Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.2002, Side 10

Ægir - 01.02.2002, Side 10
10 F R É T T I R Þessar vikurnar eru sjávarútvegs- fyrirtæki að birta afkomutölur sínar fyrir liðið ár og halda aðal- fundi. Eins og milliuppgjör fyrir- tækjanna gáfu til kynna var gífur- legt gengistap á fyrri hluta síðasta árs, en á síðari hluta ársins réttist skútan töluvert af og sum fyrir- tækin náðu þegar upp var staðið að skila jákvæðri rekstrarniður- stöðu fyrir allt árið. Þrátt fyrir að mörg af stærri sjávarútvegsfyrir- tækjunum sýni tap á síðasta ári segir það þó ekki alla söguna því framlegð var almennt mjög mikil í rekstri fyrirtækjanna. Gengisfall íslensku krónunnar hafði þar sitt að segja á síðari helmingi ársins og einnig hátt afurðaverð á flest- um mörkuðum. Og síðan hefur það haft sitt að segja að hagræð- ing í hérlendum sjávarútvegsfyr- irtækjum á undanförnum árum er greinilega að skila sér í betri rekstri. Ef ekkert óvænt gerist á þessu ári ættu horfur fyrir árið 2002 að vera almennt góðar. Til þess að gefa hugmynd um reksturinn á síðasta ári birtum við hér niðurstöðutölur hjá nokkrum sjávarútvegsfyrirtækjum. Hraðfrystihúsið-Gunnvör Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. var rekið með 114 milljóna króna hagnaði á árinu 2001, sem er tæplega 100 milljónum króna betri rekstrarniðurstaða en árið 2000. Veltufé frá rekstri var 722 milljónir í fyrra samanborið við 536 milljónir króna árið áður - aukning um 35%. Árið 2001 er að líkindum besta rekstrarár fyr- irtækisins og ágætar horfur eru fyrir þetta ár. Þorbjörn - Fiskanes Rekstur Þorbjörns-Fiskaness á síðasta ári var gerður upp með 413 milljóna króna hagnaði sam- anborið við 89 milljóna króna tap á árinu 2000. Þessi afkoma verður að teljast mjög góð og betri en spár fjármálasérfræðinga höfðu gert ráð fyrir. Útgerðarfélag Akureyringa Útgerðarfélag Akureyringa hf. tapaði 87 milljónum króna á ár- inu 2001, samanborið við 779 milljóna króna tap árið áður. Veltufé frá rekstri nam 1.290 milljónum króna á nýliðnu ári, samanborið við 565 milljónir árið áður, og jókst því um 128%. Hin mikla fjármunamyndun í rekstr- inum gerir það að verkum að ný- liðið ár er besta rekstrarár í 56 ára sögu ÚA , þrátt fyrir að félagið sé gert upp með tapi. Samherji Samherji hf. var rekinn með 1279 milljóna króna hagnaði á síðasta rekstrarári. Rekstrartekjur Sam- herja í fyrra voru um 12,7 millj- arðar króna og hagnaður án af- skrifta og fjármagnskostnaðar var 3,46 milljarðar. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1159 milljón- ir króna og afskriftir voru 984 milljónir. Haraldur Böðvarsson Hagnaður samstæðu Haraldar Böðvarssonar hf. fyrir afskriftir og fjármagnsliði á síðasta ári var 1078 milljónir króna, samanborið við 598 milljónir króna árið 2000. Hins vegar var árið gert upp með 196 milljóna króna tapi, fyrst og fremst vegna gífurlegs gengistaps á árinu. Framlegð móðurfélags HB í fyrra var tæp- lega 1100 milljónir króna og veltufé frá rekstri 731 milljón króna. Hraðfrystihús Eskifjarðar Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. var rekið með ríflega 156 milljón króna hagnaði í fyrra, að teknu tilliti til skatta og fjármagns- kostnaðar. Hagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsgjöld var 1.280 milljónir króna. Afskriftir ársins voru rúmar 403 milljónir og fjármagnsgjöld rúmar 750 milljónir. Í fyrra var 34,02% framlegð af rekstri félagsins sam- anborið við 10,58% árið áður. Veltufé frá rekstri nam 1.011 milljónum og handbært fé frá rekstri 728 milljónum. Fjármunamyndun almennt mikil og horfur góðar Framan af síðasta ári glímdu sjávarútvegs- fyrirtækin við gífurlegt gengistap, en dæmið lagaðist þegar leið á árið. Það sem hins vegar skipti máli var mikil fjármunamyndum í rekstri fyrirtækjanna. Ljóst er að afkoman af loðnuveiðum og -vinnslu var mjög góð á síðasta ári. Rekstrarniðurstaða Hraðfrystihúss Eski- fjarðar staðfestir það. Einnig er kolmunninn farinn að skipta æ meira máli í rekstri þeirra fyrirtækja sem byggja á uppsjávarveiðum.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.