Ægir - 01.02.2002, Side 13
T Æ K N I
staðsettur á höfuðlínu trollsins og
getur sýnt 360 gráðu mynd af því
ef hann er þannig stilltur. Það er
hægt að hafa margvíslega fram-
setningu myndar á sama skjá. Til
dæmis er mögulegt í senn að vera
með mynd af trollopinu, dýptar-
mælismynd og framskönnun.
Þessi búnaður er mun léttari en
áður hefur þekkst,höfuðlínu-
stykkið er ekki nema 32 kíló og
upplausn mynda á skjánum er
mjög góð,“ segir Jón Tryggvi.
Sem dæmi er Wesmar höfuðlínu-
sónarinn kominn um borð í Þor-
stein EA og Hoffell SU og reynsl-
an er góð.
Nýr fjarskiptabúnaður frá
Thrane & Thrane
„Ég vil líka nefna mjög athyglis-
verða fjarskiptalausn frá danska
fyrirtækinu Thrane & Thrane sem
er ekki enn komin á markaðinn,
en hún mun fara í sölu á fyrri
hluta þessa árs. Þetta er fyrirtæki
sem sérhæfir sig í gervihnattafjar-
skiptum og þessi nýi búnaður er í
raun gervihnattasamskiptabúnað-
ur sem nefnist Fleet 77. Búnaður-
inn býður upp á gagnasamband á
64 kílóbæta hraða, sem er sami
gagnaflutningshraði og með
ISDN-línu. Þessi hraði myndi
leysa öll vandkvæði við internet-
flutninga til og frá fiskiskipum.
Búnaðurinn býður líka upp á að
notandinn sé sítengdur, án þess
þó að hann greiði fyrir afnotin
fyrr en gögn eru sótt. Enn sem
komið er hefur ekki verið gefin út
gjaldskrá frá Imarsat fyrir notkun
á búnaðinum, en út frá því er
gengið að bæði kostnaður við
búnaðinn og notkunargjöld verði
mun lægri en áður hefur þekkst
fyrir þessa þjónustu. Mér sýnast
líkur benda til þess að búnaður-
inn komi til með að kosta um
tvær milljónir króna,“ sagði Jón
Tryggvi.
GPS kompás frá JRC
Jón Tryggvi Helgason segir rétt
að vekja líka athygli á góðri
reynslu af GPS kompás frá JRC,
sem Ísmar hefur umboð fyrir.
JRC JLR-10 GPS-kompásinn
byggir á tveimur GPS-loftnetum
og innbyggðum hreyfiskynjurum
og gefur mjög nákvæman stefnu-
aflestur. Þetta tæki hefur rutt sér
mjög til rúms í öllum stærðum
skipa og báta og er alveg kjörið
sem varakompás fyrir stærri fiski-
skip. Kompásinn gefur jafngóðan
eða betri aflestur en gyro-kompás,
en er margfalt ódýrara tæki. Ég
tel að með tilkomu þessa tækis
hafi opnast möguleiki fyrir eig-
endur minni báta til þess að verða
sér úti um réttvísandi stefnur til
þess að tengja inn á ARPA-radara
og sjálfstýringar, en þessi mögu-
leiki var ekki raunhæfur áður,
vegna þess hversu dýrir gýró-
kompásar hafa verið. Þessi nýi
GPS-kompás kostar 425 þúsund
krónur,“ segir Jón Tryggvi
Helgason.
13