Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2005, Blaðsíða 23
DV Sport
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER2005 23
Stórsigur
Keflavíkinga
Kveiinalið Islandsmeistara
Keflavíkur vann sigur á bikar-
meisrurum Hauka í meistara-
keppninni í körfubolta í gær sem
fram fór í Keflavfk. Eftir að staðan
var 38-19 íhálfleik
I fyrir Keflavfk, unnu
v þær auðveldan sigur,
76-47. BirnaVal-
L garðsdóttir var
stigahæst í liði
i | Keflavfkur
með 15 stig,
„V enResha
¦ Bristol
jskor- \,.*
aðiH ]
stig og v
, stal 13 v—-'-
, boltum. Kesha
Tardy var
atkvæðarnest
hjá Haukum og
i . skoraði 14 stig og hirti 20 frá-
köst. Helena Sverrisdótfir,
leikmaður Hauka, er meidd og
r var ekki með og munar um
~~' minna. f flokki karla mætrust
lið Kefiavíkur og Njarðvfkur og
var staðan 46-42 í hálfleik, Njarð-
víkingum í vil. Leiknum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun.
Bruno í
duftínu
Frank Bruno, fyrrverandi
heimsmeistari í þungavigt, hefur
viðurkennt að notkun kókaíns
hafi gert hami að sturluðum
manni en þessi mikli skrokkur var
vistaður á sjúkrahúsi fyrir geðfatl-
aða f byrjun árs. „Kókaínið tók
yfir heilann á mér," sagði Bruno
sem einnig hefur reykt stóra
skammta af grasi. Bruno kynntist
kókíninu fyrst í Las Vegas en í
þeirri borg náði ferill hans hátindi
þegar hann rotaði Oliver McCall í
heimsmeistarabardaga. Bruno
upplifði þunglyndi eftir að hafa
verið laminn illa af Mike Tyson
árið 1996 og í kjölfarið skildi hann
við eiginkonu sína. í dag er Bruno
að reyna hetja nýtt líf utan hrings-
ins en gengur því miður hægt.
17árameð
sigurmarkið
Sigurmark Tyrkja gegn Þjóð-
verjum í æfingaleik sem fram fór í
Tyrklandi og lyktaði með sigri
heimamanna 2-1 gerði hinn 17
ára Nuri Sahin sem á dögunum
varð yngsti leikmaðurinn til að
leika í þýsku úrvalsdeildinni.
Sahin sem leikur með Borussia
Dortmund er miðjumaður og
þykir harður í horn að taka. Fyrra
mark Tyrkja gerði Hail Altintopp,
leikmaður Kaiserslautern, en það
hlýtur að vera mjög svekkjandi
fyrir Þjóðverja að
horfa upp á Altin- " a "¦•,
- topp tví- i -
bura-
bræðurna
Hail og Haim
leika með tyrk-
neska liðinu því
báðir em þeir
fæddir og upp-
aldir í Þýska-
landi. Mark
Þjóðverja, sem
stilltu upp
hálfgerðu
varaliði, gerði
Oliver
Neuville.
Al-kappaksturinn fór fram á Lausitzring i Þýskalandi í gær
Lapierre kom, sá og sigraði fyrir Frakka
Frakkar höfðu tvöfaldan sigur í
Al-kappakstrinum á Lausitzring í
Þýskalandi í gær, þar sem Nicolas
Lapierre vann bæði hraðakeppnina
og sjálfan kappaksturinn. Robbie
Kerr frá Bretlandi varð annar.
Lapierre leíddi aksturinn allt frá
ráspól en þjónustuhléin höfðu mikil
áhrif á lokaniðurstöðuna því öllum
liðunum gekki illa að skipta um dekk,
að Kanadamönnum undanskildum,
sem geta þakkað því þriðja sætið.
Brasilíumenn eru í efsta sæti í
heildarkeppninni með 30 stig en
Frakkar og Nýsjálendingar koma
næstir á eftir með 29 þegar tveimur
keppnum af tólf er lókið.
Bretinn Robbie Kerr sýndi ótrú-
leg tilþrif því að hraðakeppninni
lokinni var hann í 24. sæti. „Þetta var
ótrúlegt því ég lenti í árekstri í
hraðakeppninni. En ég held að sú
ákvörðun okkar að taka þjónustuhlé
snemma hafi gert gæfumuninn. Mér
datt aldrei í hug að ég kæmist í ann-
að sætið."
Næsta keppni fer fram í Portúgal
eftir hálfan mánuð. Al-kappakstur-
inn þarf þá ekki að keppa um hylli
fjölmiðla við Formúlu 1 því loka-
keppi formúlunnar fer fram um
næstu helgi. Athygli vekur að risa-
veldin Indland, Kína, Rússland og
Bandarfkin eru stigalaus að loknum
tveimur keppnum og því ljóst að
þessar stórþjóðir munu leggja mikið
kapp á að standa sig vel í Portógal.
Keppnin í Portúgal er sú síðasta sem
Efstu þrír f gaer Frá vinstri:
Robbie Kerr (Bretlandi),
Nicholas Lapierre (Frakklandi)
og Sean Mclntosh (Kanada).
fram fer í
Evrópu
en eftir það heldur keppnin til heitari
landa. Þar á meðal Astralíu, Kína,
Dubai, Suður-Afrfku, Brasilíu og fieiri
landa.
^(STJÖRNUFRÉTTIR^ LÍFSSTÍLL^t ALVÖRU FÓLK
SmOGBETIttBUD