Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Side 31
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 31 Úr bloggheimum Kynjabundinn launamismunur „Ég held þessi munurstafi af lágu sjálfsáliti og ákveðn- um vana til að sætta sig við hlutina. Það hefur oft verið talinn styrkur okkar fslendinga. Þolinmæðin og þrautseigjan, dugurinn og kjarkurinn þó vindar og frost bíti og geri okkur erfiðara fyrir. Er vinnu- markaðurinn ekki rangur vettvangur til að gera sér erfitt fyrir og sætta sig við slæm kjör? Við dömurnarþurfum aðeins að meitla þetta með tímanum og vitið til, þetta jafnast út... ég er viss um það." Védis Hervör - veddarinn.blogspot.com Matvandur „Ég get ekki annað en hafið skrifmín á þeim óbjóð sem ég fann á ham- borgaranum. Mörgum hefði hryllt við því að finna eitteða tvö pung- hárá borgaranum sínum. Það hefði ekki verið neitt mál miðað við það sem ég fann. Hefði ég fundið dauða, hauslausa dúfu þá hefði ég bara kippt henni afog láti sem ekkert væri. En það sem ég fann þegar ég tók brauðið afborgaranum var heimsins stærsta tómatsneið sem er bara ósættanlegt." Árni Torfason - arni.hamstur.is Ágengir dúddar „Hitti fullt affólki sem ég þekkti og geggjað stuð í gangii En hraklaðist nú heimáieið þegar átroðn- ingur karlpeningsins varyfir- gnæfaniegur.. Einn gaursem bara ætlaði ekki að sleppa mér.. varnú samt virkiiega gaman að dansa við hann. hehe.. en það stóð gamall fé- lagi minn frekar abbó yfir því að ég skildi nú ekki vera að dans við hann svo ég cuttaði þetta aðeins með gaur- inn og kætti hann en það varnú ekki lengi því hinn kom fijótt aftur.. virki- iega hress gaur... ákvað svo bara að koma mér þegar dúddinn var orðinn ágengur.." Elva Björk Margeirsdóttir - blog.central.is/elva bjork Yom Kippur-stríðið hefst í þeirri von að vinna aftur land- svæði sem þeir höfðu tapað til ísraels í Sex daga stríðinu 1967 réð- ust Egyptar og Sýrlendingar inn í ísrael á þessum degi árið 1973. Árásin hófst á degi sem kallaður er Yom Kippur, eða friðþægingardag- ur, og er einn sá heilagasti meðal gyðinga. Árásin kom ísraelum mjög á óvart og Egyptum og Sýrlending- um varð mjög ágengt í byrjun. Eft- ir nokkra daga voru ísraelar hins vegar búnir að vígbúast að fullu og fóru að vinna sigra í orrustum. Seint í október lauk stríðinu svo þegar Sameinuðu þjóðirnar fóru fyrir því að vopnahlé yrði gert. Þrátt fyrir tap Egypta í stríðinu græddu þeir nokkuð land til baka í kjölfarið. Árið 1974 var samningur milli Egypta og ísraela undirritað- ur sem skilaði Egyptum hluta af Sínaískaganum til baka. Árið 1979 skrifuðu þjóðirnar svo undir frið- arsamning sín á milli, en það var fyrsti friðarsamningur ísraela við arabíska þjóð. í kjölfarið skiluðu ísraelar afgangnum af Sínaískaga aftur til Egypta. Fyrir Sýrlendinga ísraelskur skriðdreki Á upphafsdögum Yom Kippur-strlðsins fóru Israelar halloka en unnu siðan sigur. var Yom Kippur-stríðið hins vegar hörmung því ísraelar tóku enn meira landsvæði af þeim í Gól- Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Rafmagnsleysið frelsaði mig Ragnheiður hríngdi: í rafmagnsleysinu áðan [í gær] áttaði ég mig á því að ég er þræll raf- magnsins. Nánast allt sem ég geri dags daglega snýst um rafmagn. Skyndilega gat ég ekki horft á sjón- varpið, gat ekki farið í tölvuna, gat Lesendur ekki eldað kvöidmat fýrir börnin, þvegið þvott eða ryksugað. Til að toppa þetta allt þá þorði ég ekki út í bíltúr þar sem ég heyrði í útvarpinu að umferðarljós virkuðu ekki. Hugs- aði reyndar um að labba út í búð en gat ekki ímyndað mér að ég gæti borgað þeim með korti. Eftir stóð ég því ráðþrota heima hjá mér og vissi hvorki upp né niður. Hvað átti ég að gera? Eftir nokkrar mínútur áttaði ég mig hins vegar á því að þetta var kjör- ið tækifæri fyrir mig til að eyða tíma með börnunum mínum. Við lékum okkur saman og skemmtum okkur mjög vel saman. Það er ótrúlega langt síðan ég hef átt jafn góða stund með bömunum mínum. Ég var alveg áhyggjulaus, ekki vegna þess að ég þurfti ekki að gera neitt heldur vegna þess að ég vissi að ég gat ekki gert neitt. Þegar rafmagnið kom svo aftur á lofaði ég sjálfri mér því að framveg- is mun ég leika mér við börnin mfn á hverjum degi. Þau em jú það mikil- vægasta í lífinu og það er sorglegt að maður skuli endalaust láta allt annað ganga fyrir. Þrátt fýrir að ég fagni því að rafmagnið sé komið aftur á þá heiti ég því að héðan í frá verð ég ekki þræli rafrnagnsins eins og ég var fýrir rafmagnsleysið mikla. Það má því segja að rafmagnsleysið hafi frelsað mig úr ánauð. tryggja sér réttinn á þessu korti. Þó að ég viti ekki hvað það myndi kosta þá getur það varla komist í hálfkvisti við þau óþægindi sem núverandi óskýrleiki gerir. Nýtt kort, takk! Guöjón Andrí skrífar. Ég vil endilega biðja Reykjavíkur- borg að taka betur í hugmyndir Gunnars Inga um nýtt kort af strætó- leiðunum. Eftir að leiðarkerfið breyttist hef ég átt í mestu erfiðleik- um með að finna út með góðu móti hvað vagna sé best að taka á hina og þessa staði sem ég þarf að komast á. Kortin sem em uppi í strætóskýlun- um em að mínu mati ekki nógu skýr. Þegar ég sá í fréttum að tóniistar- maðurinn geðþekki Gunnar Ingi var að kynna nýjar hugmyndir sínar um strætókort fagnaði ég. Sú gleði var skammvinn því stuttu seinna heyrði ég að borgaryf- irvöld væm ekki að taka vel í hug- myndirnar og væm ekki á þeim brókunum að kaupa þær. Þetta þykir mér undarlegt. Ekki veit ég um marga sem skilja núgild- andi kort með góðu móti. Gunnar sækir í fyrir- mynd svo- kallaðra neð- anjarðar- lestarkorta í sinni korta- smíð. Þau kort em ein- föld og skýr og ekki er til nokkur maður sem get- ur ruglast á þeim. Því vil ég skora á Steinunni Valdísi og kumpána hennar hjá borginni að ganga til samninga við Gunnar og I dag árið 1961 var Háskólabíó vígt. Það var stærsta samltomuhús á íslandi með 976 sæti. Bíótjaldið var lengi það stærsta í Evrópu, um tvö hundruð fermetrar. anhæðunum. Árið 1979 kusu Sýr- lendingar með því að reka Egypta- land úr Arababandalanginu. Á þessum degi árið 1981 var svo Anwar el-Sadat, leiðtogi Egypta, myrtur af íslömskum öfgamönn- um í Kaíró þegar hann var við at- höfn til að minnast byrjunar Yom Kippur-stríðsins. Ingimar Ingimarsson beið og beið á Slysó. Garðyrkjumaðurinn segir Fjölfræðingareru málið Ég lenti í þeirri slæmu lífsreynslu að slasa mig lítillega í vikunni, þá þurfti ég þjónustu Slysó. Ég kom að sjálfsögðu illa haldinn, haldandi að enginn væri verr farinn en ég, en þá kom í ljós að þriggja og hálfs tíma bið var eftir þjónustu. Ég fékk samt að heyra að ég hefði forgang, sem ég fagnaði. Svo leið og beið og ég orðinn talsvert kvafinn sem endar með því að ég lét vita af því. Þá var ég kailaður inn eftir eins og hálfs tíma bið. Þá kom fyrsta hjúkkan sem skoðaði meiðslin og gaf mér pillur, þá kom önnur hjúkkan sem kom með bindi og skæri. Þegar þriðja kom með náiar voru liðnir þrír tímar. Þá kom inn að- stoðarlæknirinn sem kaliaði síðan inn lækninn. Síðan kom aftur aðstoðar- læknirinn með hjúkku og saumaði sem tók sex mínútur. Þá vom liðnir fjórir tímar. Þessa sögu segi ég vegna þess að félagi minn þurftí iðnaðar- menn í eldhúsinnréttingu sem tekur þrjá daga að setja upp. Hann þurftí fýrst smið sem ekki gat komið fýrr en eftír tvær vikur, þá kom hann með fýrstu verkfærin og sagði að rafvirk- inn þyrftí að klára fýrst. Rafvirkinn kom svo eftir tvær vikur með fýrstu verkfærin, hann þurftí smiðinn til að losa spýtur sem ekki var hægt nema píparinn kæmi og aftengdi ofria og svo framvegis. Þetta tók þtjá mánuði. Hver segir svo að það taki langan tíma að fá þjónustu hjá ríkinu? Þið kannski kannist við þetta allt. Ég er með lausn. Það er að skólar útskrifí fjölfræðinga sem geta sett saman inn- réttingu, tengt rafmagn, aftengt ofna, litið á sár og saumað þau. Annars mæli ég með að fólk fari að gróðursetja tré núna enda jörðin rök. Það er eins og við garðyrkju- menn segjum, þetta finnur sig best í röku. Maður dagsins Pólitík ekki falin í bindishnút Hlynur Haflsson alþingis- maður ákvað að mæta ekki með bindi hnýtt um hálsinn þegar hann ræddi um stefnuræðu for- sætisráðherra og fékk tiltal frá forseta þingsins fyrir vikið. „Forseti sendi mér bréf þar sem hún bað mig um að virða hefð þá sem hefði skapast í þing- inu. Ég þakkaði fyrir ábending- una og útskýrði að mér þætti óþægilegt að vera með bindi og bæri þau aldrei. Ég sagði líka að ég bæri mikla virðingu fyrir Al- þingi og enn meiri fyrir þingi sem neyddi ekki þingmenn til að klæðast eftir ákveðnum smekk," segir Hlynur. „Mér finnst hins vegar miður að þetta skyldi vekja athygli á mér en ekki þeim málefnum sem ég viðraði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra," bendir Hlynur á en samsinnir því að oft skapist andrúm til þess í kjölfar uppákomu sem þessar- ar. „Ég hafði nú bara fjórar mín- útur til að mæla, en ég náði að benda á það sem mér fannst vanta í tölu forsætisráðherra - til dæmis hvað varðar ójöfnuð í þjóðfélaginu. Við sjáum að ójöfnuður er að aukast með beinum aðgerðum ríkisstjórnar eins og skattalækkunum til þeirra sem síst þurfa þess. Við höfum bent á að betra væri að hækka persónuafslátt, því það kæmi betur út fyrir þá sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. „Forseti sendi mér bréfþarsem hún bað mig um að virða hefð þá sem hefði skapast í þinginu Við viljum líka að menn beiti sér fyrir gjaldfrjálsum leikskólum sem kæmu sér mjög vel fyrir barnafjölskyldurnar í landinu. Við erum ekki bara með ein- hvern loforðaflaum, heldur erum líka með tillögur til bóta,“ segir Hlynur. ureyrar áTð 2005. Hann situr nú á þingi fyrir Vinstri hreyfmguna - grænt framboð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.