Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Blaðsíða 13
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST2005 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST2005 13 Fréttir DV DV Fréttir F02605385 kt j.%þ seíxabm/Vi fe ÍSLANDS Gullkalfar Rikissjonvarpsins ■i m m 1ÉP ^ ■ DV birtir hér lista yfir tekju- háa íslendinga á árinu 2004 en álagningarskrá Ríkisskattstjór- a var lögð fram á föstudaginn. Sjónvarpsstjörnurnar bera ekki skarðan hlut frá borði og er athyglisvert að laun starfs- manna RÚV eru yfirleitt hærri en þeirra sem vinna á einkareknu stöðvunum. Það hefur löngum verið talið fólki fjötur um fót að vinna hjá ríkinu þegar kem- ur að launum. Það á þó ekki við um starfsmenn Ríkissjónvarpsins því þegar álagningarskrá Ríkisskattstjóra fyrir árið 2004 er skoðuð kemur í ljós að helstu gullkálfar stofnunarinnar bera mun meira úr býtum en kollegar þeirra á Stöð 2 og Skjá einum. Gísli Marteinn Bald- ursson, þáttarstjórn- andi og borgarfull- trúi ALDUR: 32 ára. TEKJUR2004:1,148 milljónir á mánuði. Gísli Marteinn hefur verið ein af gullgæsum Ríkissjónvarps- ins undanfarin ár með þátt sinn „Laugardagskvöld". Hann hefur einnig setið í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og verið vinsæll sem veislustjóri víðs vegar um landið, sérstaklega hjá hinum og þessum kvenfélögum. Sigmar Vilhjálmsson, Idol-kynnir og auglýsingasölumaður ALDUR: 28 ára. TEKJUR: 1 ,606 milljónir á mánuði. Jóhannes Ásbjörnsson, Idol-kynnir og námsmaður ALDUR: 25 ára. TEKJUR 2004: 225 þúsund á mánuði. Sigmar hefur vakið mikla lukku sem kynnir í hinni vinsælu Idol-keppni á Stöð 2. Auk þess hefur Sigmar verið dag- skrárstjóri Popptíví og selt auglýsingar fyrir stöðina. Hann hefur einnig verið duglegur við að leika í auglýsingum ásamt félaga sínum Jóhannesi. Jóhannes hefur verið kynnir í Idol- keppninni ásamt Sigmari og gert það gott. Hann hefur hins vegar verið í námi þar fyrir utan og það kann að skýra að Sigmar er með tæplega 1,4 milljón- um hærri mán- aðarlaun en Jóhannes. Elín Hirst, fréttastjóri hjá RÚV ALDUR: 44 ára. TEKJUR 2004: 968 þúsund á mánuði. TEKJUR2003: 495 þúsund á mánuði. Elín stýrir fréttastofu Ríkissjónvarpsins með harðri hendi og virðist ákaflega hörð í launasamningum. Laun hennar hafa í það minnsta hækkað um tæp- lega 100% á einu ári án þess vinnan hjá henni hafi sjáanlega aukist sem því nemur. Logi Bergmann Eiðsson, aðstoðarfráttastjóri RÚV ALDUR: 38 ára. TEKJUR2004: 871 þúsund á mánuði. Svanhildur Hólm Valsdóttir, þáttarstjórnandi á Stöð 2 ALDUR: 31 árs. TEKJUR 2004:652 þúsund á mánuði. Frægustu hjón íslands, Logi Bergmann Eiðsson og Svanhildur Hólm Valsdótt- ir, þéna samtals rúmlega eina og hálfa milljón á mánuði fyrir að koma fram í sjónvarpi. Logi Bergmann er, líkt og fé- lagi hans Gísli Marteinn, mjög vinsæll Páll Magnússon, útvarpsstjóri og fyrrverandi sjónvarps- og fréttastjóri Stöðvar 2 ALDUR:51 árs. TtKJUR 2004:1 ,982 milljónir á mánuði. Páll hefur undanfarið ár gegnt starfi bæði sjónvarps- og fréttastjóra hjá 365 ljós- vakamiðlum. Hann sagði starfi sínu lausu á dögunum en miðað við tekjur hans á síðasta ári hafa launin ekki verið ástæðan fyrir uppsögninni. Páll er kominn í nýtt starf sem útvarpsstjóri og miðað við tekjur annarra starfsmanna þeirrar stofnunar ætti honum að vera í lófa lagið að fá jafngóðar ef ekki betri tekjur á þessu ári. DV SK0ÐARTEKJURISLENDINGA á árinu 2004 Auðunn Blöndal, þáttarstjórnandi og Pétur Jóhann Sigfússon, þáttarstjórn- arínisti andi og grínisti DUR: 25 ára. ALDUR; 33 ára. TEKJUR 2004:782 þúsund á mánuði. TEKJUR 2004:666 þúsund á mánuði. Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), þáttar- stjórnandi og grínisti ALDUR: 27 ára. TEKJUR 2004: 647 þúsund á mánuði. Strákamir þrír, Auddi, Sveppi og Pétur, eru með vinsæl- ustu skemmtikröftum landsins. Þeir voru með hinn vin- sæla þátt 70 mínútur á Popptíví en færðu sig um set síð- asta sumar og fóru yfir á Stöð 2. Þeir hafa verið í lykilhlut- verki í umfangsmikilli auglýsingaherferð Símans að und- anfömu og em afskaplega vinsælir sem veislustjórar. Valgerður Matthíasdóttir, sjónvarpskona á Skjá einum ALDUR: 52 ára. TEKJUR: 322 þúsund á mánuði. Vala Matt hefur stýrt einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins, Innlit - útlit á Skjá einum, á undanförnum ámm. Hún er allt I öllu í gerð þáttarins, stýrir dagskrárgerð, klippir og kynnir, en samt em laun hennar af- ,rí^ skaplega lág miðað við 1? laun annarra sjón- t varpsstjarna. Hún hef- ur nú flutt sig um set s yfir á 365 ljósvaka- h miðla og er spurning hvort þessi sjón- varpsdrottning fái ekki borgað þar eins og henni sæmir. veislustjóri en auk þess að lesa fréttir er hann spyrill í Gettu betur og lýsir breska meist- aramótinu í golfi. Svanhildur Hólm var nán- ast keypt frá Ríkissjón- ý; r varpinu yfir á Stöð 2 eft- ® ® ir að hafa getið sér 'gott orð sem þáttarstjórnandi í Kastljósinu. Logi og Svanhildur gengu í það j heilaga í sumar og er I Ijóst að þau hafa vel haft' efni á því að halda eitt af ' stærstu brúðkaupum árs- •rjstfc- Bogi Agustsson, yfirmaður frettasviðs RÚV ALDUR: 53 ára. TEKJUR 2004: 854 þúsund á mánuði. Bogi hefur verið afskaplega iðinn við að lesa ff éttir á undan- förnum ámm og það hefur fært honum væna fúlgu í vasann fyrir utan venjuleg laun enda er sérstaklega greitt fyrir lestur í hverjum fréttatíma. r . Sigríður Arnardóttir (Sirrý), sjónvarpskona á Skiá einum ALDUR: 40 ára. TEKJUR: 490 þúsund á mánuði. Sirrý, eins og hún er alltaf köll- uð, er ókrýnd drottning spjall- þáttanna á fslandi, hin íslenska Oprah, en ber samt ansi skarð- an hlut frá borði miðað við kollega hennar á öðmm stöðv- um. Hún hefur hins vegar ákveðið að taka einn vetur í viðbót á Skjá einum og virðist V kunna vel við sig þar. Inga Lind Karlsdóttir, þáttar- stjórnandi á Stöð 2 ALDUR: 29 ára. TEKJUR 2004: 446 þúsund á mánuði. Inga Lind hefur getið sér gott orð sem þáttar- stjórnandi íslands í bítið á Stöð 2. Hún hefur verið kosin kynþokkafyllsta kona landsins hér í DV en það dugar henni einungis í 2/3 af tekj- um stöllu sinnar Svanhildar Hólm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.