Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 8. JÚU2005
Fréttir DV
Innbrotahrina
íVesturbæ
Embætti landlæknis hefur gefið út svokallaða lífsskrá. Þar geta langt leiddir sjúkl-
ingar skrifað undir eyðublað og ákvarðað hvernig þeir vilja deyja. Sigurður
Guðmundsson landlæknir segir ekki mega rugla þessu saman við líknardráp, verið
sé að veita sjúklingum möguleika á mannúðlegum dauðdaga þegar náttúran hefur
sagt stopp.
Þrír smáafbrotamenn
voru handteknir af lögreglu
á fimmta tímanum í fyrri-
nótt vegna innbrotahrinu.
Lögreglan í Reykjavík hafði
afskipti af þeim á Hring-
braut og kom þá í ljós að
þeir höfðu framið auðgun-
arbrot. Þeir brutust inn í ís-
búð í hverfinu og eru
einnig grunaðir um fleiri
innbrot sömu nótt og að-
faranótt þriðjudags, en þá
var brotist inn í lágvöru-
verslun og á bensínstöð.
Þeir voru látnir gista fanga-
geymslur lögreglu. Hluti af
þýfi drengjanna fannst í
bflnum og vísuðu drengirn-
ir á meira þýfi í heimahúsi.
Landlæknir leyfir
fólki að deyja
„Að mínu mati erþetta sið-
ferðisieg spurning. Við bræð-
urnir tókum þessa ákvörðun
því við viijum að móðir okk-
arfái virðuiegan dauðdaga."
Rannsóknar-
þingmaður
„Enn eitt upphlaup
Helga Hjörvar undir
merkjum sannleiksástar
fellur um sjálft sig," segir
Hjálmar Árnason þing-
maður á heimasíðu sinni.
Hjálmar býsnast yfir orð-
um Helga um að tengsl
væru milli húsakaupa
Framsóknarflokksins og
sölu Búnaðarbankans.
Hjálmar segir húsakaup-
in hafa átt sér stað fimm
árum áður en bankarnir
voru seldir. „Þetta er
löngu vitað og ef rann-
sóknarþingmaðurinn
Helgi hefði fylgst með þá
ætti honum að vera þetta
ljóst því Framsókn hefur
haldið til í þessu húsi um
langa hríð."
Úr bílveltu í
veiðiþjófnað
Síðasta laugardag var
veiðiþjófur gripinn í Búðar-
dalsá. Hann hafði verið við
veiðar við laxastigann í
ánni, en hann er á bann-
svæði. „Hann þóttist ekki
vita neitt um að þetta væri
bannað," segir Kristinn
Jónsson, veiðivörður og
lögreglumaður í Búðardal.
Kristinn var á leið heim úr
útkalli eftir bflveltu við
Svínadal þegar hann og Jó-
hannes Björgvinsson varð-
stjóri gripu mann glóð-
volgan við veiðar við stig-
ann. „Ég hef lent í þessu
nokkrum sinnum en þessi
var ólflct öðrum með veiði-
leyfi í öðrum hluta árinn-
ar.“ Hann segir þá hafa tal-
að við manninn og lofaði
hann að gera ekki svona
lagað aftur.
Ufsskra
''MýU'v veur,, m,ð(„a„,
t,«* fjtt vi(j* mmn »ko&u
efúr þvi tó u hjúíZ,
Vhr»y»log uui tíHara,
Vn3 “*»*«> * nýu ca,
6*k» *Kr tö ftU vcfi: n j
«nátí( kwm að
Landlæknisembættið hefur gefíð út eyðublöð sem hjálpa deyj-
andi sjúklingum að ákveða örlög sín. Sjúklingar geta ákveðið að
hafna meðferð og deyja án læknismeðferðar. Sigurður Guð-
mundsson landlæknir segir að með þessu sé ekki stigið skref í átt
að líknardrápum.
„Nei, hér á landi flokkast lflcnar-
dráp, að hjálpa fólki til að deyja, enn
undir manndráp," segir Sigurður
Guðmundsson landlæknir. Sigurður
segir þessi nýju eyðublöð í samræmi
við lögin í landinu, sjálfsákvörðun-
arrétt sjiiklinga. Ef fólk vilji ekki að
því sé haldið á lífi í öndunarvélum
eða með lyfjameðferð geti það nú
tekið þá ákvörðun áður en ástand
þess verður það slæmt að það geti
ekki tjáð sig sjálft.
Sigurður tekur skýrt fram að ekki
megi rugla þessu saman við lflcnar-
dráp eins og tíðkast í Hollandi.
„Mér finnst ekki hægt að leggja
þá byrði á lækni að svipta sjúkling
lífi," segir Sigurður.
Erfið ákvörðun
Með útgáfu lífsskráarinnar
er þessi sjálfsákvörðunar-
réttur sjúklinga í fyrsta
skipti skjalfestur. Það hef-
ur hins vegar tíðkast í
fjölda ára að aðstand-
endur og nákomnir vinir
eða ættingjar taki
ákvarðanir er varða per-
sónulega hagi langt
genginna sjúklinga.
Einn af þeim sem hefur
þurft að taka slflca ákvörðun er
Ólafur Haukur Símonarson rit-
höfundar. Móðir Ólafs, Elín
Friðriksdóttir, greindist fyrir
mörgum árum með
Alzheimer
sjúk-
dóminn
og tók
Ólafur.
ásamt bræðrum sínum, þá ákvörð-
un að henni skyldi ekki haldið á lífi í
öndunarvél eftir að lflcaminn hætti
eðlilegri starfsemi.
Siðferðisleg spurning
„Að mínu mati er þetta siðferðis-
leg spurning sem hver og einn þarf
að velta fyrir sér. Við bræðurnir tók-
um þessa ákvörðun því við viljum að
móðir okkar fái virðulegan dauð- •
daga," segir Ólafur. Hann segir jafn-
framt gott að gefin hafi verið út þessi
lífsskrá og eyðublöð svo þetta ferli sé
orðið formlegt og skjalfest. Ýmsir
sem DV hefur rætt við hafa velt upp
fjárhagslegum hliðum kerfisins en
mikill kostnaður fylgir því að halda
fólki á lífi eftir að líkaminn hefur gef-
ist upp. Ólafur segir
mörgu hægt að velta
upp í þessu sam-
hengi. „Ég get
a.m.k. sagt að
mér myndi
ekki lflca það
að vera haldið
lifandi í önd-
unarvél."
Villekkií
öndunarvél
Eyðublöðin
fýrir lífsskrána
er hægt að
nálgast
Sigurður Guðmundsson
landlæknir „Mér fínnst ekki
hægt að leggja þá byrði á lækni
að sviþta sjúkling lífí.“
Ólafur Haukur Símaronar-
son rithöfundur Við bræðurn-
ir tókum þessa ákvörðun þvl við
viljum að móðir okkar fái virðu-
legan dauðdaga
á vef landlæknisembættis-
ins. Þar velur sjúklingurinn
umboðsmenn sem fara með
hans mál þegar endadægrið
nálgast. Sigurður Guð-
mundsson landlæknir segir
jákvætt að þessi mál séu
orðin opinber. Umræða sé
af hinu góða. Spurður hvað
hann sjálfur myndi gera
greindist hann með sjúk-
dóm eins og alzheimer seg-
ist Sigurður ekki vilja vera
haldið á lífi þó lflcnardráp
kæmi ekki til greina.
„Nei, ég myndi vilja fá
lflcnandi meðferð í sam-
ræmi við lífs-
skrá."
simon@idv.is
Fyrir Héraðsdóm í lögreglufylgd
Misheppnuð gönguferð
Síbrotamaður í járnum
Fyrirtaka var í Héraðsdómi
Reykjavflcur í máli Illuga Steinars
Frankssonar í dag. Illugi er ákærð-
ur fyrir að hafa brotist inn í átta
bfla á bflastæði við Freyjugötu
þann 17. september á síðasta ári.
í fimm skipti er hann talinn
hafa brotið rúður án þess að ná
verðmætum en úr næstu þremur á
hann að hafa náð verðmætum og
var þar um að ræða geislaspilara.
Búðarþjófnaðir eru einnig tíðir í
ákærum en hann er ákærður fýrir
þrjá þjófnaði.
Illugi kom í fýlgd lög-
regluþjóna í héraðsdóm í
gær, þar sem hann hafði ekki mætt
sem skyldi í fyrirköll. Ekki liggur
Sfbrotamaður lllugi Steinar varl lögreglu-
fylgd I Héraðsdómi. DV-sviösett mynd.
fýrir hver afstaða Illuga er til ákær-
anna en aðalmeðferð verður að
líkindum í málinu næsta haust.
„Það liggur mikið við að standa vörð um þau gildi sem við viljum vernda í frjdlsu vest-
rænu samfélagi, segir Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar."
Esjan sigraði öryrkjann
ósigrandi
„Ég mun sanna fyrir þeim sem
geta gengið að ég get gert það sama
og þeir," sagði Leifur Leifsson, ung-
ur athafnamaður í viðtali við DV í
gær, áður en hann ætlaði að leggja
leið sína upp á Esju í hjólastól.
Síðar um daginn hringdi hann í
blaðamann, svekktur. Hann komst
ekki upp á Esju í þetta sinn vegna
þoku og rigningar. „Maður er ekki
alveg nógu sáttur því þetta er eitt-
hvað sem maður vill ljúka við sem
fyrst," segirhann.
Esjuferð, með Leif klífandi í
hjólastól, átti að vera hluti heimild-
armyndar sem hann vinnur að
ásamt fleirum. „Það er nóg
framundan hjá mér í tengslum við
heimildarmyndina," segir öryrkinn
ósigrandi. Sniglamir hafa ákveðið að
Leifur Leifsson Komst ekki upp á Esju
vegna þoku. Tekur það rólega i kvöld.
taka Leif upp á sína arma og munu
ferðast með hann í hliðarvagni bif-
hjóls. „Það verður heljarinnar gam-
an. Ég held að ég taki það bara ró-
lega í kvöld. Við förum vonandi eftir
viku." segir Leifur. gudmundur@dv.is