Símablaðið - 01.01.1935, Side 17
SlMABLAÐlÐ
3
um símastéttarinnar nú um margra
ára skeið.
Fyrsti ritstjóri blaðsins var Otto B.
Arnar. loftskeytafræSingur. Var hann
þá jafnframt fjTsti formaður hins ný-
stofnaða félags. F. 1. S., ötull og fram-
gjarn félagsmaður, með lifandi áhuga
fyrir tekniskri mentun símastéttarinn-
ar. Bar blaðið þess ljósan vott í rit-
stjórnartíð hans, enda hét það þá El-
ektron.
Aðrir ritstjórar Símablaðsins hafa
verið þessir: Tómas Stefánsson 1917,
Gunnar Schram 1917—1924, Andrés
Þormar 1924—1925, Daníel Jóhanns-
son og Sigurður Dahlmann 1926—1927.
Arð 1927 tók Andrés Þormar aftur við
ritstjórn blaðsins, á þann hátt er fyr
greinir og hafa meðritstjórar hans ver-
ið Daníel Jóhannsson 1927—1929,
Friðbjörn Aðalsteinsson 1934. Núver-
andi meðritstjóri lians er Gunnar Bach-
mann.
Hvert hefir verið og er gildi Síma-
hlaðsins fyrir símastéttina? Það hefir
verið og er tvenskonar: Kensla og mál-
færsla. Meðan símastéttin var ung og
þekking í ýmsum starfsgreinum ennþá
í bemsku, tóku áhugasamir menn sér
fyrir hendur að skrifa ýmsar leiðbein-
ingar og fræðigreinar um símamál í
nýstofnað blað stéttarinnar, er mörg-
um námfúsum starfsmanni mun hafa
orðið til verulegra nota. ,
Þetta var fjTsta sporið.
Síðar, þegar stéttin óx og fór að
vakna til meðvitundar um tilveru sína,
gerðist hlaðið fjölþættara, niðurlagði
tekniska nafnið og fór að vinna að end-
urbótum í hagsmuna og velferðarmál-
um símafólksins. Því tókst það giftu-
samlega undir stjórn Gunnars Schram,
er þá einnig var formaður félagsins.
— Auk þess liefjr blaðið átt frum-
kvæði að ýmsum stærstu nytjamálum
símastéttarinnar, sem nú bera góðan á-
vöxt. Má þar til nefna sumarbústaða-
málið, námsstyrk fjTÍr símafólk, bóka-
safn, bætt launakjör, húsbyggingamál,
sem enn er að eins draumuh, en vænt-
anlega verður að veruleika innan
skanims, styrktar- og lánasjóð, og
fleira mætti telja. —
Má hiklaust vænta mikils góðs af
Síniablaðinu, ef hugkvæmni og smekk-
vísi ritstjóranna dvínar ekki.
En nú verður þó að lokum að minn-
ast þess, að nokkuð skortir á ennþá
bjá okkur símafólki, að vera samtaka
I því að hagnýta okkur Símablaðið til
hinna mestu nota fyrir sameiginleg
hagsmunamál og áhugamál olckar. Það
eru of fáir er rétta ritstjórum stéttar-
blaðsins okkar höndina fram til hjálp-
ar. Símablaðið getur verið og á að
vera fjöregg F. f. S. Hið skrifaða orð
verðim að sýna hinum mörgu lesendum
og kaupendum, er blaðið liefir nú orðið
utan símastéttarinnar, að samhugur og
eindrægni hefir til þessa hjálpað okk-
ur best í því að bæta liag stéttarinnar
á margvíslegan hátt.
Einskonar „taltækjum“ er um þessar mund-
ir veriS aS koma fyrir í alla strætisvagna
í Prag. HljóSnema og magnara er fyrir-
komiS inni í vögnunum, en gjallarhorni of-
an á þakinu. Á þann hátt er einkar hent-
ugt bílstjórunum aS tilkynna fólki götunöfn,
brottfarartíma, fargjöld, — og alt þaS, er
áhrærir ferðir vagnanna.
í París hefir slíkt fyrirkomulag í „Metro“-
neSanjarSarbrautunum orðiS einkar vinsælt.