Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Blaðsíða 13
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 13
KB banki takmarkar við mat íbúðar
„Við fylgjumst með markaðnum en engin ákvörðun
hefur verið tekin," segir Friðrik Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs KB banka um að-
gerðir Landsbankans. Þar er hægt er að fá allt að
100% lán ef um íbúðakaup einstaklinga til eigin nota
er að ræða á þéttbýlissvæðum þar sem KB banki
starfar og þarf þinglýstur kaupsamningur að liggja
fyrir. 100% lán verða afgreidd í tveimur flokkum,
annars vegar sem 80% af kaupverði sem KB
íbúðalán og síðan 20% viðbótarlán. Láns-
tími á viðbótarláninu er hámark 10 ár en
það ber sömu vexti. Lántaki sem sækir um
lán umfram 80% þarf að hafa verið við-
skiptamaður bankans í að minnsta kosti
eitt ár og hafa góða greiðslu-
getu. Ekkert hámark er á láns-
fjárhæð íbúðalána, en fjár-
hæðin takmarkast af verð-
mati íbúðar og getur ekki
verið hærri en samtala
brunabótamats og lóðamats.
Friðrik Halldórsson hjá KB
banka Bankinn takmakarián
við samtölu brunabótamats
og ióðamats. Því erskipt upp í
íbúðar- og viðbótaián.
íslandsbanki veitir 100% lán
V,
„Við fylgjumst með markaðnum og skoðum okkar útlána
reglur reglulega. Við höfúm ekki tekið neinar ákvarðanir um
breytingar á þeim reglum. Við byggjum ákvarðanir okkar
meðal annars á greiðslumati einstaldinga. Bankinn telur
sig veita ábyrga ráðgjöf í útlánum svo viðskiptavinurinn
viti hvað hann er að takast á við. Svo lengi sem viðskipta-
vinir standast þau ákvæði sem bankinn setur er ekki
neitt því til fyrirstöðu að veita 100% lán," segir Vala
Pálsdóttir, upplýsingafulltrúi íslandsbanka.
Bankinn býður upp á 100% húsnæðislán sem eru
ætluð þeim sem eru að kaupa fasteign. Lánin eru ekki
veitt til endurfjármögnunar. 1. veðréttur er skilyrði
lánsveitingar. Lánin er hægt að greiða upp án gjalds
þegar vextir koma til endurskoðunar. Lántaki þarf að
vera í Vildarþjónustu íslandsbanka og standast
greiðslumat bankans. 100% húsnæðislán eru
allt að 25 milljónir og miðast við markaðsvirði
en ekki brunabótamat. Ef markaðsverð er hærra
en brunabótamat býðst viðskiptavinum viðbót-
arbrunatrygging fyrir mismuninum.
Vala Pálsdóttir hjá íslands-
banka Bankinn veitir 100% lán
að 25 milljónum. 1. veðréttur er
þó skilyrði og lánin eru ekki
veitt til endurfjármögnunar.
V
/*
V.
- 80%
„Við breyttum þessu um síðustu mánaðamót og aðr-
ir sparisjóðir fylgdu í kjölfarið," sagði Ólafur Haralds-
son, framkvæmdastjóri hjá SPRON, um þá aðgerð spari-
sjóðsins að lækka hámarkslán niður í 80%. „Þetta er í
takt við þá umræðu um aðhald sem hefur farið fram í
þjóðfélaginu."
Hjá SPRON bjóðast 4,15% vextir á húsnæðislánum
hvort heldur menn eru í öðrum viðskiptum við sparisjóð-
inn eður ei. Lánin eru veitt gegn 1. veðrétti í fasteign á höf
uðborgarsvæðinu til allt að 40 ára. Hægt er að greiða
upp lánin hvenær sem er, uppgreiðslu-
gjald er 2%, en hægt er að greiða lánið
upp án kostnaðar komi til endurskoðunar
vaxta, sem er mögulegt á 5 ára fresti.
Lánshlutfall getur aldrei orðið hærra en
80% af markaðsvirði og 100% af bruna-
bótamati, en í tilvikum þegar brunabóta-
mat er lægra en kaupverð er hægt að
kaupa viðbótartryggingu. Leggja skal fram
verðmat fasteignar frá löggÚdum fast-
eignasala vegna endurfjármögnunar.
Ólafur Har-
aldsson hjá
SPRON
Lánshlutfall hjá
SPRON getur
aldrei orðið
hærra en 80% af
markaðsvirði
eða 100% af
brunabótamati.
Hámarkslán 15,9
milljónir hjá
íbúðalánasjóði
„Við bjóðum úpp á 90% lán en þau geta ekki orð-
ið hærri en 15,9 milljónir. Sá möguleiki er hins vegar
í boði í gegnum ibuðalan.is að fólk getur fengið við-
bótarlán hjá SPRON upp að 26 milljónum og 80% veð-
setningarhlutfalli," sagði Hallur Magnússon, sviðs-
stjóri þróunarsviðs íbúðalánasjóðs, í samtali við.;
gær. Hann sagðist jafnframt telja
ákvörðun Landsbankans eðlilega
í ljósi stöðunnar á markaði.
„Það sem við höfum fram
yfir aðra er að það er ekkert
uppgreiðslugjald hjá okk-
ur. Hjá flestum öðrum
lánastofnunum er það 2%
og það getur munað um
minna," sagði Hallur.
DV
Hallur A/lagnússon
hjá fbúðalánasjóði
Hámarkslánshlutfall er
90% af markaðsvirði en
lán getur ekki orðið
Réðust á stefnuvott í Kópavogi
Skilorð fyrir brot gegn valdstjórninni
Ólafur Vilberg Sveinsson og Stef-
án Axel Stefánsson voru í gær dæmd-
ir til skilorðsbundinnar fangelsisvist-
ar fyrir að hafa veist að Kristjáni
Ólafssyni, stefnuvotti Sýslumannsins
í Kópavogi, þegar hann gerði tilraun
til að birta Mörtu Kristínu Sigurjóns-
dóttur, sambýliskonu Stefáns, fyrir-
kall til mætingar í Héraðsdóm
Reykjavíkur. Stefán var dæmdur í 60
daga skilorðsbundið fangelsi og Ólaf-
ur Vilberg í 30 daga. Fullnustu refs-
ingar var frestað í eitt ár og fellur nið-
ur haldi þeir skilorðið.
Samkvæmt dómnum voru máls-
atvik sú að Kristján fór í félagi við
annan stefnuvott að einbýlishúsi
Stefáns við Hlíðarhjalla til að birta
Mörtu Kristínu fyrirkallið. Kristján
hafði komið nokkrum sinnum áður
með fyrirkall og í þetta sinn var hon-
um sagt að skilja stefnuna eftir, þó
svo að Marta Kristín veitti henni ekki
viðtöku.
Kópavogur Stefnu-
votturinn Kristján
Ólafsson var við vinnu
sina i Kópavogi þegar
árásin áttisérstaö.
Þegar Kristján
knúði dyra lenti
hann í orðaskaki við
Mörtu Kristínu og
Stefán og neituðuþau
að tekið yrði við birtingu
fyrirkallsins. Kristján fór
þá að fyrirmælum og skildi
fyrirkallið eftir. Stuttu eftir
það gekk Stefán á eftir hon-
Ólafur Vilberg
Sveinsson Var
ásamt Stefáni Axel
Stefánssyni dæmdur
i skilorðsbundið
fangelsi fyrir brot
gegn valdstjórninni,
\ eða öllum þeim sem
vinna fyrir lögreglu
eða sýslumenn.
um og setti fyrirkallið inn á hann.
Stuttlega eftir það kom Kristján
stefnunni inn fyrir dyrastafinn
og taldi Stefán að litlu hefði mátt
muna að hún færi í höfuð
ungs sonar hans. Eftir það
fór hann á eftir Kristjáni,
tók hann hálstaki fyrir
utan húsið og keyrði
hann niður. Hann og
Ólafur Vilberg drógu
hann síðar inn í húsið.
í dómsorðum segir
að atlagan að Kristjáni
hafi verið gróf. Þar er
einnig tekið fram að
óhóflegur dráttur hafi orðið
á rannsókn málsins og
vinnslu við það hjá ákæru-
valdinu en 28 mánuðir liðu
frá upphafi þess og fram tii
útgáfu ákæru. Dómari taldi
hann ámælisverðan.
gudmundur@dv.is
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
MinnistöfUtr
& ; M
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og söluaðili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Umboðs- og sötuaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN