Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Síða 32
32 FÖSTUDACUR 8. JÚU2005
Menning DV
Skrípó í Sprengjubyrginu
Sprengjubyrgið, sýningarsalur
Smekkleysu í kjallara Kjörgarðs,
mun á næstu vikum hýsa sýningu á
myndasögum. Næsta hefti
Grapewines verður tileinkað sýn-
ingunni. Þetta tiltæki er samstarfs-
verkefni Gisp-hópsins, Smekk-
leysu, Grapevines og JPV, sem er nú
í fýrsta sinn að snúa sér að mynda-
sögunni sem miðli.
Mun sýningin standa í tvo mán-
uði og verða sýnd verk eftir þá Ólaf
J. Engilbertsson, Bjarna Hinriksson,
Jóhann L. Torfason, Halldór Bald-
ursson, Þórarin Leifsson, Braga
Halldórsson og fleiri sem kenndir
eru við Gispið. Auk þessa verða
sýnd verk eftir Erró, Hallgrím
Helgason, Gunnar Karlsson, Gunn-
ar Hjálmarsson, Lauru Valentino,
Úlf Kolka og Hugleik Dagsson
ásamt völdum teiknuðum mynd-
um upp úr nýjasta tölublaði
Grapevine.
Sýningarskrá sýningarinnar er
myndasögubók þar sem Grapevine
kynnir fyrstu þjóðlegu íslensku of-
urhetjuna Lundamanninn. í
myndasögubókinni verða einnig
myndasögur eftir Hugleik ásamt
upplýsingum um tilurð og sögu
Gisp-hópsins sem hefur verið
nokkuð frekur á pláss í íslenskum
myndasögufræðum á kostnað
Blek-hópsins.
Sama dag kemur út m'unda
tölublað þessa árs af tímaritinu
The Reykjavík Grapevine. Að
þessu sinni eru allar myndir í
blaðinu teilcnaðar, en það er í
fyrsta skipti sem slíkt er gert hér-
lendis hjá fullorðins vikuriti.
Skreyting úr nýju
hefti Grapevine.
Flipp á
föstudegi
Hitt húsið hefur staðið fyrir
noldCTum starfshópum fyrir ungt
fólk það sem af er sumrinu.
Hópamir hafa komið fram af ólík-
legustu tilefnum og eiga eftir að
setja svip sinn á mannfagnaði í
borginni það sem eftir er sumars.
Svokölluð föstudagsflipp
hópanna hafa verið fastir liðir í lífi
dagfarsprúðra miðbæjarbúa und-
anfamar vilcur og í dag verða
hópamir enn á ferðinni frá hádegi
ffam á kaffitíma. Meðal atriða í
þessari atrennu hópanna að
hversdagslífi miðborgarinnar má
nefna tónlist og leiklist með
meiru.
Við veitingastaðina Apótekið
og Iðnó ætlar strengjakvartettinn
Loki að spila tónlist úr kiassíska
kantinum, Bartok og fleiri góða.
Milli veitingastaðanna koma þau
við og spila á skattinum og fara
svo í bókasafn Kópavogs. Þau
stefna annars á tónleika eftir vilcu í
Listasafni Sigurjóns í Laugames-
inu.
Við Kaffibrennsluna verður
hópurinn Farsælda Frón með út-
varpsleflCTÍt: Varaðu þig á vogun-
um... Vilborg.
Á Lækjartorgi verða tónleikar
þar sem fram kemur listahópur-
inn Siggi og í Listasafni fslands
verða Gestafæti með tónleika kl.
12 sem em helgaðir íslenskum
tónskáldum, en hópinn mynda
fimmstúlkur.
Á götuhomi Lækjargötu og
Austurstrætis verður hreyfimynd í
gangi og ofar í Bankastræti verður
ljósmyndasýning við verslun
Hans Petersen.
Það er Rockshow í Kvosinni og
fönk á Austurvelli og tónlistarhóp-
urinn Drýas heldur tónleika í fata-
verslun Sævars Karls.
Myndlistarhópurinn Hýðið
verður með uppákomu á homi
Austurstrætis og Pósthússtrætis.
Þessir skapandi hópar Hins
hússins em tilraunaverkefni og er
ætlað að gefa borgarh'linu nýjan
svip. Hópamir verða allir virkir
áfram og munu taka þátt í menn-
ingamótt á fullu tungli í ágúst.
Um helgina heldur áfram tónleikahaldi í Skálholti. Hljómeyki flytur sönglög eftir
Jórunni Viðar og barokksónatan fær sitt rúm í dagskránni með leik Höllu Stein-
unnar og Karls Nyhlin.
Jórunn Viðar Sönglög hennar lifa
með þjóðinni en nokkur þeirra flyt-
ur Hljómeyki þessa helgi ISkálholti.
Onnur helgi sumartónleikanna
Það er við hæfi að Jómnn Viðar
skuli vera staðartónskáld þessa
helgina. Hún skipar loks þann
heiðurssess sem hún á skilinn fyrir
langa og dygga þjónustu í þágu ís-
lenskrar tónlistar og á tónleikum
Hljómeykis á morgun undir stjórn
Árna Harðarssonar verða flutt
nokkur sönglög hennar við ljóð
Davfðs Stefánssonar, Steins Stein-
arr, Einars Benedikts-
sonar, Halldórs Laxness
og unglingsins í hópn-
um, en Sjón á kvæði á
dagskránni.
Heiðurssess
Jómnni hefur verið
sýndur margvíslegur
heiður á síðustu ámm.
Hún var borgarlistamaður
og er heiðursverðlauna-
hafi tónlistarverðlaun-
anna. Ferill hennar hefur
verið langur, en hún er af
tónlistarfólki komin og
stundaði fyrst nám í Tón-
listarskólanum á ffumbýl-
ingsámm hans, en síðan
framhaldsnám í Berlín fyrir
strx'ðið og síðan við Juilliard í
New York á stríðsárunum.
Hún sótti síðan framhalds-
menntun til Vínar á árunum
1959 og 1960. Starfsvettvang-
ur hennar var kennsla og
undirleikur, auk umönnunar
fjölskyldu, en tónsmíðar stundaði
hún ein fárra kvenna hér á landi
um áratugaskeið og var fmmherji í
ýmsu. Hún samdi fyrstu ballettana
og kvikmyndatónlist sérstaklega
fýrir kvikmynd. En það vom
sönglög hennar sem nutu mestrar
hylli, kunna ekki allir Það á að gefa
bömum brauð?
Tuttugu og tvær raddir
Hljómeyki hefur starfað frá 1974
en er nú skipað 22 röddum. Hópur-
inn starfaði fýrstu árin undir stjórn
Rutar
Hljómeyki við
æfingar í Skál-
holti í vikunni
Magnússon og
flutti þá aðallega veraldlega tónlist
frá ýmsum löndum. Kórinn kom
fram í fyrsta sinn á sumartónleik-
um í Skálholti 1986 og hefur síðan
lagt megináherslu á flutning nýrrar
íslenskrar tónlistar eftir Áskel Más-
son, Bára Gríms-
dóttur, Elínu Gunn-
laugsdóttur, Haf-
liða Hallgrímsson,
Hildigunni Rúnars-
dóttur, Hjálmar H.
Ragnarsson, John
A. Speight, Jón
Leifs, Jón Nordal,
Oliver Kentish,
Tryggva M. Bald-
vinsson, Þorkel
Sigurbjörnsson og Þorstein
Hauksson. Hljómeyki hefur gefið út
fimm geisladiska með verkum eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Bám Grímsdótmr og
tvo með verkum eftir Jón Nordal.
Hljómeyki hefur frumflutt um fjör-
tíu tónverk, innlend sem erlend.
Ásgerður og Nordic Affect
Asgerður Júníusdóttir mun
syngja einsöng með kómum en
undirleikur verður í höndum níu
hljóðfæraleikara.
Á laugardag og sunriudag
verða síðan þau Halla Steinunn
fiðluleikari og Karl Nyhlin sem
leikur á chitarrone í aðalhlutverki.
Þau kalla sig Nordic affect. Á tón-
leikum þeirra eru verk samin fyrir
hefðarsali Feneyja og fleiri borgir
Mið-Evrópu, svokallaðar barrokk-
sónötur. A sunnudeginum verður
að vanda guðsþjónusta í Skálholti
kl. 17 en þar mun Hljómeyki
frumflytja nýtt lag eftir önnu Sig-
ríði Þorvaldsdóttur við kvæði
Ólafs frá Söndum: Heyr þú oss
himnum á.
Ragna Berlin sýnir verk sín í Reykjavík
Bandarískt gallerí verður með
sýningar við Klapparstíginn það
sem eftir lifir sumars. Forstöðu-
maður þess, Scott Laugenour, rek-
ur gallerí í Brooklyn í New York, en
aðalastöðvar hefur hann í Willi-
amsburg í Massachusetts. Hópur
listamanna tengist starfsemi hans,
þeirra á meðal Tumi Magnússon,
en galleríið sitt kallar Scott Gallery
Boreas. Hann sýnir víðar, er til
dæmis með sýningu f Kína um
þessar mundir og opnar á morgun
fýrstu sýningu sína af fjórum við
Klapparstíginn á Hótel Klöpp.
Það er Ragna Berlin sem fýrst
sýnir, en hún er arkitekt að mennt
en snéri sér síðan að höggmynda-
list. Hún segir list sína rannsókn á
lífi okkar, hún reyni að átta sig á
hvað sé í gangi og bæti þar við því
sem henni finnst skorta. Menntun
hennar hafi verið karllæg en hún
reyni að bæta hinu kvenlega við í
verkunum sem er henni eðlislægt.
Hún vinnur í margs kyns
efrii, með málningu á
léreft, plexigler og plast-
effii.
Hún býr í New York en
er fædd og uppalin í Svf-
þjóð. Hún hefur dvalið
hér áður við vinnu. Hún hefur sýnt
áður á vegum Gallery Boreas í
Brooklyn og undirbýr nú sýningu í
Stokkhólmi. Verk hennar verða
kynnt á listamessunni í Köln f
haust á vegum Gallery Boreas.
Jafnvægi eftir
Rögnu Berlin.
Birt með góðfús-
legu leyfi Gallery
Boreas.
Sýningaröð í upp-
siglingu á Hótel Klöpp