Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2005, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir erfitt að lifa af leikskólakennaralaunum, en hún vann sjálf
á leikskóla á sínum yngri árum. „Það er mikilvægt að hækka laun leikskólakennara þótt við höfum ekki
sveigjanleika til að borga bónus að sama skapi og gert er á stöðum eins og Aktu taktu,“ segir Steinunn.
Hún segir leikskólamál hafa lagast í tíð R-listans og að börn komist mun fyrr að nú en áður.
Erfitt hefur reynst að ráða fólk til starfa á leikskólum og frí-
stundaheimilum í Reykjavík og DV hefur tekið viðtal við fólk sem
hefur leitað í önnur störf vegna launanna. Steinunn Valdís segir
lág laun leikskólakennara enga nýlundu, en segir mikilvægt að
breyta því. Sjálf vann hún á leikskóla á námsárum sínum við Há-
skóla íslands og segir að erfitt hafi verið að lifa af þeim launum.
Steinunn er ekki bjartsýn á samstarf Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar eftir kosningar og segir ágreining of mikinn í einstaka
málaflokkum.
Launamál skipta máli
Steinunn segist fylgjandi því að
leikskólastjórar og þeir sem sjá um
frístundaheimili fái aukið olnboga-
rými til að greiða yfirvinnu og álag
vegna undirmönnunar. „Ég sé hins-
vegar ekki að við höfum sveigjan-
leika til að borga bónus að sama
skapi og gert er á stöðum eins og
Aktu taktu," segir Steinunn. Hún
segir mikilvægara að leggja áherslu á
að gerð kjarasamninga verði flýtt.
„Þessi aðgerð mun kosta borgarsjóð
peninga, en launamálin skipta
máfi," segir Steinunn. Hún segir
starfsfólk leikskóla lengi hafa verið á
lágum launum og að þannig hafi
það verið um áratugaskeið.
Gat lifað af launum leikskóla-
kennara
Steinunn Valdís segist sjálf hafa
unnið á leikskólum, bæði á leikskól-
anum Sólhlíð og á leikskóla Félags-
„Leikskólastjórar fái
rými til að hækka
launin
stofnunar stúdenta. „Þetta var sum-
arvinna sem lengdist í fjóra mánuði
í hvort skipti,“ segir Steinunn og
bætir við að þetta hafi ekki verið vel
launað starf. „Ég gat lifað af launun-
um þótt það hafi verið erfitt," segir
Steinunn. Hún var 22-23 ára og
barnlaus þegar þetta var og fannst
gaman að vinna með bömum.
Vill gjaldfrjálsa leikskóla
Steinunn er fylgjandi því að leik-
skólar verði gjaldfrjálsir og vill lækka
leikskólagjöld í áföngum. „Núna er
aðeins greitt fyrir fimm af átta
stundum fyrir fimm ára börn," segir
Steinunn. Henni finnst óeðlilegt að
leikskólinn sé dýrasta skólastigið og
tekur dæmi af manni sem á börn á
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Borgarstjórinn framfleytti sér
áður með vinnu á leikskóla.
öllum skólastigum og segir dýrast
fyrir barnið sem er í leikskóla.
Steinunn segir mikla breytingu
hafa orðið frá því R-Ustinn tók við
borginni árið 1994. „Núna eiga öU
börn sem náð hafa 18 mánaða aldri
kost á leikskólaplássi," segir Stein-
unn, en bætir við að ekki sé víst að
þau komst inn á leikskóla í sínu
hverfi.
Steinunni finnst frekar ólíklegt að
samstarf takist milli Sjálfstæðis-
flokks og SamfyUdngar eftir næstu
borgastjórnarkosningar. „Okkur
greinir það mikið á í málaflokkum
t.d. um leikskólamál," segir Stein-
unn og bætir við að sjálfstæðismenn
hafi hafnað gjaldfrjálsum leUcskóla
og að þeir vUji einkarekstur í grunn-
skólum. hugwn@dv.is
'
.
veríð
fleirí
aldrei
■
mm
md
fyrsta
A
fjarnami
smn a Islandi
msoft
jgfpp Learning Solutions
■
Learning Solutions
Networking Infrastructure Solutions
OLD CERTIf
; 1 Í
'SwSSiií,WjSé&M
1ED
Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á: http://www.isoft.is/ eða í síma: 511 - 3080