Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Side 4
4 LAUCARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Kirkjan kem-
urtil hjálpar
Hjálparstarf kirkjunnar
hefur ákveðið að senda
tuttugu þúsund bandaríkja-
dollara, sem er jafnvirði 1,2
milljónum íslenskra króna,
til hjálparstarfs á vegum Ai-
þjóða neyðarhjálpar kirkna
á hamfarasvæðinu í ind-
verska hluta Pakistan. Ætl-
unin er að útvega tíu þús-
und fjölskyldum, eða um
sjötíu þúsund manns, að
koma sér upp skýlum til
bráðabirgða. í Pakistan fá
um fimmtán þúsund íjöl-
skyldur matvæli og efni til
að koma sér upp skýlum.
Mikil neyð ríkir nú á svæð-
inu eftir að jarðskjálfi 7,6 á
Richter reið þar yfir þann
áttunda október.
Tóku Ólaf í út-
varpsviðtal
Nemendur í
fjölmiðlun við
Flensborgarskól-
ann fannst þau
heldur betur dott-
ið í lukkupottinn
þegar herra Ólafur
Ragnar Grímsson
forseti íslands og
eiginkona hans
frú Dorrit Moussaeff komu
í opinbera heimsókn í skól-
ann í gærdag. Nemendurn-
ir voru ekki lengi að kippa
Ólafí inn í stúdíó þar sem
hann var tekinn í viðtal í
Útvarp Flensborg. Fjöl-
miðlamenn framtíðarinnar
hika greinilega ekki við að
grípa gæsina þegar hún
gefst, jafnvel þótt sú gæs sé
sjálfur forsetinn.
Duftkervið
Perluna
Nú standa yfir miklar
framkvæmdir í svonefndri
Leynimýri stutt austan við
Perluna. Árið 2001 fengu
Kirkjugarðar Reykjavíkur-
prófastsdæmis lóðarúthlut-
un á svæðinu og hyggjast
koma þar upp fallegum
duftkerjagarði. Skipulag og
hönnun svæðisins tók mið
af því að duftgarðurinn
verði nýttur í áföngum
væntanlega á mörgum ára-
tugum. Búist er við að
vígsla garðsins fari fram
eftir um þrjú ár samkvæmt
upplýsingum KRPD, en að-
alframkvæmdir fara fram
næstu tvö ár. .
Guðný Halldórsdóttir gagnrýnir Baltasar Kormák harðlega og sakar hann um full-
komið aðgerðarleysi í málefnum framleiðendafélagsins SÍK þar sem hann gegnir
formennsku. Hún fer fram á afsögn. Baltasar segir sjálfsagt að Guðný taki að sér
formennsku telji hún sig geta gert betur - en ýmislegt sé þó í pípunum.
Guðný Halldórsdóttir
Hefur sent félögum sín-
um ISÍK harðort bréf þar
sem hún gagnrýnir
stjórnina mjög og fer
fram á afsögn hennar.
Ólga er nú meðal kvikmyndagerðarmanna en Guðný Halldórs-
dóttir kvikmyndagerðarmaður sendi nýverið félögum sínum í
SÍK bréf þar sem hún segir ekkert upplýsingastreymi frá stjórn
félagsins og það að kvikmyndaráð hafi ekki hist sé skandall. Ari
Kristinsson sagði af sér formennsku í SÍK fýrir tæpu ári og tók
Baltasar Kormákur við af honum.
Guðný dregur hvergi af sér í bréf-
inu sem hún sendir félögum sínum.
Hún segir lömunina í félaginu óaf-
sakanlega. „Stjóm SÍKverður að hafa
þá sjálfsgagnrýni að segja af sér hið
fýrsta, því aldrei höfum við haft jafn
lélega stjóm og nú,“ segir Guðný í
bréfinu. Hún segir að upplýsinga-
streymi ffá stjóminni sé „akkúrat
núll" og það að kvikmyndaráð hafi
aldrei hist sé skandall. Enginn sé að
móta stefnu og enginn viti neitt. Til
marks um skort á upplýsingastreymi
hefur heimasíða SÍK ekki verið upp-
færð ffá því 23. aprfl árið 2003.
Félagið vængbrotið
fjárhagslega
Framleiðendafélagið SÍK er sam-
band íslenskra félaga og fyrirtækja,
sem ffamleiða allar tegundir kvik-
mynda. Tilgangur félagsins er að efla
íslenska kvikmyndagerð, gæta hags-
muna og réttar kvikmyndaframleið-
enda auk þess að stuðla að dreifingu
íslenskra kvikmynda.
„Félagið er svo vængbrotið fjár-
hagslega að ekki hefur verið hægt að
kosta mann til að halda utan um
heimasíðuna. Og sjálfur kann ég ekki
mikið á svona vefsíður," segir
Baltasar Kormákur aðspurður um
hvemig það megi vera að heimasíðan
hafi ekki verið uppfærð nú í tæp þrjú
ár. Baltasar hefur borist bréf Guðnýj-
ar sem og öðrurfi félagsmönnum.
Pirringur innan stéttarinnar
Samkvæmt heimildum DV em
fjölmargir innan SÍK sem vilja taka
undir með Guðnýju og telja að félag-
ið mætti vera virkara. Helstu verkefni
SÍK em að beijast fyrir hagsmuna-
málum greinarinnar einkum gagn-
vart ríkinu: Til dæmis hvað varðar
kvikmyndasjóð og uppbyggingu
hans, barátta fýrir stofnun sjónvarps-
sjóðar sem fær í dag 15 milljónir á ári
sem telst „ekki neitt". Svo em einnig
viðræður við fjármálaráðuneytið
vegna virðisaukaskattsmála sem og
iðnaðarráðuneytið en menn í kvik-
myndageiranum telja rétt að hækka
12 prósenta endurgreiðsluregluna til
erlendra kvikmyndagerðarmanna
sem hingað koma til að taka myndir
sínar. Það er því í mörg hom að líta.
Tími til kominn að menn vinni
vinnu sína
Baltasar tók við formennsku af
Ara Kristinssyni sem sagði af sér fyrir
tæpu ári. Baltasar telst hafa sér með-
al annars til málsbóta að hann tók
það skýrt fram þegar hann tók við
stjómartaumum að hann hefði úr
mjög takmörkuðum tíma að spOa
vegna anna. Hann var hins vegar þrá-
beðinn um að taka að sér for-
mennsku ekki síst vegna þess að
menn töldu hann vænlegan kost í
að semja við stjórnvöld.
Ásgrímur Sverrisson er rit-
stjóri veftímaritsins Lands og sona.
„Það er alveg ljóst að mörg mál em
innan kvikmyndabransans sem
þarfnast úrlausnar og em orðin brýn.
Því miður virðist sem ekki hafi nægj-
anlega mikið verið að gerast í þeim
að undanförnu. Vissulega er tími til
kominn að menn fari að vinna vinn-
una sína og móti einhverjar tillögur."
Ef Guðný telur sig geta gert
betur...
Baltasar Kormákur segist hafa
verið utanlands meira og minna allt
árið og hafi varaformaðurinn Skúli
Malmquist setið við stjómvöl-
inn í fjarveru hans. Baltasar
segir alls ekki rétt að
ekkert hafi verið gert
málefnum SÍK þó
vissulega mætti
vera meiri
gróska, en tak-
mörk eru fyrir
því hvað er
hægt að gera.
„En það er
verið að
vinna á fullu
í að fá meira
fé í geirann
og send hafa
verið erindi til
stjómvalda um
til dæmis úr-
lausn á virð-
isauka-
skattsmál-
um
Baftasar Kormákur
Segir ekki rétt að mál-
efni SÍKséu í lamasessi.
En ef fólk telji sig geta
gert betur sé sjáifsagt
að stíga til hliðar.
"M°m SÍKverður að
[...] að segja afsér hið
fyrsta, því aldrei höf-
um við haft jafn lé-
laga stjórn og nú."
og varðandi sjónvarpssjóðinn. Við
emm til dæmis í díalóg við Þorgerði
Katrínu menntamálaráðherra og eig-
um fund með henni á mánudaginn.
En það er ekki hlaupið að því að fá fé
í geirann."
Baltasar Kormákur segir
sjálfsagt að stíga til hliðar
fýrir fólki sem telur sig
geta gert betur. „Ég
ætti kannski að
mæla með Guð-
nýju á næsta
ári. Ef hún
býður sig
fram mun ég
verða fýrsti
maðurinn
til að
styðja
hana í því."
jakob@dv.is
Þeir bestu koma frá
Svarthöfði var ekki hissa þegar
hann sá frétt þess efnis fýrir
skömmu að ísland væri minnst
spilltasta ríki heims samkvæmt út-
reikningum afar virtrar stofnunar úti
í hinum stóra heimi. Svarthöfði er
góður og gegn sjálfstæðismaður,
hefur verið það alla sína hunds- og
kattartíð og því vissi hann sem var
að lítil spilling þrifist í íslensku sam-
félagi á meðan Sjallarnir hafa verið
við völd.
Það er því óhætt að segja að
Svarthöfða hafi brugðið í brún þegar
hann sá forsíðu DV í gær. Þar týndi
blaðið til 100 verstu pólitísku stöðu-
veitingarnar og þótti Svarthöfða það
með ólíkindum að hægt væri að týna
til slíka öndvegismenn og þá sem
skipuðu sér í efstu sæti listans.
Svarthöfði hefur alltaf haft miklar
mætur á Ólafi Berki Þorvaldssyni og
fagnaði mikið þegar hann var ráðinn
í Hæstarétt. Ólafur Börkur er fram-
úrskarandi lögmaður, hokinn af
reynslu og íslenskt réttarkerfi hefði
verið fátækara ef staðan hefði verið
höfð af honum vegna frændsemi
hans við leiðtogann Davíð Oddsson.
Hvernig hefur þú það'
„Ég hefþað Ijómandi gott og hlakka til að takast á við ný verkefni sem bíða mín í
hrönnum,"segir Hrafnhildur Hagalín Cuðmundsdóttir leikritaskáld, sem gerði leik-
gerðina við uppsetningu Borgarleikhússins á Söiku Vötku.„Ég ermjög ánægð með út-
komuna á Sölku Völku og leikararnir standa sig frábærlega vel. Annars er ég að flytja
tilSpánar eftir áramót og ermjög spennt f öllum undirbúningnum fyrirþaö."
hægri
Sama máli gegnir um Jón Steinar
Gunnlaugsson. Svarthöfði hefur
lengi vitað að Jón Steinar er afburða-
lögmaður sem sómir sér vel í Hæsta-
rétti, burtséð frá því að hann sé besti
vinur leiðtogans áðurnefnda.
Svarthöfði hefur líka verið veikur
fyrir Markúsi Erni Antonssyni.
Markús örn er ekki öfundsverður af
hlutskipti sínu. Hann hefur tvívegis
þurft að rffa Ríkisútvarpið úr dvala
og unnið kraftaverk í hvort
skipti. Undir hans
stjórn hefur RÚV orðið
leiðandi fjölmiðlafyrir-
tæki, fyrirtæki sem
aðrir hafa miðað sig
við. Það gustaði líka af
honum sem borgar-
stjóra og skarð
hans þar
var vand-
fyllt.
Eins
og sést á þessari upptalningu Svart-
höfða þá voru þessir menn ekki
ráðnir vegna tengsla sinna við flokk-
inn heldur vegna hæfileikanna.
Þetta var ekki spilling heldur spurn-
ing um að velja bestu mennina. Og
bestu mennimir koma yfirleitt inn
frá hægri.
Svarthöföi