Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Qupperneq 16
T6 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
Sport DV
Marel kominn
til Blika
Marel Baldvinsson skrif-
aði í gær undir þriggja ára
samning við lið Breiðabliks
í Landsbankadeild karla.
Marel er að koma heima
eftir atvinnumennsku í
Noregi og Belgíu en hann
skoraði 6 mörk í 15 leikjum
með Blikum í efstu deild á
árunum 1999-2000. Marel
fór til Stabæk á miðju
sumri 2000 og lék þar þijú
tímabil eða þar til að hann
samdi við belgíska liðið
Lokeren. Erfið meiðsli hafa
haldið honum frá knatt-
spyrnuvellinum undanfarið
ár ákvað Marel sem er 25
ára gamall að koma heima
og ganga til liðs við sína
gömlu félaga í Breiðabliki.
Það er ljóst að koma hans
er mikiÚ liðsstyrkur fyrir
nýliðanna sem unnu 1.
deildina með glæsibrag í
sumar.
ión Arnór í
beinni í kvöld
Jón Arnór Stefánsson
skoraði 10 stig á 30 mínút-
um í 80-87 tapi Carpisa
Napoli fyrir Angelico Biella
í 4. umferð ítölsku úrvals-
deildarinnar í körfubolta.
Jón Arnór nýtti 3 af 5 skot-
um sínum og öll 4 vítin og
var með 2 stoðsendingar og
1 frákast.
Jón Arnór verður aftur í
eldlínunni í kvöld þegar
Napoli tekur á móti Clima-
mio Bologna á heimavelli
en sá leikur verður sýndur
beint á sjónvarpsstöðinni
SkySports2 fyrir þá sem
hafa aðgang að henni. Leik-
urinn hefst klukkan 16.30
að íslenskum tíma.
Hörður reynir
sighjá AIK
Keflavíkingurinn Hörður
Sveinsson er á leið til Sví-
þjóðar þar sem hann reynir
sig hjá sænska úrvalsdeild-
arliðinu AIK.
Hörður sem
var valinn
efnilegasti
leikmaður
Landsbanka-
deildarinnar í
sumar og hlaut
að auki brons-
skóinn fyrir
þau níu mörk
sem hann
skoraði í deild-
inni síðasta
sumar. AIK féll
i fyrra en kom
upp strax aftur
og er að byggja upp nýtt lið
og því gæti Keflvíkingurinn
ungi orðið hugsanlegur
framtíðarmaður. Hörður
vakti mikla athygli í 4-1
sigri íslenska 21 árs lands-
liðsins á jafnöldrum sínum
frá Svíþjóð á dögunum.
Hörður skoraði fyrstu tvö
mörk íslenska liðsins í
leiknum en hann varð í
sumar einnig fyrsti íslend-
ingurinn til þess að skora
fernu í Evrópuleik.
Þórður Guðjónsson knattspyrnu- farin ár og segir hann í samtali
maður er á leiðinni heim eftir 13 við DV Sport að hann hlakki til að
ár í atvinnumennskunni
Hvorki hefur gengið né
rekið hjá honum undan-
koma heim og byrja að leika
knattspyrnu á ný. Hann er
helst orðaður við FH.
Þórður Guðjónsson Sróð sig vel
með landsliðinu þegar hann spilaði
með þviþrátt fyrlr að hafa átt mis-
jöfnu gengi að fagna sem atvinnu-
maður i knattspyrnu.
Þórður Guðjónsson hefur upplif-
að flest sem knattspymumaður getur
hugsanlega lent í á sínum ferli, að
eigin sögn, og sjálfsagt gott betur.
Honum hefur oftar en einu sinni ver-
ið útskúfaður úr liði sínu og verið
hampað sem hetju af stuðnings-
mönnum sínum. Hann hefur unnið
titla og verið valinn leikmaður ársins
en hefur lfka mátt sætta sig við bekkj -
arsetu eða jafnvel stúkusæti hjá miðl-
ungsliðL En hann horfir fram á nýtt
upphaf á íslandi efúr þrettán ára vem
erlendis.
„Ég hafði hugsað mér að taka mér
vikntfma f að hugsa mín mál og taka
ákvörðun um með hvaða félagi ég
ætla að spila," sagði Þórður í samtali
við DV Sport í gær. Hann er helst orð-
aður við fslandsmeistara FH enda
myndi hann passa vel inn í þann hóp,
rétt eins og f hvaða lið sem er á fs-
landi. KR, Valur, ÍA, Pyikir og í raun
öll lið á íslandi myndu vilja hafá Þórð
í sínum röðum og hefur hann verið
orðaður við öll þessi lið.
En FH hlýtur að vera líklegasti
kosturinn enda þarf hann ekki að
horfa nema til Auðuns Helgasonar og
Tryggva Guðmundssonar. Báðir vom
þeir í samskonar stöðu fyrir ári síðan
og Þórður er nú en báðir unnu þeir
sér sæti í landsliðinu með góðri
frammistöðu í íslandsmótinu með
liði FH. Þórður segist ekki útiloka
neitt hvað varðar landsliðið og gefur
ennkostásér.
„Ég ætla mér að standa mig heima
og það er mikil tilhlökkun f mér að
takast á við fslenska fótboltasumarið.
Ég hef einnig alltaf haft mikinn mem-
að fyrir því að spila fyrir íslenska
landsliðið og útiloka ekki endurkomu
mína í íslenska landsliðið. Nú er
kominn nýr þjálfari og framtfðin
verður að leiða það í ljós."
Þórður segir að hann muni koma
til með að eiga heima á Akranesi en
það hafi ekki endilega neitt að segja
um með hvaða liði hann spilar. „Við
festum kaup á húsnæði á Akranesi og
þar munum við koma til með að búa.
Það útilokar þó engin lið á höfuð-
borgarsvæðinu í mínum huga enda
er mjög stutt að fara."
Miklar sveiflur
Þórður fór út eftir að hafa orðið
markahæsti maður fslandsmótsins
1993. Hann skoraði nítján mörk og
jafiiaði þar með markametið fræga.
Hann var í fjögur ár með Bochum í
Þýskalandi sem flakkaði milli deilda
allan hans tíma þar. Þaðan var hann
seldur til Genk í Belgíu þar sem hann
sló í gegn, var lykilmaður í liði sem
vann titia og náði frábærum árangri.
Það var þótti því stórfrétt þegar að
Þórður var seldur fyrir fúlgu fjár til
Las Palmas á Spáni þar sem harín átti
að slá f gegn f stórri deild. Ekkert varð
úr því, né heldur þegar hann var lán-
aður frá Spáni til Derby árið 2001 og
svo Preston North End ári síðar.
Hann var að lokum seldur aftur til
Bochum þar sem hann fékk þó að-
eins að spila, en ekki nærri því nóg.
Snemma á árinu gekk hann tfl liðs við
Stoke þar sem hann hefur ekkert
fengið að spfla.
„Ég hef upplifað ansi margt á mín-
um ferli," segir Þórður. „Ég held að ég
hafl fengið flest allar hliðar og útgáfu
af atvinnumennsku sem til eru. Það
hafa verið miklar sveiflur á mfnum
ferlL Þetta er núna annað tímabilið
hjá mér þar sem ég hef nánast ekkert
fengið að spila. Ég kem ekkert til með
að spila með Stoke í ár sem gerir það
að verkum að ég kem tfl leiks á ís-
landi óþreyttur og enn grimmari fyrir
vildð."
Boskamp seldi míg frá Belgíu
Þórður segir að Johan Boskamp,
þjálfari Stoke, myndi sennflega ekki
nota sig þó svo að varla væm ellefu
menn leikhæfir í liðinu. „Ég þekki
þennan mann það vel," sagði Þórður
en þeir hafa áður unnið saman, þeg-
ar Þórður var á mála hjá Genk. „Hann
gat ekki annað en að nota mig mikið f
Belgíu en þetta er jú þjálfarinn sem
seldi mig frá Belgíu," bendir Þórður á
og af máli hans má ráða að ákvörðun
Boskamp hafi ekki komið honum á
óvart „En þetta vom vissulega mikil
vonbrigði enda hafði ég spilað alla
leikina á undirbúningstímabilmu og
mér fannst ég vera að kominn í mitt
gamla form. Þetta var að því leytinu
til vissulega mfldð reiðarslag."
Þórður á að baki 58 leiki með ís-
lenska landsliðinu og hefur skorað í
þeim þrettán mörk Hann hefur verið
einn besti hægri kantmaður sem ís-
land hefur átt undanfarin áratug og
vonandi að hann nái að finna sitt
fyna leikform á nýjum vettvangi.
eirikurst@dv.is
iM
Maikel López, þjálfari spænska körfuboltaliðsins CajaCanarias:
Eltingarleikur
Hið unga lið Hauka
ienti í erfiðleikum gegn
atvinnumannaliði
CajaCanarias en þjálf-
ari spænska liðsins sér
bjarta framtíð hjá
Haukum.
Kvennalið Hauka steig stórt í
sögu íslensk körfubolta þegar liðið
spilaði fyrsta Evrópuleik íslensks
kvennaliðs á Ásvöllum á fimmtu-
dagskvöldið. Haukaliðið gerði ágæta
hluti í fyrri hálfleik, lenti reyndar 0-7
undir eftir 2 mínútur en hékk í
spænska liðinu og í hállfeik munaði
15 stigum á liðunum, staðan var 38-
53 fyrir CajaCanarias. Spánverjarnir
skomðu hinsvegar 15 fýrstu stig
seinni hálfleiks og þegar þriðji leik-
hluti var hálfnaður var CajaCanarias
komioð með 35 stiga forskot, 40-75
og eftir það var leikurinn formsatriði
fýrir þær að klára. Kesha Tardy var
best í liði Hauka með 20 stig en Hel-
ena Sverrisdóttir var með 15 stig, 9
stoðsendingar og 5 stolna bolta. Jel-
ena Jovanovic fann sig hinsvegar
ekki í sínum fyrsta leik og var aðeins
með 7 stig á 30 mínútum.
„Haukaliðið er rosalega ungt lið
og það verður gaman að sjá til þeirra
eftir nokkur ár þegar þær em búnar
að fá að vaxa og dafna og sækja sér
meiri reynslu. Það er greinilega
metnaður í Haukum og ég er viss
um að Haukaliðið getur orðið gott
lið í framtíðinni," sagði Maikel
López, þjálfari spænska körfti-
boltaliðsins CajaCanarias eftir 39
stiga sigur á Haukum í fyrsta leik lið-
anna í Evrópubikarkeppninni. „Ég
er aldrei fyllilega ánægður með leik
míns liðs en get alveg verið sáttur
við úrslitin. Við emm bara rétt að
byrja og þurfum að slípa betur okkar
leik. Næst er leikur gegn Barcelona í
deildinni á laugardaginn," sagði
Lopez. Næsti leikur Haukastúlkn-
anna er gegn franska liðinu Pays
D’Aix Basket 13 á útivelli í næstu
viku. „Þetta er erfiður riðill og
franska liðið er mjög sterkt. Við
mættum hinum liðunum í okkar
riðli í keppninni í fyrra en þau hafa
bæði styrkt sig fyrir tímabilið.
Franska liðið spilar fast og keyrir
mikið upp hraðann og þetta verður
því örugglega strembinn leikur fyrir
Haukanna.”
ÞAÐ VERÐUR GAMAN AÐ SJA HAUKA-
STELPURNAR EFTIR N0KKURÁR