Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1935, Síða 25

Símablaðið - 01.01.1935, Síða 25
SlMABLAÐIÐ 11 t Guðmundur Eyjólfsson Símastjóri í Hafnarfirði andaðist eflir uppskurð á Landakots- spítala 12. maí. Hann var fæddur x Reykjavík 22. sept. 1889, sonur Eyjólfs Ófeigssonar trésmiðs og Guðnýjar Árna- dóttur, konu hans. , Guðmundur sál. kom í þjónustu landssimans árið 1917, er hann varð símastjóri í Hafnarfirði, og því starfi gegndi hann til dauðadags. Áður liafði hann fengist við verslunarstörf, fyrst í Revkjavík, og síðan í Hafnarfirði. Árið 1915 gekk hann að eiga Ingi- björgu Ögjnundsdóttur, Sigurðssonar. Áttu þau tvö börn, Guðrúnu og Ög- mund. Guðmundur sál. var óvenjulega fríð- ur og karlmannlegur á velli. En liann var einnig óvenjulega prúður í fram- komu, réttsýnn og vandaður í alla staði. Með honum er lmiginn í valinn enn einn þeirra simamanna, er skilja eftir sig mikinn söknuð, og sem minna á orð- takið: „Þeir sem guðirnir elska, deyja ungir.“ — Blessuð sé minning þin. — lit með húsinu og sjái um viðhald þegar til kemur. Til vara að F. I. S. ábvrgist alt að 3000 kr. lán sem við mundum revna að útvega i láns- stofnunum hér eystra, og sjái um greiðslu vaxta og afborgana af því, enda sé húsið eign félagsins. 2. Að F. 1. S. útvegi færan mann til þess að teikna húsið, leiðbeini um efniskaup o. fl. Sendi hérmeð grunnriss af sumarbú- staðnum á Akureyri. Þeir Seyðfirðingar, sem hafa séð hús þetta, láta mjög vel af því. Samt ber ekki að skoða þetta svo, að við viljum endilega hafa her- bergjaskipunina eins og á þessu rissi. Sá, sem teiknar húsið, hefir óbundnar hendur. Vil að eins henda á, að húsið má ekki vera mjög lítið vegna þess, að starfsfólk er hér töluvert margt. Þess skal getið, að enn er ekki full- ákveðið, hvar húsið skuli standa, ef til kemur vegna þess hvað veðrátta var óhagstæð s. 1. sumar. Við teljum aðal- lega um tvo staði að gera: 1. Utan við Gufufoss, undir Bjólfinum i Fjarðardal. Þessi staður hefir þann kost, að liann er nálægt kaup- staðnum. Þarna er mjög fallegt á sumrum, skóglendi og blómskrúð. Notkun iiússins vrði auðveld, eftirlit og viðhald sömuleiðis og auk þess

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.