Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Page 40
%
r* Y 11 íijj í 0 t Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. Q Q rj Q
SKAFTAHLÍÐ24,10SREYKJAVÍK [ STOFNAÐ 7970] SÍMIS505000 5 690710 Tl'í 117
• Skákmeistarinn Bobby Fischer
hefur sem kunnugt er fest kaup
á íbúð í hjarta miðbæjar Reykja-
víkur, á Klapparstígnum. Kaupin
gengu ekki auðveldlega fyrir sig
enda Bobby Fischer með erfiðari
mönnum í umgengni. Eitt af því
sem Fischer kvartaði yfir í þeim
íbúðum sem hann skoðaði var
mikill hávaði úr miðborginni.
Honum til halds og trausts í
kaupunum var Sæmimdur Páls-
son, góðvinur Fischers. Segir
sagan að þegar Fischer hafi sem
mest kvartað yfir hávaða hafi
aðrir hrist hausinn því enginn
heyrði lætin af götunni nema
meistari Bobby...
Aumingja Bretinn!
Einkaþjónn Fischers Rekinn
af Póstbarnum
„Hver er sinnar gæfu smiður,“
segir Heiða Jóhannsdóttir, veitinga-
stjóri á Póstbarnum, um brotthvarf
einkaþjóns Bobbys Fischer af staðn-
um. Um er að ræða breskan
„butler", þann eina hér á landi, en
hann þjónaði Bobby Fischer þegar
hann lagði leið sína á Póstbarinn.
Alltaf pantaði Bobby það sama,
glóðaðan steinbít.
Enski „butler"-inn heitir að sjálf-
sögu James og ber ættarnafnið Dav-
is-Mann. Hann mun þó ekki vera
skyldur tónlistarmanninum Man-
fred Mann.
Helgi Guðmundsson, eigandi
Póstbarsins, neitar því þó alfarið að
brottrekstur James Davis-Mann
tengdist Bobby Fischer á nokkurn
hátt. Síst af öllu vegna þess að Bobby
hafi ekki kunnað að meta breska
háttvísi James. „Þetta var bara mál á
milli okkar
James
ég lét hann
fara,“ segir
Helgi sem
saknar
þess að sjá
Bobby
Fischer
ekki lengur
á veitinga-
húsi sínu.
Upp á
síðkastið
hefur
Bobby
Fischer
vanið kom-
ur sínar á
Frakka við
Helgi Guðmundsson a
Póstbarnum Saknar
þess að sjá Bobby Fischer
ekkilengurog efast um
aö hann fái betri steinbít
á Þremur Frökkum.
Bobby og Sæmi fyrir
utan Þrjá Frakka Tylla
sérgjarnan á bekk fyrir
utan veitingastaðinn og
baða sig f kvöldsólinni
eftir góða máitið.
veitingastaðinn Þrjá
Baldursgötu. Dregur
Helgi á Póstbarnum í efa að þar fái
Fischer betri steinbít en hjá sér.
Bobby Fischer tekur
vin sinn Sæmund Páls-
son gjaman með sér á
Þrjá Frakka og tylla þeir sér út á
bekk í kvöldsólinni að loknum máls-
verði. Vekja þeir athygli nágranna og
jafnvel ferðamanna sem margir
hverjir þekkja Fischer í sjón. Eins og
sjá má á myndum sem DV birtir af
Fischer og Sæma á bekknum fyrir
utan Þrjá Frakka er Bobby orðin
verulega snyrtilegri nú en þegar
hann kom til landsins fyrir
skemmstu, fklæddur leðurfrakka og
með leðurhúfu í stíl.
Ekki náðist í enska „butler“-inn
James Davis-Mann þegar eftir því
var leitað í gær. Síminn hans var lok-
aður.
HHMH|
Hólmgeir Hólmgeirsson
rekstrarfræöingur er lánafulltrúi
á viðskiptasviöi
Ragáileiðtjr Þéfigilsdóttir
viðskiptáfræðipgur er lánafulltrúi
á viðskiptásviði
Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litiö inn
i Lágmúla 6, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is