Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 23

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 23
S i M A B L A Ð l Ð Með lögum frá síðasta alþingi er ákveðið að sameina póst og síma undir eina yfirstjórn frá 1. júlí. Sigurður Briem póstmálastjóri lét af starfi sínu 1. júní, en Guðm. Hlíðdal var settur í það embætti. Frá 1. júlí hefir svo Hlíðdal ver- ið skipaður póst- og símamálas tjóri. Fellur það því í hans hlut að sain- eina þessar stofnanir. Verðnr sam- einingin fyrst og fremst í jrví fólg- in, að færa saman skrifstofur stofn- ananna, og' ákveða sameiginlega starfsháttu þeirra. Munu aðalskrif- stofur póstsins verða fluttar í Landssímabygginguna. Hvernig skipað verður í stöður þar,erSíma- bl. enn ekki kunnugt. Getur það því ekki á þessu stígi málsins farið lengra út í það mál. En mun gera það begar sameiningin hefir farið fram, og séð er hvernig henni verð- ur hagað. En það væntir þess, og telur það víst, að hún verði fram- kvæmd þannig, að starfsfólk beggja stofnananna megi vel við una, og á rétt hvorugs verði gengið. Og það væntir þess, þó það jafnan hafi verið andvígt sameiningu pósts og síma, úr því sú sameining fer fram, að starfs- fólk þessara stofnana finni fljótt, að það tilheyri einni stofnun, og sé ein stétt, en að það berist ekki á banaspjótum Guðm. J. Hlíðdal. úlfúðar og ágengni, svo sem viljað hef- irbrenna við í sumum öðrum löndum. Og í því trausti, að sá grundvöllur verði strax lagður, óskar Símablaðið hinum nýskipaða forstjóra stofnananna allra heilla í hinu vandasama og umsvifa- mikla starfi. sjóðsins af líftrvggingum hefði orðið 4—500 kr. en það væri aðeins óuppgert og væri þær því ekki taldar með i reikningsgjörðinni. Stjórn sjóðsins var endurkosin, en í henni eiga sæti: Guðm. Pétursson, Krist- ján Snorrason, Ragna Jónsdóttir, Stein- dór Björnsson og Vilborg Björnsdóttir. Pöntunarfélagið. Stjórninni var falið að semja við pöntunarfél. um að halda áfram störf- um. G. Bachmann, ritari.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.