Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Síða 10
1 0 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Hrönn er hörkudugleg kjarn-
orkukona sem er drifín áfram
afeldmóði og seiglu.
Hún á samt erfitt með að
deila ábyrgð auk þess sem
hún mætti fara beinni leiðir
að hlutunum.
„Hrönn er fyst og fremst
dugleg og drlfandi og
framkvæmir hugmyndir
sínar. Hún er mikil kjarn-
orkukona eins og sjá má
á Kvikmyndahátíðinni. Hún hef-
ur gott sjálfstraust og trú á
sjálfri sér og því sem hún gerir.
Hún á samt erfitt með að deila
ábyrgð, treystir illa dómgreind
annarra og vill helst taka
ákvarðanir ein og gera hlutina
sjálf. Svo er hún óskipulögö og
gerirhlutina á slðustu stundu."
Helena Stefánsdóttir, samstarfskona.
„Hrönn er ein afþeim
manneskjum sem er
drifin áfram afmiklum
eldmóði og seiglu og
það er engin leið að
stöðva hana þegar hún ákveður
að taka sér eitthvað fyrir hend-
ur. Það má vel sjá á Kvikmynda-
hátiðinni sem nú stenduryfir að
hversu ríkulegan ávöxt það get-
ur borið. Hún er stefnuföst og
hreinskilin og óhrædd við að
taka slaginn sem getur stund-
um valdið ófriði I kringum
hana. En þá skiptir miklu að
hún er ekki langrækin og missir
ekki sjónar á langtímamark-
miðum."
Pétur Blöndal, vinur.
Hrönn er mjög þrautseig
og gefst ekki upp þótt á
móti blási. Ég held hún
sé mjög góð móðir og
mikil og góð fjölskyldu-
manneskja sem sinnir börnun-
um sínum vel. Það ermikil
dyggð I nútímasamfélagi, sér-
staklega þegar fólk stendur I
stórræðum. Hún þvælir kannski
hlutunum ofmikið fyrirsérog
mætti fara beinni leiðir að
markmiðum slnum.
Mireya Samper, samstarfskona.
Hrönn Marfnósdóttir er framkvæmdastjóri
Alþjóölegrar kvikmyndahátíöar sem nú
stendursem hæst. Hún á aö baki MBA próf
frá Háskólaum í Reykjavík og B.A. prófí
stjórnmálafræöi frá Háskóla íslands. Hún
hefur starfað sem blaðamaður á Moggan-
um og stýrt spænskri kvikmyndahátíö i
Reykjavík. Hrönn er fædd í maí áriö 1965
Sameinist
gegn mávum
Hreppsnefndin í Vogum
í Vatnsleysustrandarhreppi
óttast að sflamávur sem
flæmdur verður frá Kefla-
víkurflugvelli færi sig ein-
faldlega um set og taki sér
þó hugsanlega bólfestu á
Strandaheiði. Hrepps-
nefndin segist taka undir
nauðsyn þess að stemma
stigu við fjölgun sflamávs í
námunda við flugvöllinn en
telur að ef fælingaaðgerðir
leiði til þess að fuglinn flytji
sig um set og fjölgi annars
staðar þá eigi það að vera
sameiginlegt verkefni sveit-
arfélaganna á svæðinu að
takast á við þann vanda.
Knattspyrnumaðurinn Scott Ramsey getur prísað sig sælan með niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjaness frá í gær. Ramsey þarf aðeins að sitja inni í þrjá mánuði þótt hnefa-
högg hans hafi banað ungum dönskum hermanni sem hét Flemming Tolstrup.
Scott Ramsey Ásamt
konu sinni Birgittu.
Dómur Héraðsdóms Reykja-
ness vekur upp spurningar um
hvort LofturJens Magnússon,
sem varð manni að bana með
svipuðum hætti og Scott, á
sveitakránni Ásláki í Mosfells-
bæ síðastl. desember, megi
búast við jafn vægum dómi.
í i 1 - J
lU 1 í
n í fu . j rr
1 M —y — J 3.
Knattspyrnumaðurinn Scott Ramsey þarf aðeins að afplána þrjá
mánuði af átján mánaða fangelsisdómi sem hann var í gær
dæmdur til. Þungt hnefahögg Scotts varð danska hermanninum
Flemming Tolstrup að bana á skemmtistaðnum Traffic í Kefla-
vík. Dómur var kveðinn upp í málinu í gær.
Þóra Steffenssen réttarmeina-
fræðingur, sem bar vitni í málinu,
sagði að högg Scotts hafi komið efst
við hægra kjálkabein Flemmings og
vafdið blæðingu í mjúkvefjum og
vöðvum sem festast við eyrað. Við
það hafi komið rifa í háfsslagæð og
mikil blæðing hafi fylgt í kjölfarið.
Flemming Tolstrup hafi vegna þessa
látist nær samstundis.
Fyrirvaralaus árás
Afbrýðissemi er ástæða þess að
Scott Ramsey veitti Ffemming Tolstr-
up svo afdrifarflct hnefahögg. Scott
lýsti því fyrir dómi hvernig umleitan-
ir Flemmings í garð konu sinnar,
Birgittu, hefðu smám saman reitt
hann meir og meir til reiði. Svo mjög
að aðeins lítil áeggjann vinkonu varð
til þess að Scott gekk upp að her-
manninum unga og veitti honum fyr-
irvaralaust banvænt hnefahögg.
Þrír en ekki átján
Scott Ramsey játaði brot sitt
greiðlega og mótmælti ekki tveggja
milljón króna skaðabótakröfu fjöl-
skyldu mannsins sem hann banaði.
Dómendur í málinu tóku tillit til
þessa. í niðurstöðu þeirra segir að
Scott hafi aldrei brotið af sér áður.
Hann sé reglusamur, stundi fasta
vinnu og hafi afdrei ætlað að vinna
manninum slíkt tjón sem raun varð.
Að þessu gefnu var niðurstaðan
átján mánaða fangelsisdómur. At-
hygli vekur þó að fimmtán af þess-
um átján mánuðum eru skilorðs-
bundnir og því þarf Scott aðeins að
sitja inni í þrjá mánuði.Llögfróðir
menn sem DV ræddu við í gær
sögðu að Scott mætti prísa sig sæfan
með þessa niðurstöðu.
Hvað með Loft?
Dómur Héraðsdóms Reykjaness
vekur upp spurningar um hvort
Loftur Jens Magnússon, sem varð
manni að bana með svipuðum hætti
og Scott, á sveitakránni Ásláki I Mos-
fellsbæ síðastliðinn desember megi
búast við jafn vægum dómi. Aðal-
meðferð hefst innan skamms í því
máli en beðið er niðusstöðu
dómskvaddra matsmanna sem
vinna nú að því að fara yfir krufn-
ingarskýrslu.
Scott Ramsey vildi ekki tjá sig um
niðurstöðuna í sínu máli þegar DV
hafði samband við hann í gær.
andri@dv.is
Vill að ríkisstjórnin hjálpi Arcni Pálma.
Umframmagn örvera í remúlaði úr Bónus.
Pólitísk aðkoma nauðsynleg
Rfldsstjórinn í Texas hefur hafiiað
náðunarbeiðni Arons Pálma Ágústs-
sonar. Áður hafði rfldsþing Texas
samþykkt beiðnina og mælt fyrir
henni. Ágúst Ólafur Ágústsson, vara-
formaður Samfylkingarirmar og þing-
maður, hefur í kjölfarið farið fram á
utandagskrárumræðu um málefni
Arons Pálma. Hann telur ljóst að póli-
tísk afskipti af hálfú ríkisstjómarinnar
séu nauðsynleg til að skriður komist
ámálið.
„Ég hef fengi talið nauðsynlegt að
við stjómmálamenn virmum í mál-
inu. Pólitísk aðkoma er mikilvæg,"
segir Ágúst Ólafur. Fyrir tveimur
árum síðan tók Ágúst málið upp á
þingi og fékk jákvæð viðbrögð frá
rfldsstjóminni. Síðan þá hafa þrír
menn setið í stóli utanrfldsráðherra
en h'tið bólað á viðbrögðum.
Ágúst segist ekki vita hve marga
utanríkisráðherra þarf til að málið
komist í farveg. „Ég veit það ekki. Eina
sem ég veit er að við þurfum að beij-
ast fyrir frelsi þessa drengs."
f fangelsi íTexas
Náðunarbeiðni Ar-
ons Pálma varhafn-
að af Rick Perry, rlk-
isstjóra ÍTexas.
Agúst Ólafur
Ágústsson alþingis-
maður Fer fram á um-
ræðu um Aron Pátma.
Bónus innkallar
remúlaði
Matvömverslunin Bónus hefur
sent frá sér beiðni til neytenda sem
kunna að hafa í fómm sínum Bón-
us-remúlaði, með síðasta neysludag
09.01.06 eða fyrr, því í ljós hefur
komið að varan er skemmd. Reglu-
bundin athugun sýndi að remúlaðið
innihélt of mikið magn af tiltekinni
örvem og var uppmni örvemnnar
rakin til krydds sem framleiðandi
notaði í remúlaðið.
„Samkvæmt okkar upplýsingum
er remúlaðið ekki talið skaðlegt
heilsu fólks en við viljum vera ör-
uggir og þess vegna er varan innköll-
uð,“ segir Svanur Valgeirsson, for-
svarsmaður Bónuss.
Framleiðsla remúlaðsins hefur
þegar verið stöðvuð og allt skemmt
remúlaði fjarlægt úr hillum Bónus-
verslana.
„Það var gott að upp komst því
enginn vlll vera með skemmda vöm
í umferð," segir Svanur sem skorar á
fólk að skila remúlaðinu. Hann segir
jafnframt að Bónus muni bæta neyt-
endum remúlaðið.
svavar@dv.is