Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Blaðsíða 39
DV Síðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ2005 39 Persónuleiki er munaður þeirra sem lifa við öryggi og stöðugt ástand. Það þarf sáralítið til þess að ræna mann persónuleikanum og hluti af honum er húmorinn. Ég held að þeir sem missa aldrei húmorinn séu eitthvað klikkaðir, það er eitthvað sérstaklega óhugn- anlegt við það að halda sama per- sónuleikanum við hvaða aðstæður sem er. Þess vegna eru svo margar bíómyndir ótrúverðugar og ósannar en um leið áhugaverðar. Ekki vegna þess að þær lýsi lífinu eins og það er heldur vegna þess að þær lýsa lífinu eins og það er ekki. James Bond missir aldrei húmorinn, hann missir aldrei persónuleikann enda er hann ekki til. Fólk eins og hann er bara hugmynd, fáránleg hugmynd, í besta falli upplífgandi í hversdags- leikanum, nei, reyndar frábær. Það sem ég er að tala um er upp og nið- ur og út og suður. Þannig er minn persónuleiki í dag. (Venju fremur). Þorsteinn Guðmundsson skrifar um óttann við að missa húmorinn. Breytist óvart í kött Maður breytist að vissu leyti í kött þegar manni bregður. Fyrst breytist maður í læðu sem passar kettlingana sína, svo breytist maður í fress sem er tilbúinn að klóra hvem sem er vegna þess að hann heldur að hann sé ljón, svo breytist maður í innikött sem liggur í sínum eigin hægindastól og horfir yfirlætislega á alla sem koma í heimsókn. (Og þá meina ég að gest- imir séu sjónvarpið). Bamaleg sam- líking ffá bamalegum manni, allt í lagi með það mín vegna. Ég hef eng- an húmor í dag, engan persónuleika, það er ekki hægt að móðga mig eða stríða mér. Það skiptir mig engu máli að vera klár eða fyndinn, ég set það allt á hóld þangað til seinna og geri þá mitt besta. Eg geri mér grein fyrir að ég er einn óduglegasti maður landsins og það verður bara að hafa það, ég er staðfastur eins og heimsk- ur köttur. Aðallega myndir af mér Ég var í London í síðustu viku og undir eðlilegum kringumstæðum hefði ég haft gaman af því að sjá sömu staðina og ég gekk um þá í sjónvarpinu núna. En það er eins og þetta séu allt aðrir staðir. Þegar ég var þama vom þeir fullir af alls kyns fólki, eiginlega eins og sýnishorn af mannkyninu. Vinur minn var þarna með mér og hann hafði verið ráðinn til þess að taka myndir af hversdags- leikanum til þess að nota framan á bókarkápu. Hann smellti af stöku sinnum - á sýnishomið. Ég var líka með myndavél en ég hef það fyrir reglu að taka bara myndir af þeim sem ég þekki. Ég er takmarkaðri að því leyti. Ég horfi á sjónvarpið og reyni að skilja hvers vegna fólk gerir svona lagað, ég þykist oft vera hugs- andi maður og þess vegna finnst mér það skylda mín að reyna að skilja hvernig það er hægt að meiða fólk svona viljandi. London er uppá- haldsborgin okkar. Fokk, ég skil ekki neitt. Að búa í holu í stórum hól Með tímanum em allir framtíðar- draumar mínir nær því að vera fram- tíðardraumar hobbans Bilbós Bagga- sonar sem dreymdi um að fá sér góð- an morgunmat, smá kökusneið eftir það, veglegan hádegismat, kannski ost og te, gott með kaffinu, helst sér- bakað og ijúkandi heitt, smá vínglas fyrir matinn, þriggja rétta máltíð með kaffi og kom'aki á eftir og svo snarl fyrir svefrúnn. Ef lífið heldur áfram að haga sér eins og dmsla þá geri ég þetta; ég breyti mér í hobba, flyt til Vestfjarða, hendi sjónvarpinu út um gluggann og það eina sem ég tek með mér em matreiðslubækur og hárgel þannig að ég komi nú ekki illa út. ■ flff it ! «* 9 K j||| Kaupmannahöfn Oslo Stokkhólmur Helsinki London Vestfirðingar hafa ekki heppnina meö sér því kröpp lægð er framundan sem mun valda stífum vindi á fjörðunum. (kvöld mun þó vindinn lægja, hægt og rólega. Veðrið um helgina er að skýrast. Hlýjast verður á norð- • -y' -*• austurlandi og austurlandi fyrir þau sem ætla að leggja land undirfót. 22 París 21 Alicante 29 30 Berlín 22 Milano 23 30 Frankfurt 20 New York 18 24 Madrid 33 San Francisco 19 21 Barcelona 27 Orlando/Florida 32 Sandkorn með Eiríki Jónssyni • Skjár einn ætíar að halda sínu striki þótt Vala Matt sé á fömm. Ein helsta skrautfjöður stöðv- arinnar á undan- fömum ámm er Popppunktur sem Felix Bergsson og Doktor Gunni hafa stjórnað. Tekist hafa samningar um fram- hald og verður ný sería tekin upp í ágúst síðan sýnd í septem- ber. Em allar helstu hljómsveitir lands- ins famar að hita upp fyrir keppnina sem án efa verður stórskemmtileg eins og alltaf... • Heiðafldoler að taka upp plötu þar sem hún syngur ein- göngu lög eftír Gunnar Þórðarson. Er það vel við hæfi því bæði Heiða og Gunnar eru frá Hólmavík; frklega frægustu stjörnur staðarsins fyrr og síðar... • Rithöfundurinn Stefán Máni var í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 um dag- inn. Þar staðhæfði hann að alþingis- menn væm til sem neyttu kókaíns. Hélt Stefán Máni því fram að hann gæti í það minnsta nafngreint einn þing- mann en lét nafnið þó ekki flakka þrátt fyrrir eftirgangssemi þátta- stjórnenda sem vom á nálum... • Útvarp Saga heldur áfram að kynna nýtt fólk til leiks í dagskrá sinni. Nú síðast er þar kominn til starfa ættfræðingurinn ». * Kjartan Gunnar B 1 Kjartansson sem um f|f4 , j f1 áratugaskeið sá um Ipi -m ættfræðisíðu DV. r / V Bindur Útvarp Saga miklar vonir við Kjartan Gunnar og veðjar á mikinn áhuga íslensku þjóðarinnar á ættartengslum og ættfræði almennt... • Kaffi Oliver er heitasti staðurinn í Reykjavík í dag. Þyk- ir Amari Gíslasyni veitingamanni hafa tekist vel upp við að laða til sín þá gestí sem aðrir fylgja enda vart hægt að þverfóta fyrir stjömum á staðnum. Svo heitur er staðurinn að brunavarnarkerfið ræður ekki við hitann og er nær stanslaust í gangi. Er það einn helstí höfuðverkur veitingamannsins sem annars er í góðum málum... Sólarupprás Sólarlag í Árdegisflóð 09.29 I Reykjavik Reykjavfk Síðdegisflóð 21.48 04.19 2232 Enginn viðbjóður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.