Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005
Fréttir 0V
Starfsmenn Ríkislögreglustjórans gerðu í gærmorgun húsleit hjá Jóhannesi B.
Skúlasyni sem rekur símaþjónustufyrirtækið Skúlason ehf. Var bæði ráðist til at-
lögu á heimili Jóhannesar á Vesturgötu svo og á skrifstofu fyrirtækisins á Lauga-
vegi. Samtimis fóru fram viðamiklar lögregluaðgerðir i London en Jóhannes er tal-
inn tengjast umfangsmiklu fjársvikamáli sem teygir anga sina viða um Evrópu.
ið bruðl
Frjálshyggjufélagið hef-
ur sent frá sér ályktun þar
sem byggingu tónlistarhúss
við Reykjavíkurhöfn er
mótmælt harðlega. Félagið
segir að ekki hafi verið bent
á nein rök fyrir því að rétt-
lætanlegt sé að „þvinga al-
menning til að greiða fyrir
áhugamál útvalinna borg-
ara," eins og frjálshyggju-
menn komast að orði í til-
kynningu sinni. „Mikill
uppgangur er í samfélaginu
og bruðl í formi tónlistar-
húss fyrir rúman tug millj-
arða er óábyrgt, fyrir utan
að vera óréttmæt og óskyn-
samleg framkvæmd," bæta
þeir við.
Tónlistarhús-
Urriðaholt
skipulagt
Garðabær og Urriðaholt
ehf. hafa gert með sér
samning um uppbyggingu
Kauptúns í Urriðaholtk
Kauptúnið liggur við
Reykjanesbraut í fæti Ur-
riðaholts. Gert er ráð fyrir
röð stórra verslana í sér-
stæðum byggingum. Versl-
unin IKEA stefnir að því að
ný verslun verði opnuð á
svæðinu haustið 2006. Ur-
riðaholt er eigandi landsins
og mun annast allar fram-
kvæmdir þar s.s. gatnagerð
og frágang opinna svæða.
Dýrir í
uppihaldí
Ferðakostnaðarnefnd
hefur ákveðið nýjar upp-
hæðir dagpeninga sem
gilda til greiðslu gisti- og
fæðiskostnaðar ríkisstarfs-
manna á ferðalögum inn-
anlands á vegum ríkisins.
Ríkisstarfsmenn fá 8.300
krónur fyrir gistingu í eina
nótt og sex þúsund krónur í
fæði fyrir hvern heilan dag.
Alls 14.300 krónur fyrir gist-
ingu og fæði í einn sólar-
hring. Fimm daga ferðalag
ríkisstarfsmanns hér innan-
lands kostar því ríkissjóð
71.500 krónur.
Johannes B. Skúlason
Ert talinn tengjast viða-
miklu fjársvikamáli og
peningaþvætti i London.
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjórans gerði í gær húsleit á
einkaheimili og í fyrirtæki í Reykjavík í tengslum við umfangs-
mikið fjársvikamál og peningaþvætti í Evrópu sem teygir anga
sína til Reykjavíkur.
Húsleitin var gerð í fyrirtækinu
Skúlason ehf. á Laugavegi 26 og á
heimili eigandans, Jóhannesar B.
Skúlasonar á Vesturgötu.
Aðgerðir lögreglu voru gerðar að
beiðni breskra lögregluyfirvalda og
hófust á sama tíma í Reykjavfk og
London.
Hélt hann væri í bíómynd
„Ég var á leið í vinnuna þegar lög-
reglan birtist með húsleitarheimild,"
segir Jóhannes B. Skúlason, sem rekið
hefur símasölufyrirtæki sitt og svar-
þjónustu í mörg ár. „f fyrrakvöld var
ég að horfa á breska sakamálamynd
og þegar ég vaknaði fannst mér ég
vera orðinn hluti af henni sjálfur,"
segir hann.
Að sögn Jóhannesar var lögreglan
skipulögð í húsleit sinni en hafði ekk-
ert á brott með sér af heimili hans á
Veturgötunni annað en fartölvu. Á
skrifstofunni á Laugavegi vom fúns
vegar skjöl íjarlægð og afrit tekin af
tölvubúnaði.
Erlendir fjárfestar
„Ég hef ekld hugmynd um hvern-
ig fyrirtæki mitt tengist þessari um-
„í fyrrakvöld var ég
að horfa á breska
sakamálamynd og
þegar égvaknaði
fannst mér ég vera
orðinn hluti afhenni
sjálfur."
fangsmiklu lögregluaðgerð," segir
Jóhannes. „Við höfum verið að
kynna fyrirtæki okkar í Bretlandi og á
Norðurlöndum og fengið aðila til að
fjárfesta. Mér er næst að halda að
nafn fyrirtækis okkar hafi dúkkað
upp í rannsókninni ytra og þess
vegna sé gripið til þessara aðgerða
hér."
Jóhannes B. Skúlason var ekki
handtekinn í gær en yfirheyrður af
lögreglu. Jóhannes segist hafa svarað
lögreglunni eftir bestu getu en h'tið
skilið í spumingunum:
„Ég var spurður um hún og þessi
nöfn sem ég þekkti ekkert og mér
fannst þeir htið græða á því að spyrja
'
sm
Skúlason ehf. Til húsaað Laugavegi 26 þar sem Jón Ólafsson íSkifunni hafði áður skrifstofur
sínar.
mig. En þeir ætla að halda áfram að
spyrja mig í dag. Ég veit það eitt að ég
er saklaus," segir Jóhannes B. Skúla-
son sem er hálffertugur og hefur
stimdað viðskipti í Reykjavík frá því
hann var komungur.
f tilkynningu frá Ríkislögreglu-
stjóranurn í gær segir að bresk lög-
regluyfirvöld séu nú að rannsaka um-
fangsmikil ijársvik í Bretlandi og pen-
ingaþvætti sem felst í því að koma af-
rakstri ætlaðra fjársvika undan. Fjár-
svikin em tahn felast í kerfisbundinni
sölu Júutabréfa í fyrirtækjum og
blekkingum, röngum, villandi upp-
lýsingum um fyrirtæki og væntanlega
skráningu í kauphöllum.
Lygasímtöl frá Reykjavík
I ljósi þess að Jóhannes B. Skúla-
son rekur símaþjónustufyrirtæki er
ekld ólíklegt að hann hafi verið með
starfsmenn í slíkum símtölum en ljóst
er að Jiringt var frá Reykjavík til Bret-
lands með alls kyns gylhboð sem htill
fótur var svo fyrir þegar til átti að taka.
Þessu vísar Jóhannes B. Skúlason hins
vegar alfarið á bug.
Sissel er ekki köttur í sekk
Sjaldan hefur Svarthöfði orðið
eins sár og þegar hann las gagnrýni
á tónleika Sissel Kyrkjebö hér í DV.
Einhver Sigurður Þór Guðjónsson
segist hafa keypt köttinn í sekknum
og finnur tónleikum norsku söng-
stjörnunnar allt til foráttu. Sissel,
sem er draumur allra norrænna
karlmanna, söng eins og lævirki í
Grafarvogskirkju fyrir nokkrum
dögum og gerði það vel. Svarthöfði
hlustaði á tónleikana á Rás 2.
Gagnrýni Sigurðar Þórs Guð-
jónssonar sýnir að gagnrýnendur
þurfa að vera rómantískir fari þeir á
rómantíska tónleika. Líkt og fýlu-
Svartf ði
púkar eru bestir í fýlu. Og það var
gagnrýnandinn bersýnilega á þess-
um frábæru tónleikum Sissel
Kyrkjebö í Grafarvogskirkju.
Svarthöfði hefur oft hlustað á
tónlist í Grafarvogskirkju og þá sér-
staklega hlýtt á orgelleik frábærs
organista kirkjunnar í fleiri en
tveimur jarðarförum. Organistinn
er dálítið djassaður í útliti og leik og
gefur útförum því eilítinn léttleika
og veitir ekki af.
En aftur að Sissel: Svarthöfði var
Hvernig hefur þú það?
„Ég er að lesa undirprófí viðskiptafræði sem er á föstudaginn," segir Guðmundur Valur Stefáns-
son fiskifræðingur.„Þetta erskyndiprófí MBA-námi sem ég byrjaði í núna í haust og ég get ekki sagt
annað en að þetta sé ansi töffnám. Annars er konan mín líka íþessu námi og það er mikill stuðn-
ingur sem við fáum hvort frá öðru. Svo fer ég út áð labba með tíkina okkar, hana Grímu, þegar
ég er orðinn þreyttur á lestrinum. “
í bifreið sinni á rauðu
ljósi á nýju hraðbrautinni
fyrir neðan BSÍ þegar
hann hlýddi á söng Sissel
sem hljóðritaður hafði
verið af ríkisvaldinu í
Grafarvogskirkju. Svart-
höfði gleymdi stund og
stað. Sat dolfallinn á
rauðu ljósi, síðan gulu,
þá grænu og loks rauðu
aftur og svo koll af kolli í
nokkrar umferðir ljósatil-
brigðanna þriggja. Það
var þegar Sissel söng
Sofðu unga ástin mín á íslensku
sem upplifun Svarthöfða náði há-
punkti. Um leið ók strætisvagn aft-
an á kyrrstæða bifreið Svarthöfða á
grænu ljósi. Lokatónn söngsins í
bland við brothljóð járns og glers í
árekstri dagsins: líkast fullnægingu.
Það á ekki að gagnrýna Sissel
Kyrkjebö. Hún er betri en svo. Það
veit Svarthöfði þar sem hann situr
með hálskraga og hlustar á uppá-
haldsplötuna sína með Sissel þar
sem hún syngur lögin úr Sound of
Music betur en Julie Andrews. ís-
lendingar verða að læra að sýna
gestum sínum virðingu. Ekki rakka
þá niður.
Svarthöföi