Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Blaðsíða 38
6n\diM»1»H : ’
Helgarblað DV
*
eí. 2001 «^aöT>\o auoAORAauM
38 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
Védís Hervör Árnadóttir söngkona vinnur að nýrri plötu sem
er blúsuð og hrá. Hún kemur fram með Bang Gang á Airwaves
í kvöld og nýtur þess að eyða frítíma sínum með fólkinu sem
hún elskar.
| „Ég er núna með annan fót-
inn þar að vinna að tónlist.
Tónlistin er mitt líf og yndi,"
segir hún en í þessum töluðu
orðum er hún að æfa fyrir
Airwaves-hátíðina. „Þar mun
„Ég er ævinlega að vinna að tón-
list. Bæði hér á íslandi og í Lundún-
um,“ svarar Védís aðspurð hvað hún
aðhefst á faglega sviðinu en hún bjó
á Englandi í þrjú ár. „Þar var ég í
upptökum og einnig í námi við
„Music Production". Eg er núna með
annan fótinn þar að vinna að tónlist.
Tónlistin er mitt líf og yndi," segir
hún en í þessum töluðu orðum er
hún að æfa fyrir Airwaves-hátíðina.
„Þar mun ég koma fram með Bang
Gang í kvöld."
Eina leiðin að semja sjáif
Semur þú lögin sem þú flytur?
„Já, það er eina leiðin fyrir mig. Þetta
kemur bara flæðandi og ómöguiegt
að útskýra þess lags frjósemi. Eg hef
að mestu samið á ensku því það var
mér hreinlega eðlislægt frá því ég var
lítil stelpa en svo hef ég verið að færa
mig upp á skaftið með íslenska
texta."
Talið berst að því hvað Védís eyði
tíma sínum í fyrir utan tónlistina.
„Ég eyði tíma með fjölskyldu og vin-
um. Það gefur mér bestu orkuna,"
segir þessi fallega og hæfileikaríka
söngkona og heldur áfram: „Ég hef
mikið dálæti á eldamennsku og bý til
uppskriftir sem ég safna saman í
bók.
Einnig finnst mér ljósmyndun
skemmtileg og ég er orðin hálfgert
óargadýr með myndavélina á lofti
kærasta mínum til mikillar mæðu.
Auk þess finnst mér ómetanlegt að
vinna að ættffæði með afa mínum
en hann er mikill grúskari og við get-
„Já það er plata á
leiðinni. Alltafá leið-
innil Bæði mín eigin
plata sem verður
frekar blúsuð og hrá
um setið tímunum saman og velt
okkur upp úr sögunni."
Óútreiknanleg atvinna
„Já það er plata á leiðinni," segir
hún brosandi og bætir við: „Alltaf á
leiðinni! Bæði mín eigin plata sem
verður ffekar blúsuð og hrá og svo er
plata að koma út með Rainmaker,
breskum tónlistarmanni en þar syng
ég á fyrstu smáskífuna sem kemur út
í Bretfandi til að byrja með.
Ómögulegt að segja til um dag-
setningar á útgáfu enda mjög óút-
reiknanleg þessi atvinna mín. Svo
eru alltaf einhver jám í eldinum.
Sem betur fer."
Við kveðjum Védísi eftir gott
spjall og spyrjum hana áður en kvatt
er hvað hana dreymi um að afreka í
framtíðinni. „Ég fylgi bara hamingj-
unnar braut og þá getur áfangastað-
urinn ekki verið svo slæmur," segir
hún geislandi fögur. elly@dv.is
ÍSpáðíVédísi
Krabbi - fædd 8. júií. 1982
Þessi hæfíleikaríka söngkona getur tjdð tilfinninga-
orku sina bæði jákvætt og neikvætt. Þareð sú orka er kjarninn i llfí
hennar og hún hefur lærtaö veita þessum tilfmningum útrds á rétt-
an máta. Konan er ástrik án skilyrða, sterk, aðlaðandi, nærandi, skap-
andi, orkumikil og einstaklega gefandi. Þolinmæði hennar og biðlund er
mikil og hún notar þessa tækni til að öðlast trúnað og hlýju og mætti gera meira af þvl að opna sig
á þann máta gagnvart umheiminum en einmitt þá láta tækifærin ekki á sér standa. Hún er ástfang-
in og nýtur þess að töfra ástvin sinn. Hún er móðurleg og hefur mildan en staðfastan vilja sem er
jgottefhún leitast við að ná árangri.
SAMANBURÐUR
Hjónin Þorgerður Katrín og Kristján
Arason vinna markvisst samkvæmt eig-
in draumum og stefna stöðugt að því að
efla hvort annað. Þau taka sameinuð á
móti nútímanum eins og hann birtist og
sjá oftar en ekki með barnslegum aug-
um það fallega sem tilveran færir þeim.
Sjá legurðina í tilverunni!
Ljónið (Kristján) er ákveðið og
vogin (Þorgerður) er sterk og raun-
sæ og býr yfir öflugum hernaðar-
anda sem hún nýtir ávallt rétt þegar
um mikilvæg mál er að ræða. Vin-
átta þeirra er gulls ígildi ef marka á
stjömur þeirra sameinaðar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Kristján Arason
fædd: 4. okt. 1965 fæddur: 23. júlí 1961
Vogin (23.sept - 23.okt) Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
- siðfáguð
- aðlaðandi
- félagslynd
- tilfinninganæm
-sterk
- samvinnuþýð
- rökvis
- rómantískur
- kröfuharður
- göfuglyndur
-hlýr
- hátt sjálfsmat
- skapandi
- skemmtilegur
„Gallinn er að ég er ekki alveg
búinn að ákveða helgina, að öll-
um líkindum fer ég í heimsókn á
kosningaskrifstofur, það er fjöl-
skylduhátíð hjá Jórunni. Opnun
hjá Bolla og ýmislegt fleira. En
mig langaði helst að eyða tíma
með fjölskyldunni en það er
margt um að vera. Ég á líka að
vera á þingi UMFÍ á Egilsstöðum
en það er erfitt að koma því inn í
prógrammið þar sem að ég er
veislustjóri hjá Kiwanisklúbbi á
föstudagskvöldið og okkur er
boðið í tvær veislur á laugardags-
kvöldið," segir þess einlægi fjöl-
skyldumaður þegar hann er innt-
ur eftir plönum helgarinnar.
Vogin (23.sept - 23 okt)
Stjömuspekilegt tákn þitt er vog
sem kona heldur yfirleitt á og stend-
ur fýrir jafnvægi (samvinnu, réttlæti
og sanngjöm lög). Vogin er sjöunda
merkið í dýrahringnum, stöðugt
loft. Örlögin ráða ríkjum yfir helg-
inni framundan þegar stjama vogar
er skoðuð. Næstu dagar sýna þig
tvístígandi. Þú virðist vera á báðum
áttum um öU mikilvægustu málin
í lífi þínu en þegar þú ákveður að
byrja á að takast á við veröldina eins
og hún er en ekki eins og þú vilt að
hún sé þá nærðu áttum svo sannar-
lega.
í upphafi næstu viku birtist upp-
hafspunktur þegar stjama þín er
skoðuð þegar ijármál/ávinningur er
annars vegar. Þú ert fær um að ein-
beita þér og skilgreina hvað það er
sem umhverfið býst helst við af þér
ef þú hlustar og lætur ótta lönd og
leið.