mikill viðbúnaður vegna
ammoníaksleka
Tvö sveitarfélög, sitt hvoru megin við Breiðaijörðinn, deila um rétt til útsvars hjóna
sem eiga lögheimili í Flatey. Fjárhagur þeirra mun vera rót deilunnar. Sveitarstjóri
Reykhólahrepps vill að Hagstofa íslands úrskurði um málið.
Bæjarfélög berjast um
útgeröarmann
„Þetta er helvítis
kjaftæði í bæjar-
stjóranum"
„Maður er bara farinn að halda að maður sé svona vinsæll,“ seg-
ir Baldur Ragnarsson, fyrrverandi útgerðarmaður. Hann er nú
orðinn bitbein tveggja byggðarlaga við Breiðafjörð. Sjálfur býr
Baldur í Flatey og stundar trilluútgerð. Stykkishólmsbær og
Reykhdlahreppur gera tilkall til útsvars Baldurs og konu hans.
Hagstofa fs-
lands mun
innan
skamms
úr-
skurða
um hvort
Baldur og
kona hans
Guðrún
Marta Ár-
sælsdóttir
skuli greiða
útsvar til Reykhólahrepps eða Stykk-
ishólms. Hjónin eru með Iögheimili
í Flatey og vilja því borga útsvarið til
Reykhólahrepps eins og aðrir eyjar-
skeggjar. Þetta vill Óli Jón Gunnars-
son, bæjarstjóri í Stykkishólmi, ekki
sætta sig við. „Þessi hjón búa í
Hólminum, starfa í Hólminum og
ættu því að borga gjöldin sín hér,“
segir Óli. Hann kallar lögheimilis-
breytingar Baldurs og Guðrúnar
leikrit og móðgun við Stykkishólm.
Efnaður útgerðarmaður
Heimildir DV herma áð gremju
bæjarstjórans í Stykkishólmi megi
rekja til þess að Baldur Ragnarsson
hafl rekið útgerð í Stykkishólmi og
efnast nokkuð við það. Bæjarstjór-
ann svíður þvf að útsvar Baldurs sé
greitt hinum megin við Breiðafjörð-
inn, í Reykhólahreppi.
Einar Örn Thorlaciu.s sveitar-
stjóri Reykhólahrepps, segir að úr
því að hjónin séu með lögheimili í
Flatey eigi þau samkvæmt venju að
borga útsvar til Reykhólahrepps.
„Við ætlum því að malda í móinn,"
segir Einar.
Kjaftæði í bæjarstjóranum
Sjálfum þykir hjónunum í Flatey
lítið til þessarar deilu koma. Þau
standa nú í framkvæmdum í Stykk-
ishólmi - eru að reisa sér hús á lóð
sem þau eiga í bænum. „Hann hlýt-
ur að jafna sig á þessu," segir Guð-
rún Marta Ársælsdóttir um bæjar-
stjórann í Stykkishólmi. „En það
hljóta að vera svona mikil verðmæti
í okkur hjónunum," bætir hún
við.
Maður hennar var við veiðar á
Breiðaflóa á triflu sinni þegar DV
náði tali af honum. „Þetta er
helvítis kjaftæði í bæjarstjóranum,"
sagði Baldur og var heitt í hamsi.
„Við borgum okkar gjöld og skatta
og erum ekkert að svflcjast um.“
Baldur segir málið einfalt að sínu
mati. Þau hjónin búi í Flatey og eigi
því að borga til Reykhólahrepps.
andri@dv.is
Óli Jón Gunnarsson
Segirhjónin vera með
leikrit og þau móðgi
Stykkishólm.
Lögreglan leitar bensínstöðvarræningja
Vopnað rán í Olís í
Hamraborg
Vopnað rán var framið í OKs í
Hamraborg um sexleytið í gær. Lög-
reglan í Kópavogi fékk tilkynningu
um að maður hefði komið inn á
bensínstöðina vopnaður skrúfjárni
og ógnað þar afgreiðslumanni
stöðvarinnar. Ekki hggur ljóst fyrir
hversu háa upphæð hann hafði upp
úr krafsinu en hann hafði á brott
með sér handfylh af peningum úr
sjóðsvél og hljóp á brott. Hann hvarf
sjónum manna í bifreiðageymsl-
unni undir Hamraborg, þar sem
bensínstöðin er. Ekki er annað vitað
um manninn en að hann var klædd-
ur úlpu og með hettu dregna yfir
höfuð sér. Tveir starfs-
menn voru
vinnu á stöð-
inni en þeir
fengu áfalla-
hjálp stuttu
eftir ránið,
samkvæmt
ferli sem fer
gang við að-
stæður sem
þessar. Rann
sókn
stendur yfir og
leitar lögreglan
mannsins.
við
„Við vorum tilbúnir fyrir það
versta," sagði Birgir Finnsson, sviðs-
stjóri útkallssviðs slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins, sem tók á móti Lag-
arfossi í Grundartangahöfn rétt fyrir
hádegi í gær. Leki kom að gámi um
borð í Lagarfossi þegar hann var
staddur skammt undan Skotlandi og
tóku skipverjar eftir að einn gámurinn
var orðinn hélaður að utan og þvf kom
strax upp grunur um að um ammon-
íaksleka væri að ræða.
„Við gáfum okkur góðan tíma í
undirbúning og mættum vel áður en
skipið kom að bryggju," segir Birgir
sem sagði jafnframt að allt samstarf
lögreglu, Eimskipa, hafnarmálayfir-
valda og annarra sem að málinu komu
hefði verið til fyrirmyndar. Skipið kom
að landi við Grundartanga vegna hag-
stæðrar vindáttar og var bryggjan
rýmd meðan á aðgerðinni stóð.
Fá laun fyrir
áhugamálið
Vinnuskóli Reykjavflcur
hefur ákveðið að bjóða upp
á nýjung. Hún felst í að
gefa unglingum kost á
vinnu við hæfi í sumar. Þeir
16 ára nemendur skólans
sem hafa sýnt framúrskar-
andi árangur á sviðum lista,
íþrótta eða hvaða menn-
ingar sem er fá tækifæri til
að sinna hæfileikasviði sínu
á launum. Sérstaklega er
horft til unglinga sem eiga
erfitt með að sækja vinnu
vegna stiffa æfinga við
áhugamálið.
Góðir í dönsku
Raufarhafnar-
hreppur hefur sent
frá sér tilkynningu á
vefsíðu sinni um
útkomuna úr sam-
ræmdu prófunum. I
hámæli er að Suður-
kjördæmi stóð sig
verst. „Af því að fjöl-
miðlar hafa að undanförnu
verið að bera saman árang-
ur í hinum ýmsu náms-
greinum eftir landshlutum,
má geta þess að t.d. árang-
ur í dönsku í Grunnskóla
Raufarhafnar var í fyrra yfir
meðaltali á Norðurlandi
eystra og í ár yfir lands-
meðaltali," segi á vef
hreppsins og er greint frá
nafni dönskukennarans,
sem er Páh'na Valsdóttir.
Ammoníaksleki Slökkviliðið tók
á móti Lagarfossi í gær vegna
ammóniakslekn íaámi.
„Þegar við vorum komnir inn í
gáminn kom í ljós að krani á einum
af þremur ammoníakstönkum hafði
opnast og þannig lak ammoníakið
út.“ Eiturefnakafarar fóru inn í gám-
inn í sérstökum hh'fðar- og kulda-
göllum og skrúfuðu fyrir kranann.
Eftir það var gámurinn skolaður, en
ammoníak er uppleysanlegt í vatni.
Birgir segir að aðgerðin hafi
heppnast í alla staði vel og ekki hafi
verið mikil hætta á ferðum.
Mánaðaráskrift að DV
og 5 eintök
af Hér&nú
á aðeins
kronur »
á meðan 5 stk. af Séð og heyrt
kosta 1995 krónur.*
Hvort er betri díll?
við bendum þeim sem hafa ahuga a
fólki og brennandi þjóðfélagsmáluin
góðfúslega á aö með áskriff að DV
fylgir nýja blaðið Hér & nú! Fylgstu með
og fáðu dagblað og vikulegt tímarit á
aðeins 2.400 kr. á mánuði.