Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Síða 12

Ægir - 01.02.2002, Síða 12
12 T Æ K N I Til að byrja með voru það útgerð- ir frystiskipa sem keyptu SeaTel gervihnattasjónvörp, fyrsti bún- aðurinn fór um borð í frystiskip Granda hf. árið 1999, en Jón Tryggvi segir að mun fleiri sýni þessum búnaði nú áhuga, bæði útgerðir ísfisktogara og uppsjáv- arveiðiskipa og einnig smærri báta og skipa. „Það er að verða al- menn krafa sjómanna að hafa að- gang að góðum sjónvarpssending- um,“ segir Jón Tryggvi. Notendur SeaTel hafa aðgang að fjölda erlendra sjónvarps- stöðva, en enn sem komið er ná þeir ekki íslenska sjónvarpinu. Sjófarendur sýna því mikinn áhuga, en Ríkisútvarpið hefur ekki treyst sér til þess að leggja í kostnað við dreifingu efnis Ríkis- sjónvarpins um gervihnött. „Mér sýnist að fyrir sumarið verði þessi búnaður kominn um borð í 50-60 hérlend fiskiskip,“ segir Jón Tryggvi. Sjálfur grunnbúnaður- inn kostar á þriðju milljón króna, en viðbótarkostnaður ræðst nokk- uð af því hversu margir móttakar- ar eru um borð í viðkomandi skipi. „Eins og ég segi merkjum við verulega aukinn áhuga fyrir þessum búnaði og það er ljóst að heimsmeistarakeppnin í fótbolta í sumar ýtir undir áhugann,“ segir Jón Tryggvi. Höfuðlínusónar frá Wesmar Af fjölmörgum öðrum tækjum fyrir sjávarútveginn sem Ísmar selur nefnir Jón Tryggvi nýjan höfuðlínusónar frá Wesmar, sem hann segir að sé fyrir skip sem togi með flotvörpu. „Hann er Sprenging í sölu gervihnattasjónvarpa - segir Jón Tryggvi Helgason, sölustjóri hjá Ísmar hf. „Það má orða það svo að það hafi orðið sprenging í sölu gervihnatta- sjónvarpskerfa á síðustu mánuðum. Við höfum sett slík sjónvarpskerfi frá bandaríska fyrirtækinu SeaTel um borð í 25-30 skip og fyrirliggjandi eru pantanir á sjónvarpskerfum í 10-20 skip til viðbótar, sem við mun- um setja upp á næstu vikum,“ segir Jón Tryggvi Helgason, sölustjóri hjá Ísmar hf., en fyrirtækið hefur umboð fyrir þennan öfluga og þekkta sjónvarpsbúnað. Jón Tryggvi Helgason, sölustjóri hjá Ísmar hf, (t.h.) og Finnur Jónsson, sölumaður, halda hér á nýja Wesmar höfuðlínustykkinu. Vinstra megin á myndinni má sjá nýja GPS kompásinn frá JRC. Mynd: Sverrir Jónsson. JRC JLR-10 GPS- kompásinn byggir á tveimur GPS-loftnet- um og innbyggðum hreyfiskynjurum og gefur mjög nákvæm- an stefnuaflestur.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.