Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Blaðsíða 17
JSV Sport LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 17 Sigurvin samdi viðFH Sigurvin Ólafsson, knatt- spyrnumaður frá Vestmannaeyj- um, hefur gengið til liðs við Is- landsmeistara FH. Sigurvin samdi við FH- inga til tveggja ára en hann hefur verið samningslaus frá því að stjórn KR ákvað að leysa hann undan sínum samningi í haust. Sigurvin hefur þar að auki leikið fyrir Fram og ÍBV auk þess sem hann var á mála hjá Stuttgart í Þýskalandi á sínum tfma. 14.00 Man. Utd. - I Tottenham í beinni á Enska boltanum. 14.00 Tvíhöfði í DHL- deild karla og kvenna f Laugardalshöllinni. Fríttinn. 16.00 Haukar-Gorenje ___ VelenjeíMeistaradeild- ...« úmi f handbolta á Ás- völlum og í beinni á Sýn. 16.15 Stjaman-FH í DHL-deild karla. Upp- gjör vonbrigðarliðanna. 16.15 Vfldngur-FH í DHL-deiId kvenna. 16.15 Portsmouth - Charlton í beinni á Enska boltanum. 17.15 Grindavík-ÍS í Iceland-Express deild kvenna. 19.50 Barcelona-Osas- S&P una í beinni á Sýn. Úrúgyæmaðurinn Diego Forlan fékk uppreisn æru á síðasta tímabili þegar hann skoraði 25 mörk með Villarrreal í spænsku úrvalsdeildinni og varð markakóngur á Spáni. Eftir markaleysi hjá Manchester United var hann búinn að finna skotskónna en þessar vikurnar gengur ekk- ert upp hjá honum við mark mótherjanna. Skotskór Diego Forjao t Hetor ekki skorað 168 Það hafa flest allir knattspyrnumenn sýnar skoðanir á Úrúgvæ- manninum Diego Forlan sem mistókst að sanna sig hjá Manchester Uriited í ensku úrvalsdeildinni en varð síðan markakóngur á sínu fyrsta tímabili á Spáni. Forlan skoraði 25 mörk í 38 leikjum með spútnikliði Villarreal á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu í að komast í forkeppni Meistaradeildarinn- ar. Það sem af þessu tímabili hefur þó lítið farið fyrir Forlan í framlínu liðsins og nú er svo komið að hann hefur ekki skorað í átta leikjum í röð. Flestir bjuggust kannski ekki við að heyra mikið meira frá Diego Forlan þegar þessi úrúgvæski landsliðsmaður yfirgaf Old Trafford og fór suður á bóginn síðasta haust. Hjá Villarreal fann hann sér hins- vegar langþráðan samastað og sýndi það á sínu fyrsta tímabili á Spáni hversu hann er megnugur. Nú er allt farið í sama farið og For- lán er kominn með spænsku press- una og heita stuðningsmenn á bak- ið enda allir knattspyrnuáhuga- menn á Spáni farnir að telja þá leiki og þá mínútur sem eru síðan að Forlan fann leiðinni í net- möskvanna síðast. Það eru líka liðnar 689 mínútur síðan að Forlan skoraði og síðasta markið hans er jafnframt það eina sem hann hefur skorað í 28 skottilraunum sínum í bæði spænsku úrvalsdeildinni sem og í Meistaradeild Evrópu. Eitt mark á 734 mínútum og 4% skotnýting eru tölur sem sóknar- maður skammast sín fyrir. Mörk Forlán á síðasta tímabili áttu mikinn þátt í að Villarrael náði óvænt þriðja sætinu og var á undan liðum eins og Deportivo, Valencia og Sevilla en líkt og hjá Forlan þá gengur ekki eins vel hjá liðinu það sem af er þessu tímabili. Villarreal er sem stendur í 9. sæti deildarinn- ar með 9 stig eftir sjö leiki en hefur aðeins unnið 2 leiki. I Meistara- deildinni er liðið líka enn án sigurs og Villarreal-menn hafa því bara fagnað sigri í 2 af 10 leikjum tíma- bilsins Það liðu mest 448 mínútur milli marka hjá Forlan í fyrra en hann skoraði þá ekki í heilar sex vikur og markaþurðin hófst eftir sigurleik gegn Numanja 24. október og lauk um miðjan desember. Þegar nýja árið rann í garð héldu honum hins- vegar engin bönd og hann raðaði inn mörkun allt til enda þess þegar hann skaust framfyrir Kamerúnan Samuel Eto’s á lokasprettinum í baráttunni um gullskóinn. Það er ekki eins og einhver hafi tekið upp hanskann fyrir Forlan því nú er það aðeins Argentínumaðurinn Juan Roman Riquelme sem hefur skorað meira en eitt mark fyrir Villarreal í íyrstu sjö deildarleikjunum en hann hefur skorað tvö mörk. Síðasta mark Forlan á þessu tímabili kom í 1-2 tapleik gegn Osa- suna 28. ágúst á opnunardegi spænsku deildarinnar en það mark kom nákvæmlega ári eftir en hann gekk til Villarrreal-liðsins. Síðan þá hefur Forlan farið markalaus í gegnum leiki gegn Seville, Cadiz, Celta, Espanyol og Athletic í spænsku deildinni og hefur heldur ekki skorað í Meistaradeildinni þar sem Villarreal hefur gert jafntefli í öllum þremur leikjum sínum gegn Manchester United, Lille og Ben- fica. „Það var erfitt að yfirgefa Manchester því þetta er svo frábært félag en ég fékk ekki að spila nægi- lega mikið og ég sóttist eftir að spila leiki reglulega,” sagði Forlan um kringumstæðurnar að hann yfirgaf United í fyrra en örlögin sáu til þess að gamla og nýja lið hans drógust saman í Meistaradeildinni. Eftir TÍMABILIÐ f HNOTSKURN: Spænska deiidin: Leikir Mínútur spilaðar Mörk skoruð Stoðsendingar Skot Skotnýting: Meistaradeildini: Leikir Mínútur spilaðar Mörk skoruð Stoðsendingar Skot Skotnýting: Samanlagt: Leikir Mínútur spilaðar Mörk skoruð Stoðsendingar Skot Skotnýting: 6 470 1 20 5% 5 264 0 0 8 0% 9 734 1 0 28 4% Ekkert gengur upp Diego Forl- an hefur aðeins skorað 1 marká 734 minútum á þessu timabiH og ísíðustu átta leikjum hefurhon- um verið aigjöriega fyrirmunað að skora. %o gegn Manchest er United Meistara- deildinni á dögun- um talaði Forlan líka um það í létt- um tón að hann hafi verið að spara mark- ið þar til í seinni leiknum á Old Traf- ford. „Því miður fékk ég aðeins eitt tækifæri og vonandi á ég mark- ið bara inni á Old Traf- ford,“ sagði Forlan eftir leikinn en seinni leik- urinn fer ekki fram 22. nóvember eða eftir einn mánuð. Verði Forlan ekki búinn að brjóta markamúrinn sinn fyrir þann leik þá er allt eins lík- legt að hann verði ekkert í ; liðinu þegar spænska liðið heimsækir Leikhús draumanna. c- \ ... m Afkoma íslenskra getrauna hefur aldrei verið betri en á árinu 2004 en salan fór yfir 500 milljónir: Getraunaárið 2004 gert upp Bergsveinn Sampsted, framkvæmda- stjóri Islenskra getrauna gladdist yfir góðu get- raunaári ásamt þeim Ell- erti B. Schram forseta ISl og Stefáni Konráðsyni framkvæmdastjóra ÍSl og stjórnarformanni i stórn Islenskra getrauna. íslenskir íþróttaáhugamenn voru duglegir að „tippa" á síðasta ári en íslenskar Getraunir birtu sölutölur sínar í vikunni. Afkoma fslenskra getrauna hefur aldrei verið betri en á árinu 2004 en sala á getraunum og í Lengjunni fór í fyrsta sinn yfir 500 milljónir á einu ári og var alls 517 milljónir á síðasta ári. I fréttatilkynningu frá Islenskum getraunum segir. „Starfsemi ís- lenskra getrauna miðar ekki að því að fyrirtækið safni sjóðum, utan eðlilegs varasjóðs, heldur er mark- mið fyrirtækisins að skila hagnaðin- um út til íþróttahreyfingarinnar. Það er því afar ánægjulegt að geta nú af- hent sölufélögum getrauna alls kr. 15.5 milljónir króna á aðalfundi ís- lenskra getrauna. Ljóst er að þeir peningar koma sér vel í því mikil- væga starfi sem íþróttafélögin eru að vinna," segir í umræddri tilkynningu en fyrir þennan sölubónus voru heit og sölulaun til íþróttafélaga alls orð- in 67 milljónir. Peningarnir dreifast þó ekki jafnt heldur er úthlutað til félaga eftir söluárangri þeirra á síðasta ári og þrjú félög voru áberandi duglegust og náðu því að fá yfir fimm milljónir frá íslenskum getraunum. Þessi fé- lög eða héraðssambönd voru ÍFR (8,4 miiljónir), Brokey (6,6) og KR (5.0). Stjóm íslenskra getrauna ákvað ennfremur að veita viður- kenningu til tveggja einstaklinga sem hvor með sínum hætti hafa sett andlit á getraunastarfið í landinu og þar með eflt félagsstarf. Þetta vom þeir Bjami Felixson íþróttafrétta- maður og Guðbrandur Stígur Ágústsson, umsjónarmaður KR-get- rauna. Bjarni var einn af upphafs- mönnum íslenskra getrauna á ís- landi en Guðbrandur hefur haft um- sjón með getraunastarfi KR síðast- liðin 6 ár. Tiska, tíðarandi, Airwaves, blaðauki um böm Öfiugasta sjónvarpsdagskráin m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.