Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Side 3
BV Fyrst og fremst
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 3
Fylgdist þú með stefnuræðu
forsætisráðherra?
Flott hjá honum
„Já, mér fannst hann koma þessu vel til skila þegar
ég hlustaði á hana. Stjórnarandstaðan reynir auð-
vitað alltafað vera málefnaieg í gagnrýni sinni, en
þetta var flott hjá honum."
Björn Pétursson verkstjóri.
„Nei.Ég
hefbara engan
áhuga á pólitík.
Það er kannski
bara unga kyn-
slóðin í dag."
Guðrún Ásta
Gunnársdóttir
barþjónn.
„Nei,
það gerði ég
ekki. Ég heflíka
lítinn áhuga á
þessu"
Stefán
Jónatansson,
verkamaður.
„Ég sá
hana ekki I sjón-
varpinu en heyrði
ávinning afhenni.
Þetta eru fögur
fyrirheit varðandi
framtíðina, en svo
á raunveruleikinn
kannski eftir að
leiða annað íIjós."
Hlynur Ás-
kelsson
tónlistarmaður.
„Nei,
því miður. Ég
hefekki kynnt
mér ræðuna
nógu vel."
Lilja Dögg
Helgadóttir
nemi.
Spurning dagsi
Það fylgdust fleiri en alþingismenn með stefnuræðu forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin ræðst á hreyfihamlaða
Gift glæpamanni
í fjáxlagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar,
sem lagt var fram í
gær, finnur hún verð-
uga matarholu á
þessum
allsnægtar-
tímum. Af-
lögufærir að
hennar mati
eru hreyfi-
hamlaðir sem
hafa bensínstyrk
frá Tryggingastofnun
ríkisins. Þennan styrk á að taka
af fötluðum með einu
pennastriki. Til
að vega upp á
móti þessu
ætla stjórn-
völd að hækka
dagsin
hömluðum til lítillar
bjargar því að þeir
eru ekkert endilega
með þann bótaflokk.
[...] Með þessari aðgerð rikis-
stjórnarinnar er kippt undan
þeim fótunum í orðsins fyllstu
merkingu. Mikið hefur verið rætt
um mikilvægi þess að öryrkjum
og þá ekki síst hreyfihömluðum
verði auðveldað að taka þátt í at-
vinnulífinu og öðrum þáttum
samfélagsins. Með
þessari aðgerð
rikisstjórnar-
innar er verið
að gera þeim
mun erfiðara en
ella og jafnvel
ómögulegt
taka þátt
samfélag-
inu.
tekjutrygging-
araukann, en
það kemur hreyfi-
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir skrifar á heimasíðu sína: althingi.is/arj
Það kom mér verulega á óvart
að hlýða á þingmann
VG, Kolbrúnu Hall-
dórsdóttur, í morgun
í morgunþætti Stöðv-
ar 2. Kolbrún Hall-
dórsdóttir sá ekkert
athugavert við það ai
fyrrverandi dómsm;
ráðherra Sólveig Pétursdóttir
yrði forseti Alþingis. Ég tel að á
flestum vestrænum þjóðþingum
yrði sett spurningarmerki við
kjör persónu þar sem maki ligg-
ur undir grun um að vera höfuð-
paurinn í olíusamráðssvindli
sambærilegu
þvi sem hér
um ræðir,
sérstaklega
í ljósi þess
að svindlað
var á lögregl-
unni og Land-
helgisgæslu á
meðan Sólveig Pétursdóttir var
æðsti yfirmaður þessara stofn-
ana.
Afstaða vinstri-grænna
kemur mér sérstaklega á
óvart í ljósi þess að lögreglan
hefur ekki lokið rannsókn á
öllum þráðum þessa máls.
Einnig má nefna að það er nötur-
leg staðreynd að í kjölfar olíu-
samráðsmálsins studdi Sólveig
Pétursdóttir að Sam-
keppnisstofnun, eft-
irlitsstofnunin sem
kom upp um olíu-
samráðið, væri
lögð nið-
ur.
Magnús Þór Hafsteinsson skrifar á heimasíðu sína: althingi.is/magnush
ROKOG KULDI
Þarna
huy
saði
með
að
mer
engmn
iorsætisráðh
fyrr
erra
siðar
ne
i mundi bera
aumingjalega
sig svona
við
þessar aðstæður
íl”
Ekki
emu
sxnni
stemnPálss
hann hafi þ
slæmur
Var að bíða eftir strætó á Lækjargötunni um
daginn í skýlinu sem er beint á móti Stjómar-
ráðinu. Sá þar Halldór Ásgnmsson skakklappast
frá bílastæðinu í rokinu og kuldanum. Hann var að
tala í gemsa og hélt í frakkann sinn með annari hend-
inni svo að hann flaksaði ekki út um allt. Hann svona
nánast skreið inn í Stjómarráðið undan veðurhamn-
um. Þama hugsaði ég með mér að enginn forsætisráð-
herra, fyrr né síðar, mundi bera sig svona aumingja-
lega við þessar aðstæður. Ekki
einu sinni Þorsteinn
Pálsson, þó að hann
hafl þótt slæmur.
Halldór Ásgrfrns-
son er sennilega
veikasti forsætis-
ráðherra íslands-
sögunnar. Hann
hefur svipað fylgi
á bak við sig og
Gunnar Örlygsson,
fyrrverandi fangi og
iiðhlaupi úr Frjáls-
lynda flokknum. Hann
hefur lítinn sem engan
stuðning hjá þingflokknum,
vegna þess að hann
búinn að koma svo illa
fram við fólk eins
og Siv, Krist-
inn H., Jónínu og fleiri. Hon-
um er stjórnað eins og brúðu
af sjálfstæðismönnum og ung-
um framsóknarplottumm sem
hann hefur ofurtrú á og heldur
að muni styrkja stöðu hans í
framtíðinni. Staða hans er í besta
falli aumkunarverð.
Annan framsóknarmann sá ég um
daginn á Snorrabrautinni. Það var súld og
dumbungur. Hann stóð við gönguljós og
beið eftir því að komast yflr. Hann var
svo krumpaður að ég hugsaði með mér
að þessum manni mundi ég aidrei stoppa
fyrir ef hann væri að biðja um far. Þetta
reyndist vera Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra. Held reyndar að hann leyni á sér og sé ágætiskarl,
en staða hans þarna á Snorrabrautinni sagði mér meira
en mörg orð. Þarna er á ferðinni holdgervingur Fram-
sóknarflokksins. Krumpaður maður með enga sérstaka
hugsjón eða stefnu sem bíður bara eftir grænu Ijósi til að
komast yfir götuna í átt að góðu djobbi.
Það er reyndar nokkuð sannleikskorn í því að öll
stöndum við jafnfætis í vondu veðri. Sem er kannski
skýringin á því að stéttaskipting er ekki meiri á íslandi
en raun ber vitni. En við berum okkur misvel. Sumir
ganga óhræddir í gegnum storminn innblásnir af hug-
sjónum á meðan aðrir bera hönd fyrir höfuð sér og bera
sig lúpulega. Þannig er með æðstu menn innan
Framsóknaflokksins. Það er kannski rangt að segja
„æðstu“ menn. Þetta eru bölvaðar gungur.
Kjallari
Sigurjón Kjartansson
mmm
HONNUN
4
S¥|#l
VERSLUN MEÐ SERSTOÐU
REKIN AF STÍLISTA!
LITTU VIÐ EÐA
HAFÐU SAMBAND!
RAÐGJOF ASAMT ÞJONUSTU
FATASTÍLL OG LITGREINING
STH.ISTINN, TISKA OG STILL.
SUNNUMÖRK, H VERAGERÐI
SIMI 483-4121