Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Page 17
DV Sport
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ2005 77
LANDSBANKADEILDIN
Lið ÍA valtaði yfir KR á íslandsmeistaramótinu í gær. Eftir hroðaleg mistök Jök-
uls Elísabetarsonar í öftustu línu KR sem kostaði mark kórónaði Kristján Finn-
bogason, markvörður KR, lélega frammistöðu liðsins þegar hann fékk á sig klúð-
urslegt mark eftir gullfallegt skot af vallarhelmingi andstæðinganna. Mark ársins
var í höfn og sigur ÍA liðsins staðreynd í bráðskemmtilegum leik.
landsbankadeildin
FH
Valur
Keflavík
Fylkir
lA
KR
Grindavlk 9
Fram 9
IBV 9
Þróttur 9
Staöan:
9 9 0 0
7 0 2
4 3 2
4 2 3
4 1 4
3 1 5
2 3 4
2 2 5
2 0 7
1 2 6
26-5
20-5
16- 19
17- 14
9- 11
8-13
10- 16
10-12
6-21
11-17
Maresca tll
Fulfaam?
Fulham hefur mikinn áliuga á
að krækja í miðjumanninn Enzo
Maresca sem er í herbúðum
Juventus á Ítalíu. Chris Coleman
er víst mjög hrifinn af leikmannin-
um sem þekkir enska boltami frá
því hann var hjá West Bromwich
Albion. Fulham hefur sent fyrir-
spum til Juventus um að fá leik-
mannnm, hugsanlega á löngum
lánssamningi. Maresca var að
hluta til í eigu Fiorentina en
Juventus keypti hann alfarið til sín
fyrir skömmu. Þrátt fýrir það má
ólíklegt teljast að Fabio Capello
hugsi þessum 25 ára leikmanni
stórt lilutverk á næsta tímabili.
Heyrst hefur að Juve hugsi sér að
nota Maresca sem skiptimann í
einhver kaup sem félagið ætlar að
framkvæina í sumar.
Birmingham
er ekki eflir-
sóknarvert
Steve Bruce, knattspyrnustjóri
Birmingham, segist vera orðinn
pirraður á því hversu erfitt sé að fá
góða leikmenn til liðsins. Bmce
segir að alltaf þegar leikmaður í al-
mennilegum gæðaflokki verði á
lausu myndist kapphlaup þar sem
lið eins og Birmingham verði
ávallt undir. Bmce nefnir nýlegt
dæmi Scott Parker, sem nýverið
gekk til liðs við Newcastle, sem
dæmi. „Hann hafði úr 11-12 liðum
að velja úr. En svona er þetta í
boltanum í dag - gríðarleg sam-
keppni," segir Bmce sem einnig
var á höttunum eftir Lee Bowyer
og Craig Bellamy, sem báðir völdu
önnur félög fram yfir Birmingham.
Viana aftur
til Newcastle
Hugo Viana, portúgalski
miðjumaðurinn hjá Newcastle, er
snúinn aftur til félagsins eftir að
hafa verið í láni hjá Sporting Lis-
bon í heimalandi sínu alla síðustu
leiktíð. Viana ætlar að berjast fyrir
sæti sínu í liðinu á næsta tímabili
eftir að öll stærstu lið Portúgals
lýstu því yfir að þau hefðu ekki
efni á að kaupa hann. „Það er eng-
inn heimsendir fyrir mig að fara
aftur til Newcastle og ég er mjög
rólegur. Ég er samningsbundinn
félaginu til næstu þriggja ára og ég
ætla mér að festa mig í sessi í lið-
inu,“ segir Viana.
Carragher
framlengir
við Liverpooi
Það er ekki aðeins fyrirliðinn
Steven Gerrard sem ætlar sér að
staðfesta framtíð sína hjá Liver-
pool á morgim, því í gær lýsti
Jamie Carragher, varnarmaðurinn
sem lék svo frábærlega á síðustu
leiktíð, að skrifa undir nýjan
samning við félagið. Stjómarfor-
rnaður Liverpool, Rick Parry,
kveðst búast við því að Carragher
muni jafhvel
| skrifa undir nýj-
. an samning á
sama tíma og
Gerrard. „Við
höfúm staðið í við-
ræðum við hann f
allt sumar og hann er
sannarlega í plönum
knattspymustjór-
~4k ans,“ sagði Parry og
bætti því einnig við
að Djimi Traore hefði
skrifað undir nýjan
% samning við félagið í
fyrradag sem gildir
til ársins 2009.
Steven Gerrard vill sáttafund með Rafael Benitez.
Þurfum að bæta samskiptin
Steven Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, vill ræða við Rafa Benitez,
framkvæmdarstjóra liðsins, til að
bæta samskipti þeirra tveggja.
Það hefur líklega ekki farið fram-
hjá neinum að Gerrard gaf það út
fyrr í vikunni að hann vildi komast
burt frá Liverpool og fór fram á sölu
frá félaginu. Á miðvikudag hafði
hann síðan skyndilega skipt um
skoðun og ákvað að sýna uppeldis-
félagi sínu hollustu.
Gerrard lenti í heiftarlegu rifrildi
við Benitez um síðustu helgi og var
það rifrildi talið ein af meginorsök-
um þess að hann vildi yfirgefa An-
field. Nú þegar framtíð hans er ráðin
vlll hann bæta samskiptin við fram-
kvæmdastjóra sinn og starfa nánar
með honum. „Hann er einn af bestu
þjálfurum heims. Samband okkar er
ágætt en ég viðurkenni það alveg að
það gæti verið betra og það er eitt-
hvað sem ég hef ákveðið að vinna í
að laga. Ég ræddi við hann og við
munum funda á næstu dögum til að
bæta samskipti okkar,“ sagði Gerr-
ard.
Xabi Alonso, félagi Gerrards á
miðjunni hjá Liverpool, hefur lýst
yfir ánægju sinni með þá ákvörðun
„Ég ræddi við hann og
við munum funda á
næstu dögum til að
bæta samskipti okkar."
hans að vera áfram hjá fé-
laginu. „Þetta eru frábær
tíðindi fyrir alla hjá Liver-
pool og stuðningsmennina
einnig. Steve er allt, hann er
tákn liðsins og þrátt fyrir að
enginn sé ómissandi þá hefði
verið erfitt fyrir okkur að byrja
tímabilið án hans. Öll félög vilja
hafa Gerrard í sínu liði, en ég
held að þetta hafi ekki verið
spurning um peninga hjá öllum
þessum félögum. Eftir að Gerr-
ard tilkynnti að hann væri á för-
um þá höfum við ekki æft af
jafn mikilli ánægju, nú er góði
andinn samt kominn aftur."
sagðiAlonso.
-egm
Það var ljóst frá upphafi hver ætlaði sér sigur í leik KR og IA í gær.
Hroðaleg mistök tveggja leikmanna KR færðu þó ÍA sigurinn
nánast á silfurfati. Pirringur og æsingur gerði vart við sig í her-
búðum KR sem endaði með því að hinn grófi leikmaður
Brynjólfur Lárusson kýldi leikmann ÍA í markteignum og fékk
rautt spjald fyrir vikið.
Aðstæður tU knattspyruiðkunar
voru ekki eins og best verður á kosið
í Vesturbænum í gærkvöldi þegar
KR-ingar tóku á móti Skagamönn-
um í LandsbankadeUd karla. Frekar
svalt var í veðri og rigning og því var
ekki að merkja mikla stemmingu á
meðal þeirra örfáu stuðningsmanna
Uðanna sem létu sig hafa það að
mæta tímanlega á leikinn.
Slæm mistök
Strax í fyrri hálfleik var fyrsti
naglinn negldur í líkkistu KR.
Hroðaleg mistök hjá Jökli Elísabet-
arsyni urðu tU þess að Skagamaður-
inn Hafþór Ægir Vilhjálmsson náði
boltanum með harðfylgi og komst
einn og óáreittur inn fyrir vöm KR
og skoraði örugglega fram hjá Krist-
jáni Finnbogasyni.
Greip í punginn
Síðar í fyrri hálfleik gerðist Bjam-
ólfur Lámsson í KR sekur um gróft
brot. Á myndum eftir leikinn mátti
sjá að hann greip fast eða sló í pung
ÍÁ manns inni í teignum. Brotið fór
ekki framhjá vökulum augum dóm-
arans. Bjarnólfur fékk að líta rauða
spjaldið. Annað rauða spjald KR í
tveimur leikjum þar sem þeir hafa
fengið á sig fimm mörk.
Ágætur skalli
í seinni hálfleik virtust KR-ingum
Bjarnólfur Lárusson fékk rauða
spjaldið Greip ipung andstæöingsins
meira umhugað að verjast en sækja.
Reyndar hresstust þeir örlítið þegar
leið á leikinn. Garðar Jóhannsson
átti ágætan skalla að marki Skaga-
manna á 74. mínútu, eitt fyrsta al-
vöm færi KR í leiknum, og fyrsta
skotið sem Bjarki Freyr þurfti að
festa hendur á.
Draumamark
ÍA gerði hins vegar út um leikinn
með ótrúlegu marki undir lok seinni
hálfleiks á 85. mínútu. Igor Pesic
fékk boltann á eigin vallarhelmingi,
sá að Kristján Finnbogason var
kominn út úr markinu, og lét vaða.
Draumamark ÍA fullkomnaði
martröð KR-inga sem gengu sneypt-
ir að velli undir lófataki örfárra
stuðningsmanna.
Hafþór Ægir
Vilhjálmsson ÍA Setur
boitann framhjá
Kristjáni Finnbogasyni.
mml
SigurlA KRingargengu
sneyptir af velli.
ir á heimavelli