Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Síða 33
Menning DV
f
DÝRIN HENNAR OLG
Á morgun opnar Olga Berg-
mann myndlistarkona sýningu í
Suðsuðvestur, sýningarrýminu
Suðsuðvestur á Hafnargötu 22 í
Reykjanesbæ.
Olga hefur verið afar dugmikil í
sýningarhaldi þetta árið. Hún hef-
ur á þessum sýningum unnið úr
hugmyndum um fútúristískar þró-
unarkenningar sem byggja á
möguleikum erfðavísindanna, en
einnig skoðað hvernig náttúru-
gripasöfn til dæmis stilla sýningar-
gripum sínum fram í sviðsettu um-
hverfi sem hermir eftir náttúrunni.
Hún býr til dýrslega skúlptúra sem
hafa hið undarlegasta lag og vekja
með áhorfandanum spurn.
Á sýningunni í Suðsuðvestur eru
I Eitt af skríp-
unum hennar
Olgu í vinnslu.
ný verk unnin á þessu ári, hvít dýr í
náttúrulegu umhverfi, steingerv-
ingar og stutt náttúrulífsmynd.
Málverk eftir Gunnellu
Samsýning á Skaganum
Á morgun verður opnuð sam-
sýning tveggja hstamanna í Lista-
miðstöðinni á Skaganum. Það eru
þær stöllur Gunnella og ljósmynd-
arinn Inger Helene Bóasson sem
efiia þar til samsýningar á nýjum
verkum.
Gunnella útskrifaðist frá Mynd-
iista- og Handíðaskólanum 1986
og hefur unnið að myndlist síðan.
Hún hefúr tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum innanlands og utan
og haldið einkasýningar, sfðast í
Ráðhúsi Siglufjarðar sumarið
2004. Myndefni sitt sækir hún í
samfélag sveitanna þar sem
bóndakonan er í aðalhlutverki við
leik og störf. í haust mun bókafor-
lagið Salka gefa út sögubók sem
unnin er út frá málverkum hennar.
Bókina skrifar bandaríski rithöf-
undurinn og ljósmyndarinn Bruce
McMillan og mun bókin einnig
verða gefm út í Bandaríkjunum á
komandi hausti. Á sýningunni í
Listamiðstöðinni sýnir hún 40 ný
olíumálverk.
Inger er norsk en er af íslensk-
um ættum. Hún starfaði sem ljós-
myndari í Drammen í Noregi í ald-
arfjórðung. Hún hefur búið og
starfað hér á landi síðan haustið
2001. Er þetta hennar áttimda sýn-
ing hérlendis. Inger sýnir ljós-
myndir sem eru teknar í fjörunni
við Granda í vesturbæ Reykjavík-
ur. Þar var á árum áður aðal sorp-
svæði borgarinnar og leynast þar
ennþá ýmsar gersemar fyrir auga
ljósmyndarans, svo sem ryðgað
jám og lyklar, ýmis leirbrot, dýra-
bein, og fleira.
Þær stöllur halda báðar úú
heimasíðum: Inger er að finna á
www.photoihb.com en heimasíða
Gunnellu: www.gunneIla.info
Listamiðstöðin Kirkjuhvoll er
opin alla daga frá kl. 15-18 en lok-
að er á mánudögum. Sýningin
stendur til 24 júlí.
Ritum mennjurtirog dýr
Ritfregn
Bókaútgáfan Hólar hefur sent frá
sér tvær nýjar bækur: Á sprekamó -
sem er afmæl-
isrit tileinkað
Helga Hall-
grímssyni náttúrufræðingi sjötug-
um, og snoturt kver eftir Bjarna E.
Guðleifsson sem hefur að geyma
safn forvitnilegra greina um ýmis
náttúrufræðileg efni.
Helgi Hallgrímsson er löngu
þjóðkunnur fyrir störf sfn en í af-
mælisriti hans, sem er stórt að vöxt-
um, leggja um sjötíu einstaklingar
hönd á plóg með greinum um marg-
vísleg efni. Ritið er tæpar fimm-
hundmð síður og ríkulega mynd-
skreytt. Leiðbeinandi verð er 6000
krónur.
Rit Bjama er í fyrirhugaðri ritröð
sem kallast Náttúruskoðarinn. Þetta
fyrsta hefti kallast Úr dýraríkinu. Þar
tjallar hann um ýmsar lífvemr, ána-
maðkinn, kóngulær, maura, fugla,
kýr og hunda. Teikningar em efúr
Ragnar Kristjánsson. Heftið er 126
blaðsíður og er leiðbeinandi verð
1980 krónur.
<
>