Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Blaðsíða 35
vmmw rríJÍj
<!Wedding
({ómaniísk gamamnynci
nicö Debra Messing úr
sviil & (iracé’ I>átiúnuin.
KLKL. 7-9-11
6-8.15-10.30
KL 5.45-8-10.15 .8.116
KL 5.45-8-10.15
KL 5.40-8-10.20 8.1.16
INSIDE DEEP THROAT
A10T LIKE LOVE
VOKSNE MENNESKER
CRASH
HITCHHIKER S GUIDE TO THE GALAXY
A LOT LIKE LOVE
HOUSE OF VAX
THE WEDDING DATE
MR. AND MRS. SMITH KL 8-10.15
THE ICE PRINCESS KL 8
THEJACKET KL10
A LOT LIKE LOVE K
A LOT LIKE LOVE Vl| K
HOUSE OF VAX K
CRASH
HITCHHIKER'S GUIDE... K
THE WEDDING DATE
SVAMPUR SVEINSSON ísl. tal
www.sambioin.is
ashton kutcher
amanda peet
FRABÆR
HEIMILDARMYND
UM TEKJUHÆSTU
KLÁMMYND
ALLRA TÍMA,
iNSiD€
HUU5Í4 Gr VyaA
BÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓOA VINATTU!
AKUHt Ytil C ->61 -1666_______KtHflVIK C -IVI 11/0
RIHCUN ( Y<ii 0800
Aron Smári Barber er bílstjóri rauða útsýnisvagnsins sem keyrir um Reykjavík i
sumar. Vagninn er tveggja hæða og hefur vakið óskipta athygli borgarbúa. Hann
segir Perluna vinsælasta áfangastaðinn.
Aron við útsýnisvagninn
Segir bæöi erlenda
feröamenn og Islendinga
koma I vagninn. Aösóknin
aukist líka jafnt c
Stærsti
andshs
Rauði tveggja hæða strætóinn
hefur vakið mikla athygli í Reykja-
vík í sumar. Hann fer á hveijum
degi frá kl. 10 til 16 frá Arnarhóli á
heila tímanum. Hringurinn er alltaf
sá sami, frá Arnarhóli að hvalskipa-
höfninni, þaðan upp í Perlu, að
Kringlunni og Hótel Nordica og
þaðan til baka með viðkomu í Hall-
grímskirkju. Ferðalangarnir fá
heymartæki þar sem hægt er að
hlusta á leiðsögn um borgina á 8
tungumálum, m.a. á íslensku. „Hér
á vinstri hönd er flóamarkaðurinn,
Kolaportið, en þangað er mjög vin-
sælt að fara um helgar," er meðal
þess sem þulurinn segir.
Tveir vagnar eru í notkun og
Aron Smári Barber situr undir stýri
annars þeirra. ,Aðsóknin er að
aukast jafnt og þétt og fólk er ánægt
með þetta," segir hann. „Það er
slatti af íslendingum sem kemur
með, enda flnnst fólki sport að fara
í svona tveggja hæða strætó. Þetta
er náttúrlega stærsti blæjubíll
landsins."
Aron keyrir venjulegan strætó
alla jafna og segir að það sé ekki svo
frábrugðið að aka tveggja hæða
vagni. „Maður þarf aðeins að passa
sig þegar farið er yfir hraðahindran-
ir, enda er bíllinn lágur og fjöðrunin
stíf. Maður þarf líka að keyra hægar
en vanalega."
Fargjaldið er 1500 kr. fyrir full-
orðna og 750 fyrir unglinga og aldr-
aða. Miðinn gildir líka daginn eftir
og Aron segir útlendingana nota sér
strætóinn til að ferðast innanbæjar.
„Þeir hoppa úr og í og nota strætó-
inn til að komast á milli helstu
staða. Perlan er langvinsælasti
áfangastaðurinn. Flestir fara úr þar
og skoða sig um. Koma svo aftur
klukkutíma síðar. Þetta er fyrsta
sumarið sem við erum með þetta.
Túristatímabilið fer í gang af alvöru
á næstu vikum svo þetta lítur bara
vel út.“
Nylon senclir frá sér nýtt lag í dag
Stúlknasveítin Nylon sendir frá
sér nýjan smell í dag, en það er lag-
ið Dans, dans, dans sem dúettinn
Þú og ég gerði frægt hér um árið.
Fyrir þá sem ekki vita var Helga
Möller söngkona dúettsins en Jó-
hann Helgason var söngvari.
Dúettinn var upp á sitt besta
seint á 8. áratugnum og gaf út sína
vinsælustu plötu árið 1979. Það var
platan Ljúfa líf, sem
fÍ5S ÍT^ þykir ein besta
diskóplata sem gef-
in hefur verið út
. . hér á landi. Meðal
■jJwl.:: -i annarra laga sem
T voru á þeirri plötu
|k vonr: Vegir liggja tii
RKhW ailra átta, Dans dans
dans, í Reykjavíkurborg og Villi og
Lúlla.
f þessu lagi njóta stelpurnar að-
stoðar plötusnúðarins Danna
Deluxe en hann hefur unnið upp
grunninn á lag-
inu. Það verður
spennandi að
heyra hyemig
þeim Nyion-
stúlkum mun
takast upp.
Óvinkona bresku fyrirsætunnar Jordan tjáir sig um brúðkaup hennar
Jordan borgar frægu fólki til að mæta í brúðkaup sitt
Fyrirsætan Jordan borgar frægu
fólki fyrir að koma í brúðkaupið sitt.
Þessu heldur erkióvinur hennar,
Jodie Marsh, blákalt fram. Jodie seg-
ir að brúðkaup brjóstabomþunnar
Jordan verði hallærislegt í saman-
burði við sitt, sem verði afar fágað og
fr'nt. Eins og kunnugt er ætlar Jordan
að giftast kærasta sínum Peter
Andre síðar á árinu.
„Brúðkaupið mitt verður hvorki
hallærislegt né heldur opinbert. Jor-
dan á enga fræga vini svo hún verð-
ur að borga þeim til þess að mæta. í
mínu brúðkaupi verður aftur á móti
troðfullt, bæði af frægum og ófræg-
um. Ég verð að vísa einhverjum frá,"
segir Jodie ákveðin.
Jordan hefur ekki enn svarað
þessum ásökunum. Hún ræddi aftur
á móti um ást sína og fíkn í húðflúr í
breskum fjölmiðlum um helgina.
Jordan segist ætla að fá sér 14 slík á
líkamann áður en yfir lýkur. Nú þeg-
ar skartar hún níu myndum og lofar
fimm til viðbótar innan tíðar.
Uppáhaldshúðflúrið hennar er
aftan á hálsinum, en það fékk hún
sér til minningar um bestu vinkonu
sína sem var myrt.
„Ég er komin með níu og langar í
fimm til viðbótar. Það sem er aftan á
hálsinum er uppáhaldið mitt. Besta
vinkona mín var myrt fyrir tveimur
árum og þarna er nafriið hennar
innan í krossi."
Risadagskrá
á Arnarhóli
Tónleikar verða á Arnarhóli
17.júní eins og verið hefur síðast-
liðin ár. Margar af helstu hljóm-
sveitum íslcndinga troða upp og
spanna þær nær alla tónlistar-
flóruna. Margar lleiri samkomur
og tónleikar verða svo um allan
bæ og er tólk beðiö um aö fylgj-
ast með auglýsingum og tilkynn-
ingum urn viðburðina.
Dagskráin á Arnarhóli
16.10 Selrna Björnsdóttir
ásamt danshópi
16.20 Söngvaborg
17.00 Fjöllistamaðurinn
Space Cowboy
17.10 Sönghópurinn Nylon
18.00 Mjólk, 6 og Fúnk
18.15 TheDyers
18.30 ManiaLocus
18.45 We Painted The Walls
18.55 KKBand
19.20 Hjálmar
19.45 írafár
20.15 Papar
20.45 Stuðmenn
21.30 Mínus