Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 Fréttir DV Árás í Smáralind Lögreglustjórinn í Kópavogi hefur gefið út ákærur á hendur þremur sautján ára Kópavogsbú- um, þeim Sölva Frey Sölvasyni, Martin Jóni Þrastarsyni og Unnsteini Almari Jónassyni fyrir að hafa veist að tveimur drengjum með höggum og spörkum. Árásin er sögð hafa verið gerð i febrúar á þessu ári á bílastæðinu fyr- ir utan Smáralind. Þeir sem urðu fyrir hinni meintu áras hlutu ýmis meiðsl og krefjast skaða- bóta. Rafmagnið fór Alvarleg háspennubil- un varð í Reykjavík rétt fyrir klukkan sex í gær sem leiddi til þess að að- veitustöð Orkuveitunnar í Elliðaárdal sló út. Stór hluti borgarinnar varð rafrnagnslaus í nærri klukkustund. Að því er Orkuveitan segir varð raf- magnsleysið mest í Ár- bæjar- og Breiðholts- hverfum en einnig í Rétt- arholti og Fossvogi og í hverfum í Kópavogi. Truflanir urðu þó mun víðar um borgina. Raf- magn var að fullu komið á þegar klukkan var kort- er gengin í átta í gær- kvöld. Ráðherrar fóru út Flestir ráð- herrarnir voru ijarverandi jíegar Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra lagði fram frumvarp um ráðstöfun á söluandvirði Landssímans á Alþingi í gær. Þegar utandag- skrárumræðu lauk og Hall- dór tók til máls fóru flestir úr þingsal. Eftir sátu innan við 10 alþingismenn. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sat í nokkrar mínút- ur en mestallan tímann meðan Halldór talaði var enginn ráðherra viðstadd- ur. í lok ræðunnar kom Geir H. Haarde utanríkis- ráðherra og hlustaði á for- sætisráðherra ljúka máli sínu. Prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson seldi húsið sitt eftir að hann frétti af niðurstöðu dómstóla í Bretlandi í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar á hendur honum. Kaupandinn var Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Hannes býr ennþá í húsinu. Sýslumaður tekur fyrir 12 milljóna króna fjárnáms- beiðni Jóns Ólafssonar í dag. Seldi Kjartani húsjð til að borna Joni 0. r.i " Tveimur dögum eftir að Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var birtur dómurinn í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar á hendur hon- um samdi hann um afsal íbúðar sinnar til Kjartans Gunnarsson- ar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. „Ég seldi Kjartani húsið til að eiga fyrir kostnaði við málið,“ segir Hannes Hólm- steinn. Dómstólar í Bretlandi dæmdu Hannes Hólmstein Gissurarson pró- fessor til greiðslu tólf mifljóna ís- lenskra króna í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar á hendur Hannesi. Jón Ólafsson er nú hér á landi og hefur lagt fram ijámámskröfú á hendur Hannesi. Ef Sýslumaðurinn í Reykja- vík verður við fjámámsbeiðninni mun Hannes þurfa að reiða fram 12 millj- ónir. Ef hann gerir það ekki verður gert fjámám í eignum Hannesar. Þær eignir hafa rýmað til muna því tveimur dögum eftír að Hannesi var birtur dómurinn afsalaði hann húsi sínu á Hringbraut til Kjartans Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins. Leigir af Sjálfstæðisflokknum ‘ign I f gögnum frá Sýslumanninum í Reykjavík kemur fram að núverandi eigandi Hringbrautar 24 er fyrirtækið Skipholt ehf. Fyrirtækið er skráð á heimilisfang Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins. Kjartan Gunnarsson skrifar einnig undir afsalið fyrir hönd Skipholts. í stjóm Skipholts er einnig Hörður Ein- arsson sem er framkvæmdastjóri fjár- málaráðs Sjálfstæðisflokksins. Hann- es Hólmsteinn býr ennþá í húsinu þrátt fyrir að gengið hafi verið frá kaupsamningum þann 6. september. Vottur að afsali er Heimir öm Her- bertsson lögmaður sem tók við mál- um Jóns Steinars Gunnlaugssonar þegar hann var skipaður hæstaréttar- dómari. Vildi afla lausafjár „Hann ætlar að Júrða af mér íbúð- ina mína. Um það snýst fjámáms- „Ég var að afía mér lausafjár til að geta greitt þetta. Ég mun greiða þetta en ekki skjóta eignum undan beiðnin," sagði Hannes Hólmsteinn þegar DV hafði samband við hann í gær og bætti við. „Maður getur þó kannski fengið að gista í Þjóðarbók- hlöðunni þar sem ég vinn öllum stundum." Þegar honum var bent á að hann ætti ekkert hús sagðist hann hafa selt húsið til að geta átt fyrir kostnaði við málið. „Ég vildi eiga pen- ing fyrir lögfræðikostnaði. Ég mun greiða Jóni Ólafssyni en ekM skjóta eignum undan.“ Hannes segist borga Kjartani leigu. „Ég vildi frekar selja Kjartani húsið en á frjálsum markaði. Maður getur þá vonandi keypt það af honum aftur þegar málinu lýkur.“ Berst fyrir sínu Athafnamaðurinn Jón Ólafsson segist í dag ekM láta neinn ganga yfir sig. „HvorM Hannes Hólmstein né Davíð Oddsson," segir hann en á síð- asta ári var Davíð dæmdur fyrir meið- yrði í garð Jóns. Næstur í röðinni var góðvinur Davíðs, Hannes Hólm- steinn. „Þegar ég var yfirmaður fjöl- miðla taldi ég að ég þyrití að láta ým- islegt yfir mig ganga. En ekM í dag. Prófessor í Háskóla íslands hefur ekk- ert veiðileyfi á mig.“ EkM náðist í Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins. simon@dv.is Hringbraut 24 Hannes býrenn- þd Ihúsinu en gat ekkisvarað því hve háa leigu hann borgaði Kjart- ani Gunnarssyni. TUTTt' Sakaður um óheiðarleg viðskipti Upphaf deilna þeirra Jórts Ólafssonar og Hannesar Hóimsteins Gissurar- sonar má rekja til erindis Hannesar á ráðstefnu norrænna blaðamanna í Reykholti 1999. Þar sagði Hannes að Jón byggði viðskiptaveldi sitt á óheiðarlegum viðskiptum og dópsölu. Jón hóf undirbúning málaferla hérá landi en féll svo frá þeim. Þegar Hannes birti svo ummælin á heimasíðu sinni tók Jón Ólafsson málið upp á ný, í þetta skipti I Bretlandi. Jón sagði að þessi ummæli væru flutt heimsbyggðinni allri með birtingu þeirra á vefnum. Hannes varði sig ekki fyrir dómnum í Bretlandi og tapaði málinu. Hlutur aldraðra minnkaður í fjárlögum Yngra þing verra öldruðum í fjárlagafrumvarpi ársins 2006 er rekstraruppbót vegna bifreiða ellilíf- eyrisþega, örorkulífeyrisþega og ör- orkustyrkþega felld niður. Ölafur Ólafsson, fyrrverandi formaður Landssambands eldri borgara og landlæknir, telur að ástæðumar séu nokkrar. EkM síst sú að meðalaldur þingmanna fer lækkandi. „Það tala margir um þetta. Meðal annars breskir og skandinavískir fjöl- miðlar. Þeir benda á að ein af ástæð- um þess að öldruðum sé raðað neðar KBBEBEM Alþingi eins og aðrir Ólafur segir að það sama sé uppi á teningnum I öðrum löndum Norður- og Vestur-Evrópu. í forgangsröðinni sé að meðalaldur þingmanna fer lækkandi. Ástæðan er að minnsta kostí ekM sú að öldmðmn fari fækkandi. Síðustu ár hefúr verið Við erum að matreiöa þorsk á spænskan máta hér t Vigo á Spáni í tengslum við sjáv- arútvegssýningu sem ég er staddur á/'segir Þórólfur Arnason, forstjóri lcelandic Group - áður Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.„Við erum með mjög öflugt fyrirtæki hérsem er leiðandi ísölu á söltuðum þorskflökum, lcelandic Iberica, og núna er ég að sinna viðskiptum og viðskiptavinum." dregið úr fjárveitingum til aldraðra alis staðar í Norður- og Vestur-Evr- ópu. Sama hvort þar em hægri eða vinstri stjómir," segir Ólafur. Hann er ekM viss um að sjálfur bílstyrkurinn, sem felldur var niður, hafi mikil áhrif. Hins vegar sé það stað- reynd að kjör margra aldraðra hafi versnað síðustu tí'u ár. „Menn byrja smátt. Það er kosningaár framundan og. því ekM miHarf breytingar. En það er staðreynd að kaupmáttur aldraðra lækkar með hverju ár- Ólafur Ólafsson Telur að ein af ástæðum þess I að aldraðir fá minna úr að spila sé lægri meðal-1 aldur þingmanna. Þagnarheit á vídeóleigu Persónuvemd hefur endumýj- að leyfi sem gefur Myndmark heimild til að safna upplýsingum og reka gagnabanka um vanskil viðsMptavina myndbandaleiga. í leyfinu er kveðið á um að allir starfsmenn myndbandaleiga skuli undirrita þagnarheit þegar þeir hefja störf. Myndmark má saftía upplýsingum frá myndbandaleig- unum á einn lista í sérstöku tölvu- kerfi myndbandaleiganna. Skrá má nöfii, kennitölur og vanskil, til dæmis hvort leigugjöld hafi ekM verið greidd eða myndbandsspólu ekM verið skilað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.