Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Page 28
28 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
Helgarblað DV
Óperusöngkonan Hulda Björk Garðars-
dóttir unir sér vel í eldhúsinu og leggur
mikla áherslu á að fjölskyldan borði
saman kvöldverð daglega. En í gær tók
hún þátt í frumsýningu óperunnar „Tök-
in hert,4< eftir Benja-
min Britten.
S
Óperusöngkonan Hulda Björk
„Við hjónir, elóum bæði. Við skipt-
um p'.’i eftirpvi hvetnig hentar en
reynurn að hafa það sem fgstan
punkt að borða ói! saman."
„Tökin Hert er bresk ópera eftir Benja-
min Britten. Þetta er mjög áhugaverð saga.
Við höfum verið að setja verkið á svið síð-
ustu fimm vikur,“ segir Hulda Björk Garð-
arsdóttir sem fer með hlutverk kennslu-
konu í verkinu sem var frumsýnt í gær-
kvöld. „Hlutverk kennslukonunnar er
mikið og stórt hlutverk að takast á við,"
segir Hulda Björk og útskýrir fyrir óupp-
lýstum blaðamanni að hún syngur lýrísk-
an sópran.
„Við erum til dæmis fjórar sópransöng-
konur í verkinu. Ólöf Kolbrún Harðardótt-
ir, Hanna Dóra Sturludóttir, Þórunn Arna
Kristjánsdóttir og ég. Við erum allar ólíkar
sópransöngkonur með mismunandi sópr-
an. Það eru nefnilega til mismunandi
gerðir af sópran sem fer algjörlega eftir
raddeiginleikum hvers og eins," útskýrir
hún glöð í bragði.
„Eldhúsið okkar er miðja heimilisins.
Það er stórt, mjög rúmgott og gott pláss.
Það er staðsett þannig," segir hún en neit-
ar því hlæjandi að hún hefji upp raust sína
í eldhúsi íjölskyldunnar. Hulda Björk eldar
að eigin sögn. „Við hjónin eldum reyndar
bæði. Við skiptum því eftir því hvernig
hentar en reynum að hafa það sem fastan
punkt að borða öll saman. Það er nauð-
synlegt því við eigum einn ungling og svo
einn lítinn líka. Það er mikið að gera hjá
öllum og þess vegna er mikilvægt að við
gefum okkur tíma að minnsta kosti einu
sinni á dag til að sitja saman," segir hún og
bætir því við að þrátt fyrir annir beri þeim
að huga að börnunum en þau elda mest-
megnis kjúkling eða lax.
Við kveðjum Huldu Björk og þökkum
henni fyrir gestrisinina. Þessi indæla söng-
kona hefur nóg fyrir stafni þessa dagana
og aðra helgina í desember syngur hún
ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju sem
hefur getið sér gott orð hér heima og er-
lendis undir stjórn Harðar Áskelssonar þar
sem flutt verður jólaoratoría. Nóg að gera
hjá þessari hæfileikaríku söngkonu og ekki
furða því hún er með einstaklega fallega
útgeislun og rétt viðhorf til fjölskyldunnar
og lífsins.
elly@dv.is
I Hansína „íslenskur
1 sunnudagsmatur er alveg
\æði," segir Hanslna.
„Við leitumst við að
, endurvekja þessa nota-
legu tilfinningu að
geta komið á faUegan
stað og borðað
sunnudagsmatinn
hennar mömmu eins
og margir þekkja hann
frá fyrri tíð,“ segir Hans-
ína B. Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hótels Glyms
í Hvalfirði sem býður gestum
upp á sunnudagsmat sem þekktist
á flestum heimilum á sunnudögum og
gerir enn.
Naut þess sjálf í æsku
Af hverju sunnudagsmatur? „Eftir að við eldri
systkinin fluttum að heiman og fórum að sjá um okkur sjálf,
var farið heim tii mömmu og pabba til þess að fá svona mat á
sunnudögum og það var alveg æðislegt," segir Hansína
dreymin eins og flestir fslendingar því sunnudagsmaturinn er
og verður án efa stór partur af fjöldskyldumenningu þjóðar-
innar.
Hansína B. Einarsdóttir rekur Hótel Glym í
Hvalfirði. Hún býður nú gestum sínum upp
á heimilismat að hætti mömmu en sjálf á
hún margar minningar af sunnudagssteik-
inni frá því að hún var barn.
„Ég man líka eftir því sem barn, en þá var þessi matur oft-
ast í hádeginu á sunnudögum, að nokkrum sinnum fengum
við fisk, góðan, nýjan fisk því að bræður pabba voru á sjó og
hægt að fá nýja soðningu sem fullorðna fólkinu þótti gott. En
í minni minningu voru þetta alveg hræðilegir sunnudagar.
Það læddist að manni sá grunur að nú væri alvarlega þröngt í
búi þar sem ekki var hægt að bjóða upp á sunnudagssteikina."
Glorhungraðir unglingar
„Reyndar var það svo að mamma mín ákváð að færa
sunnudagssteikina fram á mánudag eftir mjög slænta reynslu
af okkur eldri systkinunum," segir hún hlæjandi og heldur
áffam skemmtilegri frásögninni: „Við elstu bjuggum heima á
meðan við vorum í skóla og á tímabili vorum við íjögur á aldr-
inum 16-20 ára. Allir fóru að skemmta sér á laugardegi og svo
þegar komið var heim aðfaranótt sunnudags vorum við auð-
vitað glorhungruð. Ekki hægt að kaupa neitt matarkyns um
miðja nótt enda ekki til peningar í það og þá var svo freistandi
að steikja hrygginn eða kótiletturnar sem lágu þiðnar í vask-
inum á meðan að við hentum gaman að því sem gerst hafði
um kvöldið. Þessar átveislur okkar systkina voru ekki vinsæl-
ar, hvorki hjá yngri systkinum né okkar foreldrum sem komu
fram í eldhús og gripu í tómt. Svo mamrna tók bara þá
ákvörðun að hafa eitthvað létt á sunnudagskvöldum en hafa
steikina á mánudögum í staðinn."
„Við leggjum álterslu á rólegheit svo fólk geti notið þess að
gera sér dagamun og keyra hingað í Hvalfjörðinn," segir
Hansína full af krafti og jákvæðri orku sent kentur alls ekki á
óvart því hótelið er byggt á álfabyggð, með samþykki álfanna
að sjálfsögðu.