Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. JÚU2005 Fréttir 0V Alltífínahjá Eskimo Eins og DV greindi frá í gær varð heimasíða Eskimo Models fyrir árás tölvu- hakkara. Hakkarinn heijaði á fréttahluta síðunn- ar. Þegar DVhafði samband við Eskimo í gær hafði þess ekki orðið vart að hakkari hefði herjað á síðuna. Bjamey S. Lúðvíksdóttir hjá Eskimo sagði að straxyrði farið í að lagfæra síðuna. Sem betur fer virðist hakkar- inn ekki hafa náð að vinna mikinn skaða á síðunni, því um miðjan dag í gær voru engin ummerki um tölvu- hakkarann og síðan sem ný. Stúlkurstálu tölvu Anna Nicole Grayson og Ellen Elmarsdóttir, stúlkur á nítjánda ári, voru á þriðjudag sakfelld- ar í Héraðsdómi Reykja- ness fyrir þjófnað á far- tölvu. Þær voru ákærðar fyrir að hafa brotist inn í kjallaraíbúð við Fum- grund í Kópavogi þriðju- daginn 1. mars 2005 og stolið þaðan fartölvu. Þær hlutu 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár. Þeim var gert að greiða Tryggingamiðstöðinni 110.000 krónur. Dýr80 grömm Sigurður Óskar Bárðarson, ríflega þrítugur Kópavogs- búi var í vikunni sak- felldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fíkniefhalagabrot. Upphaf málsins var að lögreglan í Kópa- vogi gerði gerði húsleit á heimili hans að Holtagerði 3 í Kópavogi þann 21. febrúar á þessu ári. Við húsleitina fúndust rúmlega 80 grömm af amfetamíni. Hann var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. RtVKJAKÉBM Milljarða skuldir Kjartan Már Kjartans- son, bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins í Reykja- nesbæ og bróðir Magnúsar Kjartanssonar tónlistar- manns, hefur fengið svör við fyrirspum sinni um heildarskuldbindingar Reykjanesbæjar vegna einkaframkvæmda á veg- um bæjarins. í svarinu kemur fram að skuldbind- ingar bæjarins em 517 milljónir króna á núvirði þann 1. júní 2005. Ef samn- ingamir verðii óbreyttir til 28 ára yrðu leiguskuldbind- ingar til 1. júní 2033 2,95 milljarðar. Ólafur Haraldsson. framkvæmdastjóri hjá SPRON, hefur beitt sér fyrir því að umbreyta einhverjum ljótasta múrvegg í miðborginni í fagurt listaverk. Til fyr- irmyndar í alla staði. SPROIU málar fangelsisvegg Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis hefur upp á sitt eindæmi tekið að sér að mála fangelsisvegg- inn á Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustfg. Með því sparar SPRON rfkinu umtalsverðar fjárhæðir og grípur til eigin ráða þegar ríkisvald- ið sinnir ekki umhverfinu sem skyldi. „Við höfum verið að gera upp útibú okkar við Skólavörðustíg og huguðum þá einnig að því hvernig mætti bæta nánasta umhverfi," segir Ólafur Haraldsson, fram- kvæmdastjóri hjá SPRON, sem þurfti ekki að lít lengi í kringum sig við Skólavörðustíginn til að reka augun í illa farinn og útkrotaðann fangelsisvegginn sem blasti bæði við honum og viðskiptavinum sparisjóðsins. Ungir listamenn „Múrarar hafa verið að slétta vegginn og gera hann kláran fyrir málningu. Síðan er hugmyndin að fá ungt myndlistarfólk, helst úr Listaháskólanum, til að skreyta vegginn og gæti það þá orðið hluti af námi þeirra," segir Ólafur sem unnið hefur að þessu verkefni í nánu samstarfi við fangelsismála- yfirvöld: „Fangelsismálayfirvöld hafa verið mjög samvinnufús vegna þessa verks og þetta kemur öllum til góða,“ segir Ólafur Haraldsson sem leggur meira upp úr fögru um- hverfi en embættismenn ríkisins sem fyrir löngu hefðu átt að vera búnir að ganga sómasamlega frá fangelsisveggnum sem brátt verður orðinn eitt allsheijar listaverk. Fangar og bankafólk Starfsfólk útibús SPRON við Skólavörðustíg hefur lengi búið í góðu návígi við Hegningarhúsið og af efri hæðum sparisjóðsins má horfa ofan í sjálfan fangelsisgarð- inn þar sem fangar fá sér frískt loft. Hefur myndast gott samband á milli starfsmannanna og fanganna þar sem aðilar eru farnir að heilsast með augnaráðinu einu og jafnvel með því að kinka kolli. Ólafur Haraldsson við fangelsisvegginn Styttist! aö þessi Ijóti veggur verði einn sá fegursti í miðborg Reykjavíkur efhugmyndir ' ' 7;'- Takk, Davíð íslenska þjóðin þarf á Davíð Oddssyni að halda. Eftir hryðjuverk- in í gær fann Svarthöfði óöryggistil- finningu grípa um sig. Verða Islend- ingar næstir í röðinni? Eru einhverj- ir af okkur látnir? Um kvöldið mætti Davíð svo bæði í ísland í dag og síð- ar í Kastljósið. Hann var fyrsti við- mælandinn í báðum fréttatímum. öruggur og rólegur, næstum föður- legur, róaði hann taugar áhorfend- ans; útskýrði ástandið og greindi frá næstu skrefum. Halldór Asgrímsson var hvergi sjáanlegur. Kannski sjálfur í útlönd- um. Það skiptir ekki máli. Á svona tímum þarf íslenska þjóðin einfaldlega á Davíð Oddssyni að halda. Manni sem talar hreint út og segir sannleik- ann - eins og þegar hann sagði að Saddam væri maður sem þyrfti að drepa aftur og aftur. Eitt af því sem Davíð minntist á í Kastljósinu í gær var hið fræga æðruleysi Breta. Svarthöfði minnist svipmynda úr seinni heimsstyijöld- inni. Jafrivel í skotgröfunum höfðu Bretamir tíma fyrir te. Jafrivel í Þorskastríðinu töpuðu þeir með sæmd. Svarthöfði er reiður vegna hryðjuverkanna í Bretlandi. Þau sýna að herða þarf stríðið gegn hryðjuverkum. Bræðumir Bush og Blair þurfa að snúa bökum saman og bíta í skjaldarrendur. Hryðju- verkamenn þessa dags, Bin Laden, Saddam og fleiri af því sauðahúsi em menn sem þarf að drepa aftur og aftur, eins og Davíð orðaði það. Svo er tímasetningin náttúrlega táknræn. Ólympíuleikamir hafa kannski verið komið sem fyllti mæli hryðjuverkamannanna. Svarthöfði Hvernig hefur þú það „Ég er ansi sprækur bara. Hálfþreyttur samt. Það fylgir þessu tónleikastandi. En þetta var mjög vel heppnaö og ég er frekar ánægður, “ segir Kári Sturluson tónleikahaldari. Hannstóð fyrir Itónleikum Foo Fighters, Queens ofthe StoneAge og Mínuss í Egilshöll á þriðjudagskvöld. Hann hafði einnig með komu Duran Duran að gera þannig að í mörg horn hefur verið að líta. „Ég hugsa að ég bregði mér I smá sumarfrl núna. Margt vitlausara. Svo tekur bara við að | finna annað band tilað bjóða landsmönnum upp á. Það erþannig."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.