Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Blaðsíða 16
7 6 FÖSTUDAGUR 8. JÚU2005 Sport DV Hryðjuverkin hafaekki áhrif á ÓL Forystumenn alþjófta ólympíunefndarinnar segja að hryftjuverkaárásirnar í London í gær muni ekki hafa áhrif á þá ákvörftun sem var gerft á miövikudaginn um aft halda ÓL árið 2012 þar f borg. Samt sem áður hafa öll hátíðarhöld sem fyrirhuguð voni til að fagna því að I.ondon hreppti hnossið verið blásin af. Sebastian Coe kvaðst í gær vera hryggur og sleginn yfir hryðjuverkaárásunum. „Við finnum til með aðstandendum íómarlamba þessa hörmulega glæps," sagði 1 Coe. c Newcastle býður í Emre Newcastle liefur komiö meö til- boð í tyrkneska landsliðsmanniim Emre Belozoglu sem leikur með lnter Milan á Ítalíu. Miklar vænt- ingar voru gerðar til Einre þegar hann var keyptur til lnter frá Galatasaray en hann hefur ekki náð að standa undir þeim og mik- ið þurft aft verma tréverkið. „Við höfum verið í viöræðum við letk- manninn með ieyfi frá Inter og nú höftun við lagt inn formlegt tiiboð. nú er bara ekkert aimaö en að bíða eftir svari frá þeim." sagði Freddy Shepherd. stjómarforinaður Nevvcastle, á opinberri heimasíðu félagsins. Vitað er að Evertoii iief- ur einnig 'sa.áhiiga Ty Emre og ónefht enskt fé- lagsiið. ru- i— Rohinson áfram hjá Totfenham Enski landsliðsmarkvörðurinn Paul Robinsons er að fara að skrifa undir nýjan samning við Totten- ham llotspur sem leikur í ensku úrvalsdeildinni. Robinson stóð svo sannarlega fyrir sínu á fyrsta tímabili með Tottenham og segist hann vera hæstánægður hjá félag- inu. „Stjómarfomiaðurinn hefui' alltaf sýnt mér rosalegt traust, upphatlega ineð því að kaupa mig hingað. Nú er ég að endurgjalda það traust. Það hefur aldrei verið vafi af minni hálfu hvar ég vil vera.‘‘ sagði Robinson, sem mun undirrita langtfmasainning til næstu sjö ára við félagið. Robin- son var keyptur á 1,5 milljón punda frá Leeds í maí í fyrra og er nú orftinn aðalmarkvörftur landsliðsins. Maöurinn sem er talinn eiga stærstan þátt í því að London varð fyrir valinu sem gestgjafi ólympíuleikanna árið 2012 er fyrrum frjálsíþróttahetjan Sebastian Coe. Þrátt fyrir að hafa unnið tvö ólympíugull og slegið heimsmet 12 sinnum á ferlinum, þykir Coe hafa náð sínum stærsta sigri á miðvikudag þegar alþjóðlega ólympíunefndin valdi London til að halda ólympíuleikana. Sebaslian J)oe Boðsögnin sem fékk OL til London Tilboð London um að halda ÓL var ávallt talið hæpið og var borgin talin nokkuð langt á eftir Madríd og París í goggunarröð- inni hjá ólympíunefndinni. Árið 2003 var Coe, eða „Seb“ eins og hann er ævinlega kallaður, skipaður einn af þremur aðstoðar- sendifulltrúum undirbúningsnefndarinnar sem vann í því að fá ÓL til London. í maí í fyrra tók hann hins vegar við stjóm nefnd- arinnar af hinni bandarísku Barböm Cassani, sem áður hafði sinnt leiðtogahlutverki í herferð borgarinnar til að hreppa hnossið. Afrekaskrá Coes, sem er af mörgum talinn besti míluhlaupari sem uppi hefur verið, þótti frábær fyrir hluverkið. Ekki aðeins hafði hann tvö ólympíugull að baki heldur hafði hann einnig góð sambönd innan hreyfingarinnar sem og mikla þekkingu á þeirri pólitík sem viðgengst í íþrótta- heiminum, eftir að hafa starfað í hinum ýmsu stjórnum og nefndum á vegum íþróttamálaráðu- neytisins í BretLandi. Og smám saman fóru menn að sjá kostina við að halda ÓL í London, í flestum til- vikum eftir að Seb hafði greint frá þeim. Leynivopnið Beck- ham „Þetta er mjög ólíkt því að vinna gullverðlaun á ólympíuleikum. Reyndar allt öðruvísi en alls ekki síðri,“ sagði Seb eftir að sig- ur Lundúna var í höfn á miðvikudag. Fjölmiðlar og sérfræðingar á Bret- landseyjum eru sammála um að Seb hafi unnið stór- kostlegt þrekvirki með því að fá ÓL til London. Miklar efasemdir voru um hvort samgöngur í London myndu þola það álag sem fylgir við- burði af þessari stærð- argráðu sem ólympíuleik- amir em, en Seb náði með einlægni sinni og sannfær- ingarkrafti að gera meðlim- um ólympíunefndarinnar grein fyrir því að áhyggjur væm óþarfar. Herferð Seb var að mestu byggð á þeirri ímynd sem London hefur sem ein af stórborgum heimsins og þeim stuðningi sem umsókn London hafði frá íbúum borgarinnar. I febrúar sl. fóm fulltrúar ólymp- íunefndarinnar í heimsókn til allra þeirra borga sem sótt höfðu um að halda leikana og kom London mjög vel út úr þeim samanburði. Og það var fyrst þá sem að æðstu menn inn- an íþróttahreyfingarinnar í Bret- landi fóm að átta sig á því að London gæti átt möguleika. Borgin stóð París hins vegar ennþá nokkuð langt að baki. En Seb átti tvö tromp uppi í erminni sem hann spilaði út á hár- réttum tíma. Það fyrsta var að skipa David Beckham sem sérstakan stuðningsfulltrúa undirbúnings- nefhdarinnar og er hans ímynd og frægð út um allan heim talin hafa haft mikið að segja um það sem gerðist. Sjálfur ferðaðist Seb út um allan heim til að breiða út þann boðskap sem fólst í því að ÓL yrðu haldnir í London. En borgin var ennþá talin vera á eftir Pans í arröð ólympíunefndarinnar þegar allir aðilar komu saman í Singapúr um síðustu helgi á lokasprettinum. Það var þar, deginum áður en kosn- ingin fór fram, sem Seb spilaði fram seinna trompinu. Frásögnin sem snerti alla Hjartnæm og einlæg ræða hans þegar fulltrúum allra borganna var gert að flyta lokaávarp sitt snerti alla þá meðlimi Ólympíunefndarinnar sem hlustuðu, þá sömu og greiða átm atkvæði daginn eftir. Coe sagði frá því augnabliki sem varð til þess að hann gerðist frjálsíþróttamaður - þegar hann horfði í sjónvarpinu á John Sherwodd ná þriðja sætinu í 400 metra grindahlaupi á ÓL í Mexíkó árið 1968." Nú, 35 árum síð- ar, man ég þetta augnablik eins og það hafi gerst í gær," sagði Seb í ræðu sinni og bætti því við að það væru einmitt þessi augnablik sem Lóndon myndi keppast við að ná að framkalla ef þeir fengju að halda leikana. Skemmst er frá því að segja að ræðan gerði gæfumuninn. Meðlimir ólympíu- nefndarinn- ar greiddu London 54 atkvæði en París hlaut 50. Sebast- ian Coe hafði unn- ið sinn þriðja ólympíu- sigur, en í þetta skiptið fékk hann enga medalíu. 1956: Faeddur29.september. 1QM. *lÓÞrjÚheÍmsmetá 41 de9‘- 1984: Ólympíuqu 500 ZT T* ^1800 metra hlauP'- Cambome SVæð‘Sfulltrúi breska 'haldsflokksins , Falmouth og „Þetta er mjög ólíktþví að vinna gullverðlaun á ólympíu- leikum. Reyndar allt öðruvísi en alls ekki síðra. gogg un- » (þróttahetjan sem gerðist pólitíkus A gömlu myndinni sést Sebastian Coe fagna Ólympíugulli slnu á ÓL1 Los Angeles þann 11. ágúst árið 1984.1 dag er hann virtur stjórnarmálamaður i Bretlandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.